Fréttablaðið - 22.09.2009, Síða 6

Fréttablaðið - 22.09.2009, Síða 6
6 22. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR BORGARTÚNI 29 OPIÐ FRÁ KL 11-19. VER ÐH RU N! Komdu og sparaðu ! Allt að 90% afsláttu r Allir sem versla fá bók að gjöf! (Meðan birgðir endast!) SKATTUR. „Ég vona að það verði ekki uppsagnir,“ segir Rósa Helga Ing- ólfsdóttir, skattstjóri á Ísafirði, um þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á uppbyggingu skattkerfisins í landinu. Eins og fram kom í Frétta- blaðinu í gær hyggst fjármálaráðu- neytið fækka skattstjórum úr níu í einn, auk ríkisskattstjóra. Ráðgert er að spara með þessu 140 milljónir á ári í rekstri skatt- kerfisins og fækka um rúmlega tuttugu starfsmenn en halda óbreyttu hlutfalli starfsmanna á landsbyggðinni og höfuðborgar- svæðinu. Sex konur halda uppi starfsemi skattstofunnar á Ísafirði. Sparnað- araðgerðir hafa verið í gangi, m.a. var ekki ráðið í starf sem losn- aði nýlega. „Ég vona að það verði haldið áfram einhverri starfsemi á skattstofunni á Ísafirði,“ sagði Rósa Helga, sem flutti til Ísa- fjarðar fyrir rúmu ári þegar henni var veitt embætti skattstjóra þar til fimm ára. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær gera hugmynd- ir fjármálaráðuneytisins ráð fyrir því að öll vinna vegna virðisauka- skatts fari fram í Hafnarfirði og öll vinna vegna tekjuskatts á Akur- eyri. Rósa Helga segir áfram samt þörf fyrir fjarvinnslu, þjónustu- síma og fleiri störf, sem hægt er að vinna úti á landi. Hún segist hafa áhyggjur af sínu starfsfólki vegna breytinganna. „Það er lítið annað hægt að segja,“ segir Rósa Helga Ingólfsdóttir. - pg Skattstjórinn á Ísafirði um uppstokkun í skattkerfinu: Vona að ekki verði uppsagnir ÍSAFJÖRÐUR Sex konur halda uppi starfsemi skattstofunnar á Ísafirði. Skatt- stjórinn á Ísafirði vonar að ekki komi til uppsagna. DÓMSMÁL „Við ákváðum að bjóða þeim birginn,“ segir Sigþór Ari Sigþórsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Klæðning- ar sem gerir 3,3 milljarða kröfu á Orkuveitu Reykjavíkur. Klæðning krefst þess að Orku- veitan greiði 3,3 milljarða króna vegna uppgjörs á verkum sem rift var og í bætur vegna „afleið- inga gjörða OR“. Kröfur Klæðningar eru vegna samninga tengdum Hellisheið- arvirkjun sem rift var. Þar af er sérstök sundurliðuð bótakrafa upp á tæplega 1,9 milljarða króna vegna tjóns sem Klæðning telur sig hafa orðið fyrir vegna afleið- inga af vanefndum Orkuveitunn- ar. Sigþór Ari segir að í apríl hafi legið fyrir að Orkuveitan hafi samþykkt um 150 milljóna króna reikninga vegna vinnu við Hellis- heiðarvirkjun. „Rétt áður en átti að greiða þá fóru þeir í að endur- meta áður samþykkta og greidda reikninga í öðru verki. Þeir sögðu að þeir hefðu verið ofgreiddir og skuldajöfnuðu. Þar með stóðum við bara peningalausir og áttum eftir að borga laun og kaupleigu af tækjum og allt saman. Við telj- um að þetta hafi verið algjörlega ólöglegt og það var enginn and- mælaréttur gefinn,“ segir Sig- þór. Fjármögnunarfyrirtækið Lýs- ing tók síðan vélar og tæki af Klæðningu sem í kjölfarið sagði sig frá Hellisheiðarverkinu. Rekstur fyrirtækisins stöðað- ist. Sigþór segir lánardrottna nú orðna óþolinmóða. „Við vonum að kröfuhafar stökkvi á þetta mál með okkur og sýni okkur skiln- ing. Eina vonin til að þeir fái eitt- hvað greitt er að þetta mál vinn- ist. Allt okkar eigið fé er farið í framkvæmdir fyrir Orkuveituna sem Orkuveitan hefur ekki borg- að og við þurfum að sækja þá aftur. Við munum aldrei sleppa þeim við þetta,“ segir hann. Eiríkur Hjálmarsson, upp- lýsingafulltrúi Orkuveitunnar, segir kröfu Klæðningar fara til umfjöllunar hjá lögfræðingum. Sjálf telji Orkuveitan sig eiga kröfu á Klæðningu eftir að fyr- irtækið gekk frá verki. „Í vor fór fram mikil úttekt á viðskilnaði Klæðningar. Endan- legt mat og uppgjör á honum mun væntanlega leiða til þess að við munum gera kröfu á Klæðningu,“ segir Eiríkur Hjálmarsson. gar@frettabladid.is Krefjast 3 milljarða vegna vanefnda OR Verktakafyrirtækið Klæðning krefst 3,3 milljarða króna vegna meintra van- efnda Orkuveitu Reykjavíkur sem sögð er hafa stöðvað rekstur verktakans með ólöglegri skuldajöfnun. Klæðning skuldar okkur, segir upplýsingafulltrúi OR. HELLISHEIÐARVIRKJUN Klæðning átti að sjá um lagningu nýrrar pípu frá Hellisheið- arvirkjun að vatnstönkunum á Reynisvatnsási en fyrirtækið varð frá að hverfa vegna rekstrarerfiðleika. