Stúdentablaðið - 01.05.1973, Page 1
EFNI BLAÐSINS:
Rauð verkalýðseining 1. maí.
8. þing Æskulýðssambands tslands.
Viðtöl við Fótinn og Baldur Kristjánsson.
Grein um Menntamál eftir Árna Blandon.
Pistill um gosið í Eyjum.
Niðurlagið á grein Alexöndru Kollontaj,
og margt fleira.
Rauð verkalýis-
f byrjun apríl hafði Fylking-
in forgang um að efna til
fundar um hugsanlegar að-
gerðir 1. maí. Voru boðaðir
á fund í húsakynnum hennar
ýmsir þeir aðilar, sem Fylk-
ingin taldi að gætu unnið
saman að mótun stefnugrund-
vallar, og framkvæmd þessara
aðgerða, og voru þar fulltrúar
frá SHÍ, SÍNE, INSÍ, hópur
Dagsbrúnarverkamanna, hópur
Vélskólanema, fulltrúar Sósíal-
istafélags Reykjavíkur, Rót-
tæka félagsins í M.T., Víetnam-
nefndarinnar auk ýmissa ann-
arra sem lítið komu við sögu.
Fulltrúar Fylkingarinnar lögðu
fram uppkast að málefnalegri
samþykkt, sem var síðan rætt
og gagnrýnt. Var ákveðið að
mynda svonefnda 1. maínefnd
Rauðrar Verkalýðseiningar.
Fljótlega kom í íjós að
meirihlut'i var fyrir því, að
taka KSML með í umræðurn-
ar. Var það reynt, en fulltrú-
ar þeirra gerðu lítið annað en
kasta skít í aðra aðila, og end-
uðu viðræður við þá á því, að
þeir buðu 1. maínefnd Rauðr-
ar Verkalýðseiningar að taka
þátt í Rauðri einingu KSML.
Því boði var að sjálfsögðu
hafnað, og gengu þá fulltrúar
KSML af fundi. Sósíalistafé-
lagið lagði fram málefnaplagg,
þar sem hvergi var minnzt á
landhelgismálið, en var samt
í rauninni uppkast að atriðum
samhljóða jæim sem nefndin
hafði áður samið. Töldu aðrir
að það mál yrði að taka til
meðferðar, sem eitt stórkost-
legasta dæmið um stéttasam-
vinnustefnu verkalýðsforust-
unnar og rikisstjórnarinnar.
Gerði Sósíalistafélagið þetta að
ágreiningsefni, og hættu við
aðild að aðgerðum á þeim for-
sendum að ekki var fallist á
þeirra sjónarmið.
Fljótlega sýndi sig að ekki
treystu allir sér til að eiga
fulla aðild að Rauðri verka-
lýðseiningu, t.d. Víetnamnefnd-
in, SHÍ, SÍNE og INSÍ. en
þessir aðitar hafa þó ákveðið
að styðja aðgerðirnar og beina
því til félagsmanna sinna, að
taka þátt í þeim. Stjórn SHf
hyggst hinsvegar leggja það
fyrir Stúdentaráðsfund, hvort
SHf eigi fulla aðild að
aðgerðunum. Það sem hér fer«-
á eftir, er málefnalegur grund-
völlur Rauðrar verkalýðsein-
ingar:
GEGN STÉTTASAMVINNU
VERKALÝÐSAÐALSINS!
Með stéttasamvinnustefnu
sinni hefur verkalýðsforystan
gengizt undir samábyrgð með
auðvaldinu og ríkisvaldinu á
þeirri gengisfellingu og verð-
bólguöldu, sem nú gengur yfir
þjóðina. Þannig hefur hún
tekið ábyrgð á þeirri stórfelldu
kaupránsherferð og eignatil-
færslu, sem veitir stóreigna-
mönnum og broskurum drjúg-
an verðbólgugróða. Verkalýðs-
forystan hefur jafnvel gengið
svo langt að lýsa því yfir að
verðbólga eða atvinnuleysi séu
einu valkostir verkalýðsins í
stéttabaráttunni. Þetta eru ekki
valkostir verkalýðsins, heldur
Framhald á 11. síðu.
I V.
.
á
manna
Þann 15. marz fóru fram kosn-
ingar til stúdentaráðs. Sjálfkjör-
ið var í þremur deildum, Guð-
fræðideild, Læknadeild og Þjóð-
félagsfræðideild: í öðrum deild-
um var kosið. Skiptast hlutföll
þannig í ráðinu eftir þessar
kosningar að vinstri menn , telj-
ast hafa tvo þriðju Stúdentaráðs
með sér og þar með meirihluta.
