Fréttablaðið - 22.09.2009, Side 4
4 22. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Vegna fréttar um Gröndalshús í
blaðinu í gær skal tekið fram að ekki
stendur til að finna húsinu nýja lóð
vestur á Granda. Hins vegar hefur
komið til tals hjá borgaryfirvöldum að
meginhluti endurgerðar hússins fari
fram úti á Granda og því verði í kjöl-
farið fundin ný lóð nálægt núverandi
staðsetningu.
BRETLAND Breski fréttamaður-
inn Tom Mangold segist hafa
leyst ráðgátuna um hvarf tveggja
breskra farþegaflugvéla í Berm-
úda-þríhyrningnum svokallaða,
sem er þríhyrningslaga hafsvæði
vestur af Flórídaskaga milli
Bahamaeyja og Bermúdaeyja.
Tugir skipa og flugvéla eru
taldir hafa horfið þar sporlaust
og án skýringa.
Á vefsíðum breska útvarps-
ins BBC segir Mangold einfalda
skýringu líklega á hvarfi bresku
vélanna árin 1948 og 1949. Flug-
vélarnar voru báðar af gerðinni
Avro Tudor, sem Mangold segir
hafa verið illa hannaðar og hrein-
lega ekki haft úthald í þetta langt
flug. - gb
Bermúda-þríhyrningurinn:
Fréttamaður
leysir gátuna
Eldur í Nýhöfn
Töluvert tjón varð þegar eldur kvikn-
aði í mannlausu íbúðarhúsi í Nýhöfn
í Hvalfjarðarsveit í gær. Slökkvilið frá
Akranesi og Borgarbyggð voru kölluð
á vettvang, en þegar þau komu á
vettvang hafði eldurinn kafnað vegna
súrefnisskorts. Eldsupptök eru ókunn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BRIDS
SKÓLINN
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Byrjendur ... 28. september ... tíu mánudagar frá 20-23
Framhald ... 30. september ... átta miðvikudagar frá 20-23
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
• Viltu læra brids? Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er
ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu. Þú getur komið ein eða
einn, með öðrum eða í hóp og það er sama hvort þú ert 18
ára eða 90. Eða þar á milli! Sjá bridge.is undir ”fræðsla”.
• Viltu verða betri spilari? Á framhaldsnámskeiði Brids-
skólans gefst þér tækifæri til að bæta við kunnáttuna. Þú
lærir nútíma sagnir, hvassa spilatækni og samvinnu við
makker í vörninni. Sjá bridge.is undir “fræðsla”.
• Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík. - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
LEIÐRÉTT
EFNAHAGSMÁL Forstjóri Íbúðalána-
sjóðs (ÍLS) segir að í raun sé ekk-
ert sem komi í veg fyrir það að
sjóðurinn geti tekið við öllum hús-
næðislánum bankanna svo fremi
sem stjórnvöld veiti til hans auknu
fé í samræmi við aukin umsvif.
Fram kom í Fréttablaðinu í gær
að innan ríkisstjórnarinnar sé vilji
fyrir því að ÍLS taki yfir öll hús-
næðislán stóru bankanna þriggja.
Með þessari leið sé ætlunin að auð-
velda það að bjóða upp á samræmd
úrræði fyrir skuldara og tryggja
jafnræði á milli þeirra.
Þessi leið er sú sem helst hefur
verið rædd upp á síðkastið í ráð-
herranefnd um úrræði fyrir fólk
í greiðsluerfiðleikum, sem stefnir
á að skila af sér
tillögum í vik-
unni eða í síð-
asta lagi strax
eftir helgi.
Gísli Tryggva-
son, talsmaður
neytenda, lýsti
efasemdum með
þessa hugmynd
í samtali við
Ríkisútvarpið
í gær, og óttað-
ist að Íbúðalánasjóður myndi ekki
valda því að fá lánin í fangið.
