Stúdentablaðið - 01.12.1925, Page 25
192f.
STÚDENTABLAÐ
19
jafnlang-an tíma í landi hinna erlendu stú-
denta. Stúdentar kosti þó ferðir sínar
sjálfir.
Frumkvæðið að stúdentaskiftunum á
Lúðvig Guðmundsson. Hann flutti þetta
mál fyrst í félaginu „Germania" um haust-
ið 1920. þar var ákveðið að koma á skift-
um við þýskaland og kosinn einn maður,
dr. phil. Alexander Jóhannesson, í nefnd,
er fyrir þeim skyldi standa. því næst flutti
Lúðvig málið í Stúdentafélagi háskólans
og kaus það annan mann í nefndina, Lúð-
vig Guðmundsson (þá stud. med.). Síðast
sneri Lúðvig sér til Háskólaráðsins og það
bætti við þriðja manni í nefndina, pró-
fessor Guðmundi Hannessyni. Um haustið
1921 komu fyrstu stúdentarnir á vegum
þessarar nefndar til íslands, þjóðverjar
tveir. En er nefndin hafði starfað í eitt
ár, fékk hún mál þetta í hendur Stúdenta-
ráðinu, sem þá var nýstofnað. Hefir Stú-
dentaráðið síðan unnið að stúdentaskiftum
við þýskaland, Noreg og Danmörku. Til-
raunir hafa verið gerðar til þess að koma
á skiftum við Svíþjóð, Sviss, England og
Ameríku, þó að enn hafi eigi árangur bor-
ið. Fyrir þessum skiftum hefir jafnan
staðið sérstök nefnd, Stúdentaskiftanefnd-
in, og hefir Lúðvig Guðmundsson alt af
verið formaður hennar.
Á þessum f jórum árum, sem liðin eru.
síðan fyrstu skiftin komust á, hafa alls
komið á vegum Stúdentaskiftanefndarinn-
ar tólf útlendir stúdentar hingað til lands,
ýmist til náms, viðkynningar eða skemt-
unar. En utan hafa farið á vegum nefnd-
arinnar um fimtán íslenskir stúdentar, þar
af átta á þessu ári.
Mál þetta hefir fengið hinar bestu und-
irtektir víða, bæði utan lands og innan.
Vert er að geta þess til dæmis, að Eim-
skipafélagið hefir stutt mjög að stúdenta-
skiftunum, með því að lækka alt að helm-
ingi fargjöld landa á milli fyrir stú-
denta.
Örófi vetra hefir eyjan vor legið einangr-
uð og afskekt norður í reginhöfum. þeir
fáu, er kunnugt var um tilveru hennar,
gerðu sér oft fáránlegar hugmyndir um
...................... llH.Miír, iiIiIiiT ... .....
Bóndi, sem rekur prestskap í sveit, sest
inn í stofu með nágrannabónda, er nýlega
hefir mist konu sína og vill reyna að
hugga hann. Eftir nokkra stund sjá piltar
prest hvar hann skýtst út úr stofudyrun-
um og sigar gríðarlega á kýr, sem standa
í lieyi þar á túninu. þegar hann kemur
aftur til piltanna, rennir hann augum til
himins og segir: ,,Er það ekki dásamleg-
ur vott um æðri handleiðslu, piltar, að allan
tímann, sem eg sat inni hjá honum Bimi,
þá var eins og því væri stöðugt hvíslað að
mér, að nú færi kýrnar í heyið.