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SIGÞÓR ARI SIGÞÓRSSON EIRÍKUR HJÁLMARSSON DANMÖRK, AP Dómstóll í Dan- mörku hafnaði í gær beiðni danska hersins um að útgáfa bókar fyrrverandi sérsveitarher- manns verði bönnuð. Herinn fór fram á að bókin, sem er eftir Thomas Rothsack, yrði bönnuð af öryggisástæðum. Dómarinn komst að þeirri niður- stöðu að bann væri tilgangslaust vegna þess að í síðustu viku birti danska dagblaðið Politiken bók- ina í heild sem fylgiblað. Einn- ig er hægt að ná í hana ókeypis á netinu, en hún er væntanleg í bókabúðir í Danmörku á fimmtu- dag. Bók Rothsacks heitir „Hermað- ur – í stríði við úrvalssveitirnar“. Þar lýsir hann hermennsku sinni í Afganistan og Írak. - gb Danskur hermaður: Útgáfa bókar ekki bönnuð DÓMSMÁL Héraðsdómur hefur vísað frá dómi tæplega 24 millj- óna króna skaðabótakröfu á hendur nauðgaranum Jóni Pét- urssyni. Kröfuna gerði móðir fyrir hönd ólögráða sonar síns, sem hafði, ellefu ára gamall, þurft að horfa upp á ofbeldi Jóns gegn húshjálpinni á heim- ili hans. Drengurinn var metinn með 25 prósenta varanlega örorku eftir að hafa orðið vitni að ofbeldi Jóns, sem tvívegis hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm fyrir hrottafengið ofbeldi og nauðganir. Kröfunni er vísað frá vegna vanreifunar, en upphæðirnar sem krafist var þóttu ekki rök- studdar nægilega vel. - sh Jón Pétursson slapp: Kröfu á nauð- gara vísað frá Auglýsingasími – Mest lesið DÓMSMÁL Þremur ungum mönn- um á aldrinum 19 til 21 árs hefur verið birt ákæra fyrir sérlega hættulega líkamsárás sem þeim er gefið að sök að hafa framið í júní fyrir rúmu ári. Í ákæru eru þeir sagðir hafa ráðist að nítján ára pilti að næt- urlagi í Laufrima í Reykjavík, kýlt hann nokkrum sinnum í and- lit og líkama og síðan barið hann með golfkylfum í andlit og háls. Fórnarlambið hlaut mikið mar og bólgu umhverfis hægra auga og kinnbein, skurð á kinnbein og mar og skrámu hægra megin á hálsi. Fórnarlambið krefst tæplega 1,4 milljóna króna í bætur. - sh Þrír ungir menn fyrir dómi: Ákærðir fyrir að berja mann SJÁVARÚTVEGSMÁL Niðursuðuverk- smiðja Hraðfrystihússins-Gunn- varar í Súðavík verður rekin á fullum afköstum í vetur og er gert ráð fyrir að framleiddar verði 2,5 milljónir dósa af niðursoðinni fisk lifur. Eins og fram kemur á frétta- vefnum bb.is fer haustvertíðin, sem hófst 1. september síðastlið- inn, vel af stað. „Við verðum að vinna tvo daga í viku fram í enda nóvember en svo með fulla starf- semi til 1. júní,“ segir Kristinn Kristjánsson, vinnslustjóri hjá HG. Hann segir vertíðina leggj- ast vel í starfsfólk verksmiðjunn- ar, en fimm starfsmenn vinna hjá verksmiðjunni um þessar mund- ir. „Við reiknum með ekki minna magni en í fyrra, eða 2,5 milljón- um dósa,“ segir Kristinn. Þess má geta að slegið var framleiðslumet á síðasta ári. Hráefnið hefur komið að lang- stærstum hluta úr þorskeldi fyr- irtækisins í Álftafirði og Seyðis- firði og af ísfisktogaranum Páli Pálssyni ÍS, auk þess sem hráefn- is er aflað á mörkuðum og víðar af Vestfjörðum. „Við notum lifur hvar sem við komum höndum yfir hana, við erum til dæmis í sambandi við menn á Patreksfirði og Grindavík til að verða okkur úti um meira hráefni,“ segir Kristinn. - shá Niðursuða hefur náð fótfestu í Súðavík og byggir á þorskeldi á staðnum: Fylla 2,5 milljónir lifrardósa ÞORSKELDI Hrein og falleg lifur fellur til þegar eldisþorski er slátrað og er gott hráefni til niðursuðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hefur einhvern tímann verið brotist inn á heimili þitt? Já 19% Nei 81% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú ánægð/ur með að FH hafi unnið sinn fimmta Íslands- meistaratitil í knattspyrnu á sex árum? Segðu skoðun þína á Vísir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.