Fóru fram nokkrar umræður um
skipan stjórnar milli hinna
tveggja andstæðu hópa. Bauð
meirihlutinn minnihlutanum
eitt sæti í stjórninni, þ. e. a. s.
gjaldkerastöðu Stúdentaráðs, og
þótti lýðræðislega að staðið.
Minnihlutinn taldi taldi;sig';hins
vegar ekki getað unað við færri
en tvo menn í stjórn, eða engan
að öðrum kosti. Fóru leikar svo,
að meirihlutinn skipaði stjórn-
ina einhliða. Er því vinstri stjórn
við völd í ráðinu núna og Hall-
dór Ármann Sigurðsson formað-
ur þess.
Davíð
Oddsson
formaður
dansnefndar
Þau tíðindi bárust ritstjóra Stúdentablaðsins nýlega,
að stjórnarkjör og aðalfundur Stúdentafélagsins hefði átt
sér stað fyrir skömmu, og að Davíð Oddsson hefði verið
kosinn formaður þess. Þó að félagið sé nú orðið ekki
annað en dansnefnd, sem sér um Rússagildi og Vetrar-
fagnað, þótti ástæða til, að hafa samband við Davlð í
síma og fá nánari fréttir af kosningunum. Aðspurður
kvaðst Davíð ekki muna hvenær kosningin fór fram, en
sagði fundinn hafa verið haldinn í 7. kemislustofu Há-
skólans. Ekki mundi Davíð heldur, hvað margir hefðu
verið á fundi, en kvað samt fáa hafa mætt. Hann var
spurður hvar fundarboðið hefði verið auglýst, og sagði
hann það hafa verið á .töflu, einhversstaðar í anddyri
Háskólans. .Davíð sagði, að auglýsingin hefði verið
hengd upp með löglegum fyrirvara eða u.þ.b. sjö dögum
fyrir fundinn. Hann var spurður hverjir sætu í stjórn
með honum, en hann.sagðist þá vera svo upptekinn, að
hann mætti ekki vera að því að telja þá upp. Að end-
ingu var hann inntur éftir því, hvort hægt myndi, að
nálgast lög félagsins einhversstaðar, en hann sagðist
ekki hafa þau sjálfur og vísaði á fyrirrennara sinn í
starfi, Friðrik Pálsson, sem ekki var staddur í borginni
þegar þetta var.
Ritstjóri blaðsins gerði sér það síðan að leik að ganga
á milli manna, sem sátu að snæðingi í mötuneyti stúd-
enta, og spurði þá,- hvort þeir myndu eftir þessum kosn-
ingum. Enginn þeirra, sem spurðir voru, mundi eftir
þeim, né kannaðist nokkur þ ;irra við, að hafa séð þær
auglýstar eða heyrt á þær minnst.
Er því hér-með auglýst eftir mönnum, sem sáu aug-
lýsinguna eða - voru viðstaddir aðalfund dansnefndar-
innar.
30. marz voru svo kosningar
til Háskólaráðs. Var mun meiri
atgangur í þeim kosningum en
hinum. Fóru- leikar svo- að- vinstri
menn báru þar algeran sigur úr
býtum og komu að báðum sín-
um fulltrúum og,- tilnefndum
varafullitrúum þeirra. Baldur
Kristjánsson var kosinn fulltrúi
til tveggja ára. Fékk hann 722
atkv. Garðar Mýrdal var kosinn
til eins árs og fékk 727 atkv.
Varamenn þeirra voru kosin þau
Erlingur Sigurðsson og Sigríður
Stefánsdóttir. Frambjóðendur
hægri manna voru Davíð Odds-
son til tveggja ára (fékk 580
atkv.) og Sigfús Jónsson til eins
árs, en hann fékk 533 atkv.
Varamannaefni hægri manna
voru þau Hannes SLgfússon og
Árdís Þórðardóttir.
Rúmlega ■ 1330 manns munu
hafa tekið þátt f þessum kosn-
ingum, • og má það "teljast mjög
góð kjörsókn: Af þessu má ætla,
að línurnar hafi' skýrst nokkuð
um skiptingu stúdenta eftir
flokkspólitískum línum (þ. e. í-
hald og vinstri menn), og að
kosningarnar gefi nokkuð góða
mynd af þeirri skiptingu.
Málflutninigur beggja aðila
fyrir þessar kosningar var allur
skriflegur. Hófst hann mánudag-
inn 19. apríl með því að vinstri
menn gáfu út dreifibréf, þar
sem frambjóðendur þeirra voru
Irynotir og drepið á fyrri störf