Fréttablaðið - 22.09.2009, Side 1

Fréttablaðið - 22.09.2009, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI ÞRIÐJUDAGUR 22. september 2009 — 224. tölublað — 9. árgangur Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ég reyni nú að borða og hugsa um hvað ég set ofan í mig, pæli í því hvort það sé lífrænt og vist-vænt. Ég fór eiginlega að velta þessu fyrir mér eftir að ég gerð-ist grænmetisæta,“ segir Hanna Guðmundsdóttur, starfsmað íHeilsuhú i ákvað að gefa mér þrjá mánuði í þetta. Ætlaði að byrja á því að taka út svínakjöt og rautt kjöt, hafði reyndar aldrei verið hrifin af svínakjöti. Svo átti fuglakjötog fiskur að ve Hún segist ekki hafa upplif-að næringarskort eða orkuleysi eftir að hafa hætt neyslu kjöts ogfisks gagnstætt því seh Ánægð með ákvörðunina Hanna Guðmundsdóttir hefur verið grænmetisæta í tæp sjö ár. Hún segist síður en svo sjá eftir að hafa breytt um lífsstíl. Ákvörðunin hafi verið af siðferðilegum toga og haft alls kyns jákvæð áhrif á heilsuna. Hanna segist hafa fengið misjöfn viðbrögð þegar hún gerðist grænmetisæta. „Flestir voru jákvæðir, enda voru margir í kringum mig í svipuðum hugleiðingum. Þar á meðal nánustu ættingjar mínir.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Á RÁS FYRIR GRENSÁS er söfnunarátak fyrir endurhæfingardeild Landspítalans. Ríkissjónvarpið verður með dagskrá tileinkaða söfnuninni næsta föstudagskvöld klukkan 19.35. Fjöldi gesta kemur fram, tónlistar- menn og aðrir skemmtikraftar. Umsjónarmenn eru Eva María Jónsdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Dr Hauschka snyrtinámskeið fyrir konur 40+ Styrking á starfsemi húðarinnar með náttúrulegum jurtablöndum. Farið verður í umhirðu húðarinnar fyrir þroskaða húð (40+) og hvað gera skuli fyrirhverja árstíð og hvernig hægt sé að undirbúa húðina með sérstökum jurtum sem styrkja vefi hennar og stuðla þannig að heilbrigðu útliti. Meðan á námskeiðinu stendur verður veittur 15% afsláttur af Dr Hauschka snyrtivörum og 10% afsláttur af öðrum vörum.Leiðbeinandi: Jóhanna BenediktsdóttirAðgangur er ókeypis. Námskeiðið verður haldið í Yggdrasil fimmtudaginn 24. september l. 20:00 – 21:30. Upplýsingar og skráning eru k á netfanginu yggdrasill@yggdrasill.is eða í sím 56 VEÐRIÐ Í DAG Atvinnuleysisvandinn „En ef það er eitthvert málefni sem kallar á þjóðarátak núna þá er það baráttan við atvinnuleys- ið“, skrifar Sverrir Jakobsson. Í DAG 14 HANNA GUÐMUNDSDÓTTIR Fannst lítið mál að gerast grænmetisæta • heilsa Í MIÐJU BLAÐSINS Rifjar upp gamla takta Ragnar Bjarnason fagnar 75 ára afmæli með tónleikum í Laugardalshöll- inni. TÍMAMÓT 16 Mikið úrval af upphengdum salernum Baldursnesi 6 Akureyri Sími 414 1050 Smiðjuvegi 76 Kópavogi Sími 414 1000 Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá10 -15 ATLI ÖRVARSSON Semur tónlist fyrir endurgerð Karate Kid Mikið að gera í borg englanna FÓLK 26 MILOS FORMAN Langaði að taka upp kvikmynd á Íslandi Áhugasamur um einvígi aldarinnar FÓLK 20 Viðsnúningur Ísleifur Þórhallsson fær ekki frið fyrir þýðendum sem vilja þýða Andkrist Lars von Trier. FÓLK 26 HEILBRIGÐISMÁL Tæki sem notað er til að útbúa geirvörtu á brjóst kvenna sem hafa farið í brjósta- uppbyggingu vegna brjósta- krabbameins hefur ekki verið til á Landspítalanum. Kristján Skúli Ásgeirsson skurð- læknir, sem hefur sérhæft sig í skurðmeðferð brjóstakrabba- meina, segir það reynslu sína að ávinningur af því sé mikill og til- kostnaður vegna þess fremur lítill. Kristján fékk til liðs við sig hóp kvenna sem hafa í sjálfboðastarfi unnið að bættri þjónustu við sjúk- linga. Það eru konur sem neita að láta niðurskurð hins opinbera stöðva framþróun á þjónustu við sjúklinga og þótti ótækt að hið opinbera niðurgreiddi ekki þennan hluta skurðmeðferðarinnar. - kdk / sjá Allt í miðju blaðsins Ný meðferð á Landspítala: Húðflúra geir- vörtur á konur EFNAHAGSMÁL Peningastefnu- nefnd Seðlabankans tilkynnir um ákvörðun sína varðandi stýrivexti á fimmtudaginn. Næsti auglýsti vaxtaákvörðunardagur er 5. nóv- ember. Samkvæmt stöðugleikasáttmálan- um eiga stýrivextir að vera komn- ir undir 10 prósent fyrir 1. nóvem- ber. Þeir eru nú 12 prósent. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, seg- ist í besta falli vonast eftir því að vextir verði óbreyttir. Það lesi hann út úr orðum Más Guðmunds- sonar seðlabankastjóra í nýleg- um viðtölum. Hann segist óttast að sáttmálinn komist í uppnám náist markmið varðandi vaxta- stefnu ekki á tilsettum tíma. „Það ræðst á fimmtudag hvort vextir muni lækka eða ekki og ég hygg að sú ákvörðun muni að sjálf- sögðu hafa áhrif á okkar viðsemj- endur, ég á ekki von á öðru.“ Hann minnir á að Samtök atvinnulífsins hafi verið nálægt því að slíta við- ræðum í júní vegna vaxtastefnu stjórnvalda, en samningar hafi náðst um að skapa aðstæður til að lækka stýrivextina. Í því skyni hafi endurskoðun kjarasamninga verið frestað. „Þessi tími sem nú er liðinn hefur farið í eitt mál og það mál er nánast komið á byrjunarreit,“ segir Gylfi, og vísar þar til Ice- save. Hannes G. Sigurðsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir miður að lækkun vaxta sé ekki á áætlun. Þá hafi áætlun Seðlabankans um afnám gjaldeyrishafta valdið von- brigðum, hún hafi verið allt of var- færin. Hannes segir að menn muni meta stöðuna í október og skoða hvort sáttmálinn muni halda. Árni Stefán Jónsson, formaður BSRB, segir nokkuð hafa skort á samráð af hálfu ríkisstjórnarinn- ar um sáttmálann. Þá segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, of margt vanta upp á til að uppfylla ákvæði sáttmál- ans. - kóp / sjá síðu 12 Stýrivextir gætu sett sáttmálann í uppnám Samkvæmt stöðugleikasáttmála eiga stýrivextir að vera í eins stafs tölu fyrir 1. nóvember. Eina auglýsta vaxtaákvörðun fyrir þann tíma er á fimmtudag. Sátt- málinn gæti verið í uppnámi náist markmiðin ekki. Kvartað yfir hægagangi. ÚTFLUTNINGUR Allt stefnir í að um þriðjungur af haustframleiðslu lambakjöts verði fluttur úr landi. Það er talsverð aukning frá í fyrra, að sögn Sigurð- ar Eyþórssonar, framkvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda. Einkum tvennt ræður aukinni spurn eftir íslensku lambakjöti í útlöndum. Annars vegar miklir þurrk- ar í Ástralíu og hins vegar breyttar áherslur bænda á Nýja-Sjálandi sem hafa í auknum mæli snúið sér að mjólkurframleiðslu. Sigurður segir veikt gengi íslensku krónunnar gera það að verkum að gott verð fáist fyrir lamba- kjötið. Áður fyrr hafi kjöt verið selt úr landi til þess einvörðungu að losna við það en nú sé útflutningur- inn góð og mikilvæg búbót. Helstu markaðir eru í Bretlandi, Noregi, Færeyj- um, Spáni og í Bandaríkjunum. Mest selst af frosnu kjöti en nokkuð af fersku og þá til Bandaríkjanna. Nákvæmra talna um útflutninginn er að vænta eftir mánaðamót. - bþs Áföll og breyttar áherslur í útlöndum liðka fyrir auknum útflutningi á lambakjöti: Þriðjungur lambakjöts fluttur út 4 6 9 3 3 HÆGUR Í dag verður yfirleitt hæg breytileg átt. Bjart framan af degi syðra annars skýjað með köflum og þurrt að mestu. Þykknar upp sunnan til síðdegis með vætu. Hiti 2-10 stig mildast syðra. Næturfrost. VEÐUR 4 Heimir veðjaði á hann Atli Guðnason hefur átt frábært sumar með FH-ingum. ÍÞRÓTTIR 22 BÓKMENNTIR Litlu munaði að Boris Jeltsín, fyrrum forseti Rússlands, yrði handtekinn í gestahúsi Hvíta hússins í opinberri heimsókn árið 1995. Jeltsín rangl aði þá ofurölvi niður í kjallara húss- ins og öryggis- verðir þekktu hann ekki. Þetta kemur fram í bók þar sem sagnfræðing- urinn Taylor Branch birtir samtöl sem hann átti við Bill Clinton meðan hann var enn Bandaríkjaforseti. USA Today greinir frá þessu. Einnig kemur fram í bókinni að kvöldið eftir hafi leyniþjónustu- menn fundið Jeltsín á nærbrók- unum á Pennsylvania Avenue, þar sem forsetinn reyndi að stöðva leigubíl. Jeltsín gaf þá skýringu að hann hefði langað í pitsu. - kg Fyrrum forseti Rússlands: Var næstum handtekinn í Hvíta húsinu BORIS JELTSÍN BRÆÐUR Í BJÓRNUM Þessir þýsku tvíburar voru í stuði þegar þeir fylgdust með skrúðgöngu á Október-hátíðinni í München í Þýskalandi í gær. Bjórhátíðin nýtur sem fyrr gríðarlegra vinsælda drykkjuáhugamanna hvaðanæva að úr veröldinni. Búist er við sex milljónum gesta í ár. MYND / NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.