Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 38

Stúdentablaðið - 01.12.1955, Blaðsíða 38
30 STÚDENTABLAÐ IV. Hér hefur verið bent á eitt dæmi til að renna stoðum undir þá skoðun, að leggja ætti meiri rækt við félagsleg vísindi en nú er gert. Ótal fleiri mætti til tína. Oft er talað um röskun á jafnvægi í byggð landsins. Sumir rekja or- sakirnar til mismunandi atvinnuskilyrða, aðrir tala um ólík lífsþægindi og tækifæri til skemmtanalífs. Flutningur fólks milli byggðar- laga var efni doktorsritgerðar, sem íslenzkur maður varði nýlega við erlendan háskóla, en ritið mun ekki hafa verið prentað. Það má nefna, að ítarlegar rannsóknir um ýmis fjöl- skyldumálefni vantar. Enn má minnast á af- brot ungmenna og svo mætti lengi áfram halda. Hagfræði og lögfræði eru þær greinar félags- legra vísinda, sem mest hafa verið stundaðar, og er einnig svo hér á landi. Þó hefur verið minnzt á rit um fólksflutninga innanlands, sem er eftir Jóhannes Nordal. Hannes Finnsson biskup skrifaði bók um mannfækkun af hall- ærum. Jónas Jónasson frá Hrafnagili um ís- lenzka þjóðhætti, Ólafur Davíðsson um leiki, Jón Jacobson og Rannveig Schmidt um manna- siði og ýmsar athuganir er að finna í gömlum annálum, sýslulýsingum og ferðabókum. Um hag lands og þjóðar hafa hins vegar lengi verið haldnar skýrslur, og hefur það verk verið í höndum Hagstofu Islands. Nýlega hafa hag- fræðiathuganir mjög verið auknar og verkum skipt milli hagstofunnar, Framkvæmdabank- ans og nagfræðideildar Landsbankans. Ymsar aðrar stofnanir sinna og þessum málum. Meðal þeirra er laga- og hagfræðisdeild háskól- ans. Hún hefur og verið eina fasta stofnunin hér á landi, sem sinnt hefur vísindarannsókn- um í lögfræði. Sjálfsagt er nokkuð vafamál, hversu nauð- synlegt verður talið, að rannsóknir í félagsleg- um vísindum fari fram á háskólans vegum. Svipaðar tilraunir hafa mistekizt. T. d. hefur sambandið milli skólans og hinnar svonefndu atvinnudeildar hans orðið nafnið tómt — því miður. Ekki verður þó í fljótu bragði séð, að annar aðili sé til að taka þessa þjónustu að sér, en vafasamt, hvort heppilegt er að byrja með sérstakri stofnun í upphafi. Verkefnin eru svo margvísleg, að sennilega er bezt að fikra sig áfram, skapa einstökum vísindamönnum starfsskilyrði, en einskorða ekki verkefnin um I I Vor Nit strýkur vorið vetrarsvefn úr augurn og veldur óróleik í mínum taugum, ]>ví ísa leysir inn til dals og heiða. Þar ætla ég til löngu þráðra veiða. Er silungar í fiskivötnum vaka — ég veit, að einmitt þessir munu taka — er lítil fró að liggja flatur heima og láta sér þar nægja að dreyma, dreyma. Ur fiskisælum hyl sig herðir strengur, en hann skal ekki komast undan lengur, því fallvötn öll í æðum mínum vaxa við umhugsun um þunga, sterka laxa. Sú dýrð, sem fljót míns lands og lygnur geyma I í leynum hjarta míns á einnig heima. j , ug'p mín sál, já upp til hárra heiða. j Mig hefur lengi dreymt að veiða og veiða. j | +------------------------------------------+ of. Þó væri þarna að sjálfsögðu fenginn aðili til að taka að sér ákveðin verkefni, sem fyrir kynnu að koma, líkt og nú er með lagadeild- ina. I háskólanum gætu fræðimennirnir haft samband við ýmsa aðila, er létt gætu störf þeirra, og þeir gætu með kennslu sinni veitt stúdentum, einkum í laga- og hagfræðisdeild, þýðingarmiklar leiðbeiningar og gert þá hæfari til starfanna, sem þeirra bíða. Þau verkefni eru mörg, sem úrlausnar bíða, og háskólinn hefur þar stóru hlutverki að gegna. Rannsóknir og kennsla í félagsvísindum er meðal þess, sem nauðsynlegast er. Upp Ölafur Haukur Ölafsson:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.