Guðmundur Bjarnason, for-
stjóri ÍLS, telur þessar áhyggjur
hins vegar óþarfar. Sjóðurinn hafi
í raun byrjað að undirbúa sig fyrir
aðgerð af þessu tagi strax eftir
bankahrunið í fyrrahaust, þegar
umræða fór af stað um þennan
möguleika. Tæknilega sé sjóðurinn
því að mestu þegar í stakk búinn
til að taka yfir lán bankanna.
Guðmundur segir að lán ÍLS
nemi nú um 700 milljörðum og
gert sé ráð fyrir að lán bankanna
séu önnur eins upphæð.
„Það yrði því auðvitað um að
ræða mikil aukin umsvif, ef
þetta fer svo að Íbúðalánasjóð-
ur stækkar um helming,“ segir
Guðmundur. Það myndi kalla á
aukinn mannafla og húsnæði,
og það væri þá stjórnvalda að
ákveða með hvaða hætti þau
myndu styðja betur við sjóðinn.
„Þau þurftu nú að styrkja bank-
ana fjárhagslega, þannig að mér
dettur í hug að það gæti orðið ein-
hver millifærsla í því.“
Verið sé að skoða það hvern-
ig ÍLS myndi meðhöndla erlendu
lánin, sem sjóðurinn hefur aldrei
boðið upp á sjálfur. Hugsanlegt sé
að bankarnir myndu tímabundið
halda utan um þau áfram í sínum
innheimtukerfum, þótt þau færð-
ust til ÍLS.
Þá telur Guðmundur ólíklegt
að lífeyrissjóðslán yrðu færð til
ÍLS. stigur@frettabladid.is
Sjóðurinn ræður við
íbúðalán bankanna
Íbúðalánasjóður ætti að ráða vel við að taka yfir öll íbúðalán bankanna, svo
framarlega sem sjóðurinn fær aukið rekstrarfé sem svarar auknum umsvifum.
Þetta segir forstjóri sjóðsins. Við það mundi sjóðurinn um það bil tvöfaldast.
HÚSNÆÐISLÁNIN ÖLL TIL ÍBÚÐALÁNASJÓÐS? Forstjóri Íbúðalánasjóðs á ekki von á
því að lífeyrissjóðslán verði færð til sjóðsins. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
GUÐMUNDUR
BJARNASON
ORKUMÁL Fulltrúar kínverskra
stjórnvalda funduðu í gær með
forsvarsmönnum sveitarstjórnar
Norðurþings á Húsavík, en kín-
versk stjórnvöld hafa sýnt því
áhuga að kaupa 32 prósenta hlut í
orkufyrirtækinu Þeistareykjum.
Bergur Elías Ágústsson, sveit-
arstjóri Norðurþings, segir að
um tvo fulltrúa frá kínverska
sendiráðinu á Íslandi hafi verið
að ræða og þeir hafi ekki verið
fulltrúar kínversks fyrirtækis
eða fyrirtækja. Gert hefur verið
að því skóna að áhugi kínverskra
stjórnvalda sé í raun milliganga
þarlendra stjórnvalda fyrir hönd
kínverska álrisans Chinalco, sem
renni hýru auga til orkunýtingar-
möguleika nyrðra.
Bergur segir að gestirnir hafi
fyrst og fremst verið að kynna
sér þá möguleika sem svæðið
býður upp á, sérstaklega varð-
andi orkunýtingu. „Það á bæði
við um háhita og lághita og önnur
hugsanleg tækifæri og möguleika
til samstarfs. Þeir óskuðu eftir
ákveðnum upplýsingum sem við
veitum fúslega.“
Bergur segir að Kínverjar fjár-
festi nú víða um heim og ánægju-
legt að þeir sýni Norðurþingi
áhuga. „Ég hafði mikinn áhuga á
að þeir kæmu að því að nýta lág-
hita í fiskeldi. En eðli málsins
samkvæmt er það orkan sem er
áhugaverð sem fjárfestingarkost-
ur, það er ekkert launungarmál.“
- shá
Fulltrúar kínverskra stjórnvalda funduðu með forsvarsmönnum Norðurþings:
Funduðu um orkunýtingu
HÚSAVÍK Uppbygging sveitarfélagsins
til næstu ára er háð því hvernig orkan á
svæðinu verður nýtt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í frétt af smásagnasafni Ólafs Helga
Kjartanssonar í Fréttablaðinu í gær
kom fram að hann hefði gaman af
smásögum Þóris Baldurssonar. Hér átti
að standa smásögum Þóris Bergsson-
ar, því hljómborðsleikarinn góðkunni,
Þórir Baldursson, hefur að öllum
líkindum ekki gefið út smásögur enn.
