Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Blaðsíða 13

Stúdentablaðið - 01.12.1932, Blaðsíða 13
STÚDENTABLAÐ 11 hverju landi. Byrja veizlur þessar venjulega með hljómleikum, málverkasýningu eða höggmyndasýningu o. s. frv. Tilgangurinn er nefnilega sá, að kynna útlendingum hina margbreyttu hljómlist og myndlist hins unga ríkis. Þetta verður auðvitað um leið til þess að kynna hina mörgu íulltrúa, hvern fyrir öðrum. Þegar að jólum leið var hafizt handa, bæði í þýzkum og tékkneskum stúd- entafélögunum, því að í Praha eru bæði þýzkir og tékkneskir háskólar, og jafnvel tinn rússneskur. Ég var boðinn á fund í einu þýzka félaginu, sem Víkingur hét, en þar átti þá að taka ákvarðanir um ferðina. Var ákveðið að fara í skíðaferð norður í Eisafjöll, fararstjóri var þá og kosinn og lögð fram áætlun um kostnað, en hann var sem svaraði 20 kr. íslenzkum, með ferðum fram og aftur með járnbrautinni, fæðis- kostnaði og húsnæði í Risafjöllunum í 14 daga. Þeim þótti sjálfsagt, að ég yrði með, en þegar ég sagði þeim, að ég hefði aldrei stig- ið á skíði, urðu þeir steinhissa, „var þetta ekki Arabi frekar en íslendingur“. Nú, ég fór samt með. Við lögðum af stað frá Praha á jóla- dagskvöldið. Það var glatt á hjalla í lestinni um nótt- ina, það var sungið og spilað, og leikið á allskonar hljóðfæri. Ég uppgötvaði þá að ]?arna voru félagar frá fleiri þýzkum stúd- er.tafélögum, frá félaginu Sigurður og Guð- run. Guðrún var félag kvennstúdenta. Þessi nöfn kunna að hljóma einkennilega í eyrum manna, en orsökin er sú að þetta eru Þjóð- verjar, sem tékknesku landamærin hafa lok- að út úr Þýzkalandi. Reyna tékkamir held- ur að eyða þýzkum áhrifum í ríkinu, svo að þjóðverjarnir þurfa stöðugt að vera á varð- bergi um þjóðemi sitt. Lesa þeir því mikið fomþýzkar og fomgermanskar sögur og kveðskap, og kunna Völsungakviðu nálega ut- an að margir hverjir, þeir haf aog seilst til Njálu og Grettissögu og annara forn- íslenzkra rita, sem út hafa komið á þýzku. Við komum kl. 6 um morguninn til Hohen- Elbe, sem liggur við rætur Risafjallanna. Festu menn nú skíðin á sig og héldu af stað upp í fjöllin. Snjór var lítill hið neðra, en jókst þegar ofar dró. Barrskógar miklir klæða hlíðar fjallanna, urðum við því að þræða mjóa skógarstigu upp eftir. Stóðu trén í röðum fram með veginum og hengdu niður greinar og krónu undan snjóþyngslunum; virtust þau hnípin, en þolinmóð bíða hins fjarlæga sumars. Það var bratt upp fjöllin, en samt sóttist leiðin furðufljótt. Sérhver ber sinn bakpoka með potti eða kirnu, matvælum og svefnpoka. Kl. 10 vorum við komnir á áfangastaðinn. Það var Rennerbande (Rennerstaðir), eitt af bændabýlunum í stóru rjóðri í skóginum. Var nú Renner bóndi kallaður út, en hann sagði oss heimila gistingu og beina allan, áttum við að sofa á lofti í húsinu, en mat- reiða og matast í eldhúsi bónda. Húsaskip- un var sú á bænum, að byggingin var öll eitt hús með risi með mæniás þvert á brekk- una, en sneitt af báðum endum mænisins. Var húsinu skipt í tvennt í miðju, í öðrum enda var fjósið, sem hýsti nokkur hænsn og einn hest auk kúnna. Á loftinu uppi yfir fjósinu var hlaða. í hinum endanum var eldhúsið, stærsta herbergið í húsinu. Þar var matreitt, snætt, setið og sofið, en á loft- inu upp yfir því voru tvö smáherbergi, hvít- kölkuð innan, fyrir gesti. Af húsgögnum var þar aðeins einn ofn og heypokum raðað á gólfið eins og rúm leyfði. Þarna sváfum við nú á heypokunum hlið við hlið í svefnpokum okkar, 12 saman í hvoru herbergi. Var ofninn rauðleitur áður tn lagst var til svefns, en á morgnanna var allt frosið, sem frosið gat og þykkt hrím- lag á glugganum. Kl. 8 fóru menn á fætur, tóku kalt bað og klæddust. Þá var snæddur morgunverð- ur og síðan lagt af stað út á fjöllin, í allar áttir. Voru 2—4 menn saman í hóp með nesti til dagsins bakpokanum.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.