Stúdentablaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 12
Chicago-flugið hefst 2. maí. Með því erum við komnir í einni
lotu vestur í miðríki Bandaríkjanna, þaðan, sem liggja gagn-
vegir tii helztu l'slendingabyggða í Bandaríkjunum og Kanada
og til stórborga svo sem Minneapoiis, Los Angeles, San Fran-
cisco, Seattle, og Vancouver.
Nýtt landnám er hér með hafið í flugi Loftleiða. Stærstu ís-
lendíngabyggðirnar í Bandaríkjunum og Kanada eru þar með
komnar nær íslandi.
Kaupsýslumenn eiga tíðum erindi til Chicago og hinna stóru
iðnaðarborga í næsta nágrenni hennar. Chicago-flug Loftleiða
sparar þeim tíma og peninga. Ferðamenn í skemmti- og kynnis-
ferðum, sem sjá vilja það, sem helzt einkennir hið daglega
líf f Bandáríkjunum, eiga erindi til Miðríkjanna. Þar er hin
eiginlega Ameríka, segja sumir.
Flogið verður fimm sinnum í viku milli íslands og Chicago
beina leið í allt sumar.
, ii
LOFTUIÐIR