Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1925, Page 12

Stúdentablaðið - 01.12.1925, Page 12
STÚDENTABLAÐ 1925 6 vísi til sameiginlegs heimilis. par hafa þeir matarfélag og greiðasölu og stjóma sjálf- ir. Árleg velta fyrirtækisins nemur 70— 80 þús. kr. Á Mensa lesa þeir blöð sín, innlend og erlend, ræða áhugamál sín og annara, þreyta tafl og skemta sér við söng og hljóðfæraslátt. Á Mensa hafa hugsjónir fæðst, sem eiga eftir að lýsa yfir land vort, og þar hafa verið hnýtt órjúfanleg vináttu- og trygðabönd. Stúdentaráðið hefir í fjögur ár unnið að stúdentaskiftum við önnur lönd. Með því hefir það dregið úr einangrun stúdenta vorra, aukið þeim víðsýni og auðgað reynslu þeirra. Með því hefir það einnig aflað þjóð vorri vina erlendis, og hafa margir þeirra þegar sýnt í verki, að þeir kunna að meta það, sem vel var gert til þeirra. Hafa þeir ritað og talað um þjóð vora í heima- landi sínu af meira skilningi en títt er um erlenda menn. Stúdentaráðið stofnaði upplýsingaskrif- stofu fyrir menta- og skólamál. I fjögur ár hefir hún starfað, og mörgum liðsint, innlendum og erlendum. Auk upplýsinga- starfsins hefir hún oftlega orðið stúdent- um hjálpleg um útvegun kenslustarfa og jafnvel húsnæðis. Stúdentaráðið stofnaði lánssjóð stúd- enta. Tilgangur hans er að styrkja með hagkvæmum peningalánum fátæka stúd- enta við háskólann. Tekjur hans eiga að verða árleg tillög háskólanemenda og ann- ara, er vilja st.vðja hann. Má og víst telja, að Sáttmálasjóðurinn leggi honum eitt- hvað. Lán skal veita gegn tryggingu, er stjórn sjóðsins tekur gilda. í stjórn sjóðs- ins eiga sæti: einn fulltrúi valinn af Stjórn- arráðinu, annar af Háskólaráðinu og sá þriðji af Stúdentaráðinu. Væntanlega tekur sjóðurinn bráðlega til starfa. Stúdentaráðið hefir starfrækt lesstofu stúdenta. Hefir hún aldrei fyllilega náð tilgangi sínum, meðfram vegna óhentugra húsakynna. Nú hefir Stúdentaráðið ákveð- ið að leggja hana niður, en stofna af eig- um hennar útlánsbókasafn fyrir stúdenta. Stúdentaráðið hefir komið fram breyt- ingum til bóta á reglugerðum fyrir em- bættispróf í læknis-, lög- og guðfræði. Einnig var að ósk þess haldið uppi kenslu í bókfærslu einn vetur við háskólann. Stúdentai’áðið hefir og látið sig skifta líkamsment stúdenta. Hluta úr tveim vetrum hefir það notið aðstoðar ríkis- stjórnarinnar og háskólans til þess að halda uppi líkamsæfingum fyrir stúdenta. Nú nýlega hefir það ákveðið að snúa sér einbeittlega að þeim málum. Stúdentaráðið hefir jafnan vakað vel um þingtímann og eigi ófyrirsynju. Hafa stúdentar hér heima og eins þeir ísl. stúdentar, er erlendis nema, átt mjög í vök að verjast fyrir niðurskurðarpúka þingsins. Stúdentaráðið hefir þrívegis sent full- trúa á erlend stúdentamót. Eitt sinn til Prag, seinna til Haag og nú s. 1. sumar til Osló. Einnig hefir það ákveðið að efna til stúdentamóts hér, í sambandi við 1000 ára afmælishátíð íslenska ríkisins, og bjóða er- lendum stúdentum þátttöku í því. Stúdentaráðið hefir þó fyrst og fremst helgað Stúdentagarðsmálinu krafta sína. það mál er mesta velferðarmál stúdenta. það er sjálfstæðismál allrar þjóðarinnar og ætti að vera metnaðarmál sérhvers ís- lendings. Enn gæti eg nefnt mörg smærri mál, sem Stúdentaráðið hefir haft með hönd- um og afgreitt.og önnur,sem þar hafa ver- ið rædd, þótt eigi séu þau enn komin til framkvæmda, t. d. kaupfélag stúdenta, sjúkrasamlag o. fl. Stúdentaráðið átti og frumkvæði að því

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.