Stúdentablaðið - 01.12.1932, Síða 11
STÚDENTABLAÐ
9
Stúdentar útskrifaðir úr Reykjavíkur-Menntaskóla vorið 1932
Myndin tekin i trjágarði Hressingaskálans Austurstræti 20.
Ceskoslovensko.
Það skröltir og gnötrar, hraðlestin leikur
á reiðiskjálfi, hún þýtur með eldingarhraða
niður aflíðandi halla Bæheimssléttunnar.
Við eygjum ljósahaf framundan, í myrkr-
inu. Eftir stundarkorn er lestin stöðvuð. Allt
er á tjá og tundri; menn ryðjast með töskur
og böggla fram og aftur út um glugga og
dyr.
Við erum í Praha (Prag). Ljósið varpar
fölleitri skímu niður á hattana margvíslegu
í hinu iðandi höfðahafi, en skugga ber á
andlitin.
Brátt dreifist mannfjöldinn. Ég stend á
gangstéttinni fyrir framan hina geysistóru
járnbrautarstöð. Ég hefi gert margar til-
raunir til að spyrja vegfarendur, hvar
næsta gistihhús sé o. s. frv., en þeir hrista
höfuðið og flýta sér burtu. Ég talaði nefni-
lega þýzku. Loks hitti ég lögregluþjón, en
allt fór á sómu leið. Þegar hann hafði muldr-
að nokkur orð til svars við mínu „Guten
Abend“ flýtti hann sér burt, og ég stóð
eftir með töskurnar, sína í hvorri hendi og
horfði hissa á eftir manninum. Þá hitti ég
annan lögregluþj ón, ég yrti á hann, ekki
„Guten Abend“, þvi að reynslan hafði kennt
ír.ér, að það dygði ekki, heldur „Bon soir
Monsiour“. Hverju haldið þið, að maðurinn
í