Stúdentablaðið - 01.12.1932, Side 7
STÚDENTABLAÐ
o
inn, en svo setti ég sveiginn á höfuð mér og
Lar hann eins og- sá hinn útvaldi".
Enn hafði Björnson ekki skrifað staf til
blaðs síns og hafði naumast sofið nokkra
heila nótt alla ferðina. En er hann kom
heirn, svaf hann því nær þrjá sólarhringa
samfleytt. Svo reit hann 7 langar blaðgrein-
ar, þrungnar af fjöri og eldmóði. Síðan varp-
aði hann öllum „blaðskrifum“ fyrir borð,
brá sér snöggvast heim, en fór síðan til
Kaupmannahafnar. Hann vildi nú vera um
stund þar, sem „skilningurinn væri meiri og
iistin lengra á leið komin“ en heima í
Noregi.
--o--
Norræna
læknanemamótið
í Danmörku 14,—20. ágúst 1932
í byrjun ágústmánaðar s.l. héldum við 9
íslenzkir læknanemar af stað héðan á leið
ti’ Danmerkur í því skyni, að taka þátt í
móti norrænna læknanema („Nordisk Medi-
cinerstevne"), sem haldið var þar í landi um
miðjan þann mánuð.
Auk okkar stúdentanna voru í förinni
Guðm. prófessor Thoroddsen og frú hans.
Stjórnaði prófessorinn ferðinni og kom fram
fyrir hönd okkar, íslendinganna, á mótinu.
Við lögðum lykkju á leið okkar og kom-
um við í Hull og Hamborg á útleiðinni.
Sjóferðin varð eins og hún gat bezt orðið.
Ægir gerði litlar kröfur og honum var litlu
fórnað, enda voru -/3 okkar ýmist reyndir
„skútumenn" eða gamlir „togarakarlar“. Það
var því ekki að undra, þótt mikið væri um
gleðskap og kátínu á „Dettifossi“ og óspart
sungið um „studentens lyckliga dag“.
Við töfðum ekki nema liðlega hálfan sól-
arhring í Hull og fengum því þar séð aðeins
hið markverðasta, þó aðeins að utan, og það
Islenzku þátttakendurnir á útleið
stappaði nærri að ekkert yrði úr hinum
fyrirhugaða samanburði á enska og þýzka
bjórnum.
I Hamborg höfðum við betri tíma og
bar okkur þar ýmislegt nýstárlegt fyrir
augu. Þótti mér þar mest koma til hins
gríðarstóra Eppendorf-spítala, hinnar risa-
vöxnu hafnar og dýragarðs Hagenbecks.
Eppendorf-spítalinn tekur yfir geysistórt
svæði, er í rauninni þorp út af fyrir sig
með 76 spítalahúsum og rúmum fyrir hátt
á þriðja þúsund sjúklinga. Trjágöng og
trjágarðar eru þar á milli húsanna, svo
n iklir, að öllu meira líkist það skemtigarði
en spítalagarði. 1 garðinum eða görðunum
ríkir kyrð, órofin af skarkala umheimsins,
því spítalinn er sérstæður heimur með sjálf-
stæðri, vísindalegri stjóm.
I Hamborg fór tími okkar í margt annað
en læknisfræðina, því að hvorttveggja var,
að ýmislegt var þar að sjá og ekki ómerki-
legt, og eins hitt, að innan fárra daga áttum
við von á gnægð læknisfræðilegra fyrir-
lestra, sjúkrahússvitjana o. s. frv. á lækna-
nemamótinu í Danmörku.
Þótt sjá mætti merki atvinnuleysis á
korlum og' þó öllu frekar konum á götum
Ilamborgar, þá bar þó hin volduga höfn borg-
arinnar ægilegastan vottinn um atvinnuleys-
ið, • ótelj andi mergð skipa lágu bundin við
hafnargarðana svo að vart mátti sjá á milli