Stúdentablaðið - 01.12.1925, Side 17
1925
STÚDENTABLAÐ
ll
lllllllllllillllillllllUilllllHiillli
Upplýsingaskrifstofa
Stúdentaráðsins.
Sumarið 1921 stofnaði Stúdentaráðið
upplýsingaskrifstofu fyrir menta- og
skólamál.
Tilgangur skrifstofunnar er:
a. að útvega þeim, er þess æskja sem
fylstar og áreiðanlegastar upplýsingar
um nám við erlenda háskóla og aðra
æðri skóla, vísinda- og listastofnanir,
fyrirkomulag þeirra, inntöku og notk-
unarskilyrði, lög og námsáætlanir o.
fl. þessháttar, ennfremur upplýsingar
um námskeið.
b. greiða eftir megni götu Islendinga, sem
utan fara til náms, vísinda- eða lista-
iðkana.
e. greiða götu erlendra náms- og vísinda-
manna, sem hér dvelja við nám eða
ferðast um hér á landi.
d. útvega íslenskum og erlendum náms-
og vísindamönnum og stofnunum, er
þess æskja, sem áreiðanlegastar upp-
lýsingar um nám við íslenska skóla og
vísindastofnanir, fyrirkomulag þeirra
o. fl. þessháttar.
Allar upplýsingar veitir skrifstofan
ókeypis; þó skulu spyrjendur greiða burð-
argjald svarbréfa, símskeyti og annan
beinan kostnað".
(Úr reglum fyrir upplýsingaskrifstofuna).
Skrifstofan á allmikið safn upplýsinga-
gagna frá innlendum og erlendum skólum
og vísindastofnunum. (Er þó sumt af því
ver komið en æskilegt væri, vegna ónógra
húsakynna). Stendur skrifstofan í beinu
sambandi við svipaðar stofnanir við há-
skóla í mörgum menningarlöndum Norð-
urálfu og nokkrar í Vesturheimi.
Síðan skrifstofan hóf starf sitt, hafa
leitað til hennar flestir stúdentar, sem ut-
an hafa farið til náms eða annars; hefir
hún sótt fyrir suma um skóla, veitt öðrum
upplýsingar um ferðalög og dvalarkostn-
að, gefið þeim meðmælabréf eða einskon-
ar vegabréf til erlendra stúdentastofnana
eða einstakra manna o. s. frv. Einnig hefir
skrifstofan greitt götu kandidata, em-
bættismanna og nokkurra annara, sem ut-
an hafa farið til náms eða vísindaiðkana
og sem til hennar hafa leitað um aðstoð.
Frá öðrum löndum hafa skrifstofunni
borist ýmsar fyrirspumir um námsskil-
yrði og ferðalög hér á landi. Flestir þeirra
erlendra stúdenta og nokkrir erlendir vís-
indamenn, sem hingað hafa komið á síð-
ustu árum, hafa og notið aðstoðar hennar.
það eru vinsamleg tilmæli skrifstof-
unnar til forstöðumanna og -kvenna allra