Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1925, Blaðsíða 14

Stúdentablaðið - 01.12.1925, Blaðsíða 14
8 1925 STÚDENTABLAÐ Stúdentamótið í Oslo Norræna stúdentamótið í Ósló, sem haldið var 13—17 júní í vor, var mjög merkilegt fyrir ýmsra hluta sakir. par voru saman komnir nær 1000 ungir og gamlir mentamenn af öllum Norðurlönd- um. J>ar voru háðar skemtilegar kappræð- ur um helstu dag- skrármál mentaðra þjóða. Og þar voru haldnar gleðisam- komur, er æskufj ör og lífsgleði, lista- nautn og gróandi vor lögðust á eitt að gera ódauðlegar í minning- unni.Ekkert var spar- að, sem norskt ör- læti og norsk menn- ing gat í té látið, til þess að gera dvöl hinna erlendu gesta sem ánægjulegasta. Háskólinn, höfuð- borgin, æðsta stjórn landsins, skáld og listamenn þjóðarinn- ar keptist um að heiðra þessa fyrstu íillsherjar samkomu norrænna stúdenta um 50 ár. — Af öllu því glæsi- lega og ágæta, sem prýddi þetta mót og gerði það ógleyman- legt þeim, er það sóttu, verður mér einna tíðast hugsað til heimsóknarinnar til lista- mannsins Gustav Vigelands. Hér er hvorki rúm né tök á að minnast þessa andlega þrekmanns sem vert væri. Heilar bækur hafa verið ritaðar um hann og verk hans, þótt hann sé ósæmilega lít- og Gustav Vigeland. ið þektur hér á landi. Hann er vafalaust stórvirkasta höggmyndaskáld, sem Norð- urlönd hafa alið. Borgin Ósló hefir látið gera stórhýsi yfir hann og verk hans. þar vinnur hann í kyrþey að stórkostlegum listaverkum, sem um langan aldur munu bera hróður Norður- landa um allan hinn mentaða lieim. Hann vinnur líkt verk fyr- ir norsku þjóðina og Einar Jónsson fyrir Islendinga. Hver sem kom- ið hefir inn í Statens Museum í'or Kunst í Osló, hefir vafalaust staðnæmst við geysi- stóra lágmynd úr eir eftir Vigeland, er heitir Helvete. Sú mynd er mjög ein- kennandi fyrir list Vigelands, einkum írá hans fyrri dögum. Ofsalegar tilfinning- ar: grimd, hatur, kvalir og örvænting blandast hér saman í ferlegum tryllingi, svo manni hnykkir við. þess kennir ein- mitt víða í verkum Vigelands að hann leggur stund á að gera myndir sínar lifandi, blása í þær krafti ríkra tilfinninga, en hirðir minna um fág- un og snyrti. Fyrir bragðið verkar list hans dátítið hrottalega, en svo er hún líka vandlega laus við alt teprulegt tildur. Mynd sú, sem fylgir þessum línum til fróðleiks um list Vigelands er gerð eftir

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.