Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Side 10

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Side 10
10 STÚDENTABLAÐ Er íslenzk tunga í hættu? Hvers vegna er svo spurt? Einhver grunur eða jafnvel geigur hlýtur að hafa læðzt að þeim ungu möunum, sem Stúdentablaðinu stjórna, að ástæða væri til ótta, annars hefði þessi þýðingarmi'da spurning ekki verið fram borin. Naumast verður spurningunni svarað afdráttarlaust ját- andi eða neitandi. Hún gefur tilefni til að kasta fram öðrum spurningum, sem æskilegt er að fá svarað, áður cn unnt er að svara þcssari viðhlítandi. Bendir eitt eða annað nú þegar til sýkingar eða hrörn- unar á íslenzku máli? Ogrynni er gefið út af prentuðu máli í landinu, blöðuin og bókum. Er þarna yfirleitt um að ræða lélegt mál og spillandi, mengað nýjum erlendum áhrifum? Hvað með talmálið? Tala Islendingar nú al- mennt fátæklegt mál, bjagað og brcnglað? Flestum mun verða ógreitt um svör við þessum hvatskeytlegu spurn- ingum. Engin könnun hefur verið gerð í þessu efni, enda sjálfsagt ekki auðvelt að koma hcnni við. Svör flestra yrðu þó væntanlega þau, að enn hcfði íslenzk tunga ekki látið undan síga, svo til skaða sé, hvorki í mæltu máli né rituðu. Augljóst er eigi að síður, að hættur steðja að úr ýmsum áttum. Samskipti íslendinga við aðrar þjóðir aukast jafnt og þétt. Þjóðlegum verðmætum eykst hætta, eftir því sem þessi samskipti ná til fleiri sviða Jijóðlífsins og verða margslungnari. Erlent mál dynur í eyrum ungra og ald- inna sýknt og heilagt, t. d. í mvndatextum kvikmynda- lnisa og þó einkum sjónvarps, sem er miklu áhrifameira, og sönglagatextum, sem hafa sterk áhrif a. m. k. á börn og unglinga. Dropinn holar steininn. Gegn hættunum er unnið beint og óbeint á ýmsum stöðum. Þar ber skólana að sjálfsögðu hæst. I skólunum er unnið mikið starf og óefað víðast gott til viðhalds og eflingar íslenzkri tungu. Þó skortir þar á heildar skipulag og fastmótað, eins og svo víða vill brenna við hjá okkur, samfara traustu eftir- liti. íslenzkt mál hefur átt hauk í horni, J>ar sem Ríkis- útvarpið er. Frá upphafi þess hefur það stuðlað á ýmsan hátt að gengi íslenzkrar tungu, enda hafa valizt þar til forustu og starfa miklir hæfileika- og áhugamenn um þau mál. Nú er nýr og sterkur áhrifavaldur kominn til sög- unnar, sjónvarpið. Er engin ástæða til að ætla, að ]>að finni ekki til ábyrgðar sinnar og skyldu í þessu efni og láti sinn hlut eftir liggja. Á atómöld og geimferða skellur nú holskefla raunvís- inda yfir allt mannkyn. Þessi nýju fræði og merku hafa brotið sér braut hingað norður á hjara veraldar og ryðja sér til rúms í þjóðlífinu og þá ekki sízt í Háskóla Islands, og mun flestum finnast mál til komið. Brauti-yðjendur og merkisberar nýrra vísinda og fræða hafa sérstökum skyld- um að gegna gagnvart islenzkri tungu. Heyrzt hefur bryddað á, að íslcnzkt mál væri til tafar og óþurftar, er kenna Jiyrfti og kynna hin nýju raunvísindi. Sennilega er hér aðeins um ungæðislegt tal að ræða, stríðni, en ekki skoðun. Gott er að hafa í liuga orð Einars Benediktssonar: „Ég skildi. að orð er á íslandi til um allt, sem er hugsað á jörðu.“ Islenzk tunga er varla enn í verulegum háska stödd, cn blikur era á lofti og sumar allógnandi. Veltur því á

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.