Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Síða 16

Stúdentablaðið - 01.01.1970, Síða 16
16 STÚDENTABLAÐ Sigvaldi Hjálmarsson blaðamaður: Ég vona ekki. Þess ber að gæta. að ekki er dæmalaust að þjóðir glati tungu sinni. Ég er þó að vona að viðnámsþrek íslenzkunnar sé tölu- vert. Við megum ekki missa sjónar á því, að íslenzk tunga liggur undir sífelldri skothríð frá annarri tungu, enskunni, sem útaf fyrir sig er ágæt tunga og næsta gagnleg í næsta hrað- minnkandi heimi, sem maður vonar að sé á leiðinni að verða að einni heild. En við erum líka fáir og enskumælandi þjóðirnar stórar. Enskan dynur á okkur í sjónvarpi og kvikmyndahúsum, við lesum ensku meir en aðrar tungur, fjöldi manna kann ensku, að minnsta kosti eitthvert hrafl, og sjálfsagt þykir að leggja við hana skylduga rækt, enda við á því svæði heims, þar sem hún er mest notuð í alþjóðaskiptum. Svo gæti farið, og á því bólar raunar þegar, að við tökum að hugsa í og með á ensku og þurfum því að leita íslenzkra orða og orðatiltækja yfir hugtök og hugtakasambönd, sem okkur eru töm úr ensku, þannig að móðurmálið verður á okkar vörum að vissum parti þýðing en ekki móð- urmál. Framandi málbragð getur með þeim hætti komið á ísenzkuna og hún skemmzt innanfrá. Ég óttast ekki svokallaðar slettur. Þær íslenzkast af sjálfu sér eða hverfa. Allt veltur á notkun málsins. Ef Jón Axel Egils skrifstofumaður: Ef skilja á spurninguna þannig, að íslenzkan sé að tortímast, svara ég neitandi. Sé átt við áhrif frá öðrum tungum, efast ég um, að hún sé í hættu, en sé átt við breytingu, þ. e. styttingu orða, nýyrði, merkingar- færslur o. fl. þ. h., svara ég játandi. Hugsanavillur og latmælgi tröll- ríða íslenzkri tungu, sérstaklega hjá ungu fólki og átrúnaðargoðum þess, „pop“hljómsveitir flytja afbakaða ís- lenzku í söngljóðum, sem hljóma í tíma og ótíma í „ríkisútvarpi“, og ekki má gleyma öllu því ófremdar- málfari, sem „sálarmubla“ þjóðar- innar spýr yfir landsins lýð. Skólarn- ir eiga líka. sína sök, þeir leggja ekki nógu mikla rækt við daglegt mál og að auka orðaforða nemendanna og kenna þeim að tjá hugsanir sínar. Þar er alltaf staglazt á þessari eilífu málfræði, kenndar beygingar ýmissa orða, sem eru svo aldrei notuð mörg hver, vegna þess að fólk veit ekki hvenær þau eiga við. hún er einföld og lifandi getur jafn- vel tunga lítillar þjóðar staðið af sér miklar raunir. Tunga lifir ekki enda- laust á því, sem var skrifað fyrir þúsund árum, hennar líf er það, sem talað er í dag. Gestur Þorgrímsson kennari: Mér finnst tungan ekki fyrst og fremst í hættu stödd af erlendum áhrifum, heldur er ekki lögð nóg rækt við að vinna hana upp innan frá. Hins vegar álít ég, að í fagmáli sé gengið of langt í því að útrýma erlendum orðum, sem geta tekið ís- lenzkum beygingum. Frá kennslu- fræðilegu sjónaimiði veldur þetta erfiðleikum. Nýjar og nýjar bækur umturna fagheitafræðinni. Það þarf endilega að finna ný heiti frá einu skólastiginu til annars. Hættan staf- ar frá því, að það er ekki lögð rækt við að þjálfa þá gömlu íþrótt að segja skýrt og skilmerkilega frá. Einnig hefur rímíþróttin liaft ákaf- Iega mikla þýðingu fyrir þróun máls- ins. Þau erlendu áhrif, sem hafa áhrif á tunguna, eru fyrst og fremst fólgin í enskum dægurlagatextum. Tónfall málanna er ólíkt, og þeir, sem syngja mikið á ensku, beita ósjálfrátt sama tónfallinu, cr þeir syngja á íslenzku og hafa rangar áherzlur á orðum og setningum. Svo má líka nefna álagið á íslenzkt námsfólk á framhaldsstigi. Ef fólk ætlar sér að skila því, sem af því er krafizt, verður það að vinna 12—14 tíma á dag með skóla- setunni, og þá er lítill tími aflögu til lestrar á öðru en því, sem þarf að lesa undir próf.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.