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
25°
20°
24°
22°
19°
22°
25°
25°
17°
19°
27°
19°
25°
31°
17°
24°
28°
16°13
12
9
11 129 10
9
98
6
5
3
4 3
3
6
9
8
0
5
3
5
2
1
6
6
3
2
4
3
Á MORGUN
5-10 m/s
FIMMTUDAGUR
8-13 m/s.
NÆTURFROST
Í nótt var víða næt-
urfrost og komandi
nótt má einnig búast
við næturfrosti mjög
víða á landinu. Þegar
líður á morgundag-
inn kemur hlýrra
loft yfi r landið og á
fi mmtudag eru horfur
á stífum vindi af suð-
vestri með hlýindum
og vætu. Síðan eru
horfur á hvössum
vindi víða um land
bæði á föstudag og
laugardag.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
FRÆÐI Sagnfræðingafélag Íslands
opnar hádegisfyrirlestraröð sína í
dag með ráðstefnunni Hugvísindi
á krepputímum – staða, hlutverk
og sóknarfæri. Menntamálaráð-
herra er gestur ráðstefnunnar.
Yfirskrift haustmisseris er:
Hvað er kreppa? Tekist verður á
við risavaxnar spurningar. Hvern-
ig má skilja hrun hagkerfis, hug-
myndafræði, heimsmyndar, sið-
ferðis og gilda sem er að eiga sér
stað? Geta öflug hugvísindi ekki
lagt lið nýrri uppbyggingu hins
skapandi samfélags? - shá
Sagnfræðingafélag Íslands:
Sagnfræðingar
með ráðstefnu
SJÁVARÚTVEGSMÁL Skip Hvals hf.
hafa komið með 117 langreyðar
af þeim 150 sem leyfilegt er að
veiða á þessari vertíð. Hvalur
9 og Hvalur 8 komu með fjög-
ur dýr á sunnudaginn var að
Hvalstöðinni í Hvalfirði sem
náði þá sögulegum áfanga.
Þá kom á land fimmtán þús-
undasti hvalurinn sem veiðst
hefur á skipum Hvals hf. síðan
fyrirtækið var stofnað árið 1947
en fyrsti hvalurinn kom á land
1948. Fyrirtækið stundaði hval-
veiðar til ársins 1989 en þá tók
við hvalveiðibann sem stóð í
tæp tuttugu ár.
- shá
Hvalveiðar ganga vel:
Hvalirnir orðnir
15 þúsund alls
Í HVALSTÖÐINNI Sjö dýr komu á land
haustið 2006 og vakti það óskipta
athygli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofn-
un hefur gefið út starfsleyfi fyrir
varaaflstöð Verne Holdings ehf. á
Vallarheiði í Reykjanesbæ.
Rekstraraðila er með starfs-
leyfinu heimilt að reka dísilraf-
stöðvar sem sjá gagnaveri fyrir
allt að 55 megavatta varaafli þar
sem raforka er framleidd með
fjórgengisvélum. Heimilt er að
prófa varaaflstöðina til þess að
ganga úr skugga um virkni henn-
ar og reka hana tímabundið til
eigin nota ef rafmagn fer af raf-
magnsdreifikerfi.
Starfsleyfið öðlast þegar gildi
og gildir til 30. september 2021.
- shá
Gagnaver í Keflavík:
Starfsleyfi veitt
fyrir aflstöð
GENGIÐ 21.09.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,5022
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,75 124,35
200,18 201,16
181,22 182,24
24,351 24,493
20,948 21,072
17,859 17,963
1,3397 1,3475
195,17 196,33
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR