Fréttablaðið - 22.09.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.09.2009, Blaðsíða 2
2 22. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR Innsogslyf STJÓRNMÁL „Peningar eru mesta böl sem grasrótarstarf getur feng- ið yfir sig. Þeir drepa sköpunar- kraftinn. Þess vegna erum við bara fegin því að þeir verði eftir í Borg- arahreyfingunni,“ segir Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Hreyfingarinnar, sem klauf sig úr Borgarahreyfingunni í síðustu viku. Stjórnmálasamtök sem fá mann kjörinn á Alþingi fá árleg fram- lög úr ríkissjóði í hlutfalli við atkvæðamagn. Til skiptanna þetta árið voru, samkvæmt fjárlögum, rúmar 370 milljónir. Koma tæpar 27 milljónir króna í hlut Borgara- hreyfingarinnar. Fjallað er um framlögin í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka sem samþykkt voru í desember 2006. Sigurður Eyþórsson, þáver- andi framkvæmdastjóri Framsókn- arflokksins, var formaður nefnd- arinnar sem samdi frumvarpið til laganna. Hann segir hugsunina meðal annars hafa verið að gera mönnum kleift að tala við kjósend- ur sína á kjörtímabilinu og upplýsa þá um störf sín á Alþingi. Borgara- hreyfingunni beri að fá peningana en staðan sé í meira lagi undarleg þegar engir séu þingmennirnir. „Ég viðurkenni að nefndin gerði sér ekki grein fyrir að þetta gæti gerst. Við ímynduðum okkur ekki að stjórnmálaflokkur gæti staðið uppi þingmannslaus á miðju kjör- tímabili,“ segir Sigurður. Ágúst Geir Ágústsson, skrif- stofustjóri í forsætisráðuneytinu, er formaður nefndar sem skip- uð var til að endurskoða lögin um fjármál stjórnmálasamtaka. Hann segir ríkisframlögin til skoðunar eins og annað í lögunum. „Það er sjálfsagt að skoða þetta í ljósi þess- arar stöðu,“ segir Ágúst Geir. Auk framlaga til stjórnmála- samtaka fá þingflokkar sérstök framlög úr ríkissjóði. Þingflokkur Hreyfingarinnar fær rúmar fjór- ar milljónir króna. Þeim peningum er ætlað að standa undir ýmsum tilfallandi kostnaði, svo sem aðkeyptri sérfræðiráðgjöf. Þráinn Bertelsson, þingmaður utan flokka, fær um átta hundruð þúsund krón- ur á ári í slíkar greiðslur. Birgitta Jónsdóttir segir flokk sinn ætla að berjast fyrir því að öll opinber framlög til stjórnmála- flokka verði lækkuð. Óverjandi sé að moka peningum í flokkana þegar efnahagsástandið er eins og það er. Um framlögin er fjallað í sér- stökum lögum um fjármál stjórn- málaflokka en fjárhæðir eru ákveðnar árlega í fjárlögum. Miðað við framlög ársins 2009 nema rík- isútgjöld til stjórnmálaflokka rúm- lega 1,7 milljörðum króna á kjör- tímabilinu. bjorn@frettabladid.is Birgitta er fegin að losna við peningana Borgarahreyfingin heldur að óbreyttu árlegum greiðslum úr ríkissjóði upp á tæpar 27 milljónir króna. Þingflokkur Hreyfingarinnar fær rúmar fjórar millj- ónir á ári. Lögum um fjármál flokka kann að verða breytt í ljósi nýrrar stöðu. ÚRSÖGNIN KYNNT Þingmenn Borgarahreyfingarinnar upplýstu um úrsögn úr flokkn- um og stofnun Hreyfingarinnar á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Við ímynduðum okkur ekki að stjórnmálaflokk- ur gæti staðið uppi þingmanns- laus á miðju kjörtímabili. SIGURÐUR EYÞÓRSSON GEGNDI FORMENNSKU Í NEFND UM FJÁRMÁL STJÓRNMÁLAFLOKKANNA. BANDARÍKIN, AP Yvo de Boer, framkvæmdastjóri rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslags- mál, segir að Kínverjar ætli sér stóra hluti í baráttu heimsbyggðarinnar gegn losun gróðurhúsaloftteg- unda og hlýnun jarðar. „Bæði Kínverjar og Indverjar hafa kynnt mjög metnaðarfull áform í loftslagsmálum. Hvað Kín- verja varðar eru áformin það metnaðarfull að þeir gætu hæglega tekið forystuna í baráttunni gegn loftslagsbreytingum,“ sagði de Boer í gær. „Stóra spurningarmerkið er hins vegar Bandaríkin.“ Leiðtogar hundrað ríkja koma saman í New York í dag í þeirri von að blása megi nýju lífi í samninga- viðræður um aðgerðir í loftslagsmálum. Í desem- ber stendur síðan til að nýr samningur verði lagð- ur fram á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn, en vonir höfðu dvínað um að sá samningur yrði að veruleika. Hu Jintao, forseti Kína, ætlar að kynna hin metn- aðarfullu áform í dag. Einnig hyggst Barack Obama Bandaríkjaforseti flytja ræðu á leiðtogafundinum í dag. Saman bera Kínverjar og Bandaríkjamenn ábyrgð á 40 prósentum af útblæstri gróðurhúsaloft- tegunda. - gb Leiðtogar hundrað ríkja hittast til að ræða loftslagsmál í New York: Kínverjar taka forystuna YVO DE BOER Framkvæmdastjóri rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar segir Kínverja ætla að taka forystuna. NORDICPHOTOS/AFP BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti gerir sér litl- ar vonir um árangur af fund- um sínum í New York í dag með Mahmoud Abbas, forseta Palest- ínustjórnar, og Benjamín Net- anjahú, forsæt- isráðherra Ísra- els. Þeir Abbas og Netanjahú koma báðir til New York í tilefni af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, sem hefst á morgun. Obama ætlar að hitta þá fyrst hvorn fyrir sig en síðan báða saman. Tilgangur fundanna er að koma aftur í gang friðarvið- ræðum milli Ísraela og Palestínu- manna. - gb Obama, Abbas og Netanjahú: Obama gerir sér litlar vonir BARACK OBAMA Ísleifur, er þetta djöfulleg staða sem þið eruð í? „Nei, það er búið að rætast aldeilis úr þessu.“ Sagt var frá því í Fréttablaðinu í gær að enginn fengist til að texta kvikmynd- ina Antichrist eftir Lars von Trier vegna óhugnaðarins sem í henni birtist. Í kjölfar þess hefur hins vegar fjöldi þýðenda sett sig í samband við Ísleif B. Þórhallsson hjá Græna ljósinu og boðið fram krafta sína. EFNAHAGSMÁL „Málið er í vinnslu, en engar formlegar viðræður hafnar. Við erum enn að undir- búa okkur hér heima,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra um viðræð- ur við Seðla- banka Evrópu um aðstoð við að koma á eðli- legum markaði með íslensku krónuna. Að sögn Gylfa hefur ekki verið ákveðin tíma- setning fyrir slíkar viðræður. Stefnan hefði verið sett á haustið og því búist hann við að haft verði samband við bankann fljótlega. Skynsamlegast sé að ganga frá Icesave og fleiri málum áður en slíkar umræður verði hafnar. „Við verðum að reyna að vinna þetta með þeim hætti að meiri líkur en minni séu á að afraksturinn verði ásættanlegur,“ segir Gylfi Magn- ússon. - kg Viðræður um krónuna: Undirbúningur stendur enn yfir GYLFI MAGNÚSSON SVEITARSTJÓRNIR Aðgerðarhópur borgarfulltrúa minnihlutans og meirihlutans í Reykjavík ræðir nú þann möguleika að krefjast meiri arðgreiðslna af fyrirtækjum borgarinnar. Afla á allt að tveggja milljarða króna aukalega. Hugmyndin er sú