Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 16

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 16
8 STUDENTABLAÐ Jón Haraldsson tók saman. Úr verkum Halldórs Kiljans Laxness Höll sumarlandsins Ég man Jní sagðir einu sinni að það sem þú værir hræddastur við af öllu á Sviðinsvík, það væru krakkarnir á götunum, sagði Örn. Svo það er eingin von til að þii hafir ánægju af að hlusta á mig. Ég er krakkarnir á götunum. Ég er krakk- inn sem var alinn upp skurðinum og á girðing- unni, krakkinn sem alt var stolið frá áður en hann fæddist, krakkinn sem var enn eitt óhappið ofan á öll önnur í fjölskyldunni, ein handfylli af sorpi til viðbótar í hauginn þar sem hanarnir standa galandi. En fyrir hragðið þarft þú heldur ekki að tala við mig eins og einginn hafi upp- götvað nauðsyn fegurra heims nema þú. Eg veit alveg eins vel og þú hvað er fegurð og jafnvel hvað er andi, þó þú sért sjálfur Ljósvíkingurinn, en ég sé hara kendur við örn og úlf. Fegurðin, það er jörðin, það er grasið á jörðinni. Andinn, það er himininn með Ijósi sinu yfir höfðum okkar, loftið með þessum hvítu skýum sumars- ins sem dragast saman í flóka og greiðast sundur. Ef það væri til réttlæti í veröldinni þá ætti ég aðeins eina ósk, og hún væri sú að mega liggja uppíloft í grasinu, í þessu himneska Ijósi, og horfa á skýin. En hver sem heldur að fegurðin sé eitthvað sem hann geti notið sérstaklega fyrir sig sjálfan, aðeins með því að yfirgefa aðra menn og loka augunum fyrir því mannlífi sem hann er þáttur af, — hann er ekki vinur fegurðarinnar. Hann endar annaðhvort sem skáld Péturs Þrí- hross eða prókúristi hans. Sá sem ekki berst hvern einasta dag æfi sinnar til hinsta andartaks gegn þeim fulltriium þess illa, gegn þeim lifandi ímyndum þess Ijóta, sem stjórna Sviðinsvíkur- eigninni, hann guðlastar með því að taka sér nafn fegurðarinnar i munn. Tvö úng skáld sitja í grasinu einn hásumardag og tala um mannlifið. Síðan var laung þögn. Örn Úlfar horfir út i fjarska sínu óralángdræga augnaráði, munnvikin dregin niður, andlitið ber svip af ólinnandi þjáníngu. Ljósvíkingurinn situr flötum beinum á jörðinni og reytir upp gras af ákafa, klórar alla leið niður í grassvörðinn, niður í bera moldina, hann er orðinn óhreinn á fíngr- unum. Svo hættir hann snögglega að reyta, lítur upp, horfir á vin sinn hinum bláu hreinu aug- um, og segir i eftirvæntíngarfullri barnslegri ein- lægni: Það þarf afskaplegt þrek til að vera maður. Örn. heldur þú að ég hafi þrek til þess? Þú hugsar urn það í haust þegar ég er farinn, sagði vinur hans. (Bls. 196—19S). Eldur í Kaupinhafn Arnas Arnæus mælti: Herra Úffelen! Mitt hjarta hrærist að sönnu að heyra útlendan mann kunna svo góð skil þeirra dæma sem orðið hafa á lslandi: en þó vor lausnari hafi haldið frá oss mörgum sínum ástgjöfum hélt ég síst þyrfti að frýa min- um landsmönnum minnis. Örlög Ögmundar Skálholtsbiskups og Arasonar Hólabiskups eru og verða sérhverjum lslendíngi næst hjarta með- an aldir renna. Og þó Danakonúngi hafi að vísu enn ekki tekist þrátt fyrir góðan vilja að selja oss mansali er þó ærið aðgert til þess að hans allramildasta hjarta mun í íslenskum sögum og fræðum ókominna tíða eignast sinn verðskuld- unarstað. Maður sem ætlar að kyrkja lítið dýr í greip sinni mun að lokum þreytast. Hann heldur því arms- leingd frá sér, herðir takið um kverkar þess sem má, en það deyr ekki; það horfir á hann; klær þess eru úti. Þetta dýr mun ekki vænta sér hjálpar þó tröll komi með biíðskaparyfirbragði og segist skulu frelsa það. Hitt er lífsvon þess að tíminn sé þvi hailkvæmur og iini afl óvinar þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.