Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 3

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 3
STÚDENTABLAÐ 3 studenta ^H>blad 1. tbl. 47. árg. 4. blað starfsárið ’69—'70. Útgefandi: Stúdentafélag Háskóla Islands. Ritstjóri: Ólafur Thóroddsen (ábm). Ritnefnd: Jónas Ragnarsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Sigurður Sigurjónsson. ASsetur blaðsins: Ægisgata 7, sími 26315. Setning, prentun, bókband: Prentsmiðjan Edda h.f. EFNISATRIÐI: Bls. 5—8: Hugleiðingar um nokkur vanda- mál íslenzks nútímamáls, eftir Jón Sigurðsson B.A. Bls. 10—16: Stúdentablað varpar fram spurn- ingunni: „ER ÍSLENZK TUNGA í HÆTTU?“ Spurningunni svara: Árni Þórðarson skólastjóri, Baldur Jónsson lektor, Gísli Jónsson menntaskólakenn- ari, Helgi Þorláksson stud. mag., Indriði G. Þorsteinsson rithöf- undur, Kristján J. Gunnarsson skóla- stjóri, Þorsteinn skáld Jónsson frá Hamri. Svör ofangreindra manna voru skrifleg. Blaðamaður Stúdentablaðs lagði og spurninguna fyrir: Álfheiði Kjartansdóttur húsmóð- ur, frá ritriefnd TIL LÍTILS NEMA................................ ÝMSIR segjast greina váteikn íslenzkri menningu og íslenzkri tungu, en aðrir telja þetta ofsjónir. Veiting Stúdentastjörnunnar dr. Jakobi Benediktssyni til handa leiddi hugann að rökum og mótrökum þessa. Því er spurning Stúdentablaðs, „Er íslenzk tunga I hættu?“, fram borin. Með því er þó ekkert fullyrt um, að Stúdentaakademía hafi haft I huga aðvörun eða ábendingu með veitingunni. ÍSLENZK tunga er afstætt hugtak. Hér verður það vart skilið annan veg en að íslenzk tunga sé það mál, sem talað er I landinu á hverjum tíma og á meðan málið heldur ákveðnum sérkennum um hljóðfræði, setningaskiþan og beygingar og meginhluti lifandi orðaforða þess er af íslenzkri rót. í spurningunni nær orðið ,,hætta“ allt til glötunar þessa. Sér hennar nú einhver merki eða kenna glöggir menn hættubrautir? MÖRG svör greinast til afbrigða og sérhyggju. Ekki verður þó annað ráðið af svörunum í blaðinu en að langt sé í hættu eða ,,hættan“ ekki umtalsverð, — en slíkt afsaki ekki andvaraleysi. Svarendur setja fram gagnrýni, einkum á skólakerfið, og leggja til góð ráð. Þeir taki við, sem til er beint. En ekki verður svo skilið við þetta efni, að þess sé ógetið, að íslenzkri tungu er ekki öll vörn í viðleitni til málverndar og vöndunar. Slíkt er til lítils nema íslenzk æska geti borið virðingu fyrir því, sem íslenzkt er, og njóti sambærilegra lífskjara og tækifæra og eru með öðrum evróþskum þjóðum. ÓTH Gest Þorgrímsson kennara, Ólaf Jensson lækni, og ídu Ingólfsdóttur fóstru, Sigvalda Hjálmarsson blaða- Jón Axel Egils skrifstofumann, mann.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.