að Orkuveita Reykjavíkur myndi greiða lang mest eða 1.300 milljónir króna. Arðgreiðslur Orkuveitunnar til borgarinnar í fyrra námu um 800 milljónum. Þá stendur til að Faxaflóahafnir greiði arð í fyrsta skipti. Guðlaugur Sverrisson, formað- ur stjórnar Orkuveitunnar, segir að ekkert erindi um auknar arð- greiðslur hafi borist fyrirtækinu. Í fjárhagsáætlun borgarinnar sé gert ráð fyrir að meira fé verði sótt til borgarfyrirtækja. „Engar upphæðir hafa verið nefndar við okkur en ég veit að aðgerðarhóp- urinn hefur rætt um þetta,“ segir Guðlaugur. Orkuveitan er að sögn Guð- laugs vel aflögufær. Þótt fyrir- tækið sé mjög skuldsett vegna stöðu krónunnar gangi rekstur- inn vel. Ýmsir möguleikar séu til að greiða eigendum aukinn arð. Hægt sé að ganga á eigið fé eða hækka gjaldskrár. Hætta megi við áður ákveðnar framkvæmd- ir. „Við þurfum að vita töluna og þá er hægt að svara hvernig við förum að. Það er alltaf spurning um hvernig tekjur eru teknar inn í svona ástandi.“ - gar Borgarfulltrúar íhuga að krefjast aukinna arðgreiðslna frá borgarfyrirtækjum: Orkuveitan sögð aflögufær með arð STJÓRN ORKUVEITU REYKJAVÍKUR Formaður stjórnar Orkuveitunnar hefur heyrt rætt um auknar arðgreiðslur. FRÉTTABLAÐIÐ/ BORGARMÁL „Útgjöld sviðsins til fjárhagsaðstoðar og húsaleigu- bóta eru svokölluð bundin útgjöld og reynist fjárheimildir ekki nægar mun borgarsjóður eigi að síður standa við skuldbind- ingar samkvæmt gildandi regl- um,“ segir í bókun velferðarráðs Reykjavíkurborgar frá aukafundi sem haldinn var í gær. Fréttablaðið greindi frá því í gær að bundinn kostnaður upp á milljarða við fjárhagsaðstoð og bætur væri ekki undanskilinn í niðurskurðaráætlun borgarstjóra fyrir rekstur Velferðarsviðs. Í bókun ráðsins segir enn fremur að gert sé ráð fyrir að heildarfram- lag til málaflokka Velferðarsviðs hækki með sérstöku framlagi. - kg Aukafundur velferðarráðs: Borgarsjóð- ur standi við skuldbindingar Vatnsberinn með amfetamín Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær Þórhall Ölver Gunnlaugsson, sem gengur nú undir nafninu Þór Óliver og oft er kallaður Vatnsberinn, til að greiða 45 þúsund krónur í sekt vegna amfetamíns sem fannst í herbergi hans á Litla-Hrauni í desember. DÓMSMÁL DÓMSMÁL Hreiðar Már Sigurðs- son og Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnendur Kaupþings, og Ólafur Ólafsson, sem var einn aðaleigenda bankans, fá ekki afhent endurrit af skýrslum á hljóð- og mynddiski af öðrum sakborningum og vitnum í máli gegn þeim sem er til rann- sóknar hjá sérstökum saksókn- ara. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Málið snýst um rann- sókn sérstaks saksóknara á kaup- um Q Iceland Finance ehf. á 5,01 prósents hlut í Kaupþingi á árinu 2008. Hreiðar Már, Sigurður og Ólafur hafa réttarstöðu sakborn- inga við þá rannsókn. - jhh Stjórnendur Kaupþings: Fá endurritin ekki afhent Kasparov gegn Karpov Einvígi skákmannanna Garry Kaspar- ov og Anatoly Karpov hefst í dag í Valencia á Spáni. Þeir munu tefla tólf atskákir í vikunni. Einvígið er haldið í tilefni þess að aldarfjórðungur er nú liðinn frá sögulegu maraþoneinvígi þeirra um heimsmeistaratitilinn í skák. Það einvígi, sem haldið var í Moskvu, stóð yfir í fimm mánuði. SKÁK SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.