Fréttablaðið - 22.09.2009, Side 8
22. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1. Hver skoraði bæði mörk FH
í sigrinum gegn Val á sunnu-
daginn?
2. Hver er höfundur og
leikstjóri kvikmyndarinnar
Antichrist?
3. Hver á í málaferlum gegn
De Villepin, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Frakklands?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
Auglýsingasími
– Mest lesið
A
T
A
R
N
A í september
Glæsilegar vörur nú á
Tækifærisverði.
Láttu drauminn rætast.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Skoðið Tækifæristilboðin á
www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt.
Tæki færi
HEILBRIGÐISMÁL Verið er að vinna að
tillögum um verkaskiptingu sjúkra-
húsanna á suðvesturhorninu, segir
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráð-
herra. Hann segir alrangt að uppi
séu áform um að leggja St. Jósefs-
spítala niður hægt og í hljóði eins og
Sigurjón Vilbergsson, sérfræðing-
ur við spítalann, hélt fram í grein í
Morgunblaðinu á sunnudag.
Hið rétta sé að spítalinn hafi
orðið fyrir skerðingu í fjárframlög-
um eins og aðrar heilbrigðisstofn-
anir landsins. „Það má ekki rugla
því saman við önnur áform um spít-
alann. Markmiðið er að efla hann
þegar til lengri tíma er litið, það
er ekki hugmyndin að hann verði
í óbreyttu formi, en við viljum að
hann gegni lykilhlutverki í Hafnar-
firði og sannarlega að hann sinni
fleiru en öldrunarþjónustu.“
Undir þetta tekur Árni Sverris-
son, forstjóri spítalans. Hann segir
sparnaðaraðgerðir vera lið í því að
skera niður um 120 til 130 milljón-
ir í rekstri spítalans eins og honum
bar að gera miðað við fjárhags-
áætlanir. „Okkar verkefni hér inn-
anhúss var að skera niður. Vegna
óvissu um spítalann í byrjun árs þá
byrjuðum við seinna á niðurskurði
en aðrir en vonumst til þess að ná
settu markmiði á árinu.“ Fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra, Guðlaug-
ur Þór Þórðarson, lagði til í upphafi
árs að St. Jósefsspítali yrði öldrun-
arstofnun.
Meðal þess sem gripið hefur
verið til í sparnaðarskyni í ár eru
uppsagnir, en til að ná settum
markmiðum hefur kaupum á þjón-
ustu fjórtán sérfræðinga spítal-
ans, sem fá greitt sem verktakar,
verið hætt það sem eftir lifir árs.
Alls eru sérfræðingarnir fjörutíu.
Vonast Árni til að þessar ráðstaf-
anir dugi til að mæta niðurskurð-
arkröfum.
Árni bendir á að tillögur þær sem
nú sé verið að vinna að muni síðan
leggja línurnar um framtíð spítal-
ans og því ekki hægt að segja í bili
hvaða sérfræðingar muni vinna
áfram við spítalann. Eins og sakir
standa eru lyflækningadeild, hand-
lækningadeild, meltingarsjúkdóma-
deild, augndeild og þrjár skurðstof-
ur á spítalanum.
Heilbrigðisráðherra segir að ljóst
sé að meiri verkaskipting og hag-
ræðing verði á rekstri skurðstofa
á suðvesturhorninu. Annað sé ekki
hægt að segja í bili um áætlanir um
framtíð spítalanna.
sigridur@frettabladid.is
Sérhæfing
sjúkrahúsa
undirbúin
St. Jósefsspítali mun ekki starfa áfram í óbreyttri
mynd. Hvorki eru þó uppi áform um að leggja hann
niður né gera hann að öldrunarstofnun. Unnið er
að sérhæfingu sjúkrahúsanna á suðvesturhorninu.
ST. JÓSEFSSPÍTALI Mun verða sjúkrahús með sérhæfðara hlutverk en hann gegnir
núna frá og með næstu áramótum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Meiri sérhæfing verður hjá sjúkra-
húsunum á Suðvesturlandi; á
Akranesi, Selfossi, í Reykjanesbæ,
Hafnarfirði og Reykjavík en verið
hefur til þessa. Stjórnendur stofnan-
anna hafa undanfarið unnið að til-
lögum að því hvernig sú sérhæfing
á að verða undir stjórn stefnumót-
unarsviðs heilbrigðisráðuneytisins
annars vegar og Huldu Gunnlaugs-
dóttur, forstjóra Landspítalans, hins
vegar. Faghópar á vegum sjúkrahús-
anna fimm funda í fyrsta sinn í dag
með hópnum en í faghópunum eru
sérfræðingar sjúkrahúsanna og eiga
þeir að gefa álit sitt og koma með
tillögur um framtíðarverkaskiptingu
sjúkrahúsanna.
Framtíðarskipanin verður kynnt á
næstu vikum.
SÉRHÆFING Á SUÐVESTURHORNINU
Ferskt ungnautahakk
35% afsláttur
974.-
FRAKKLAND, AP „Ég veit að sann-
leikurinn mun sigra,“ sagði Dom-
inique de Villepin, fyrrverandi
forsætisráðherra Frakklands,
þegar réttarhöld hófust í gær í
máli Nicolasar
Sarkozy forseta
gegn honum og
fjórum öðrum
sakborningum.
Sarkozy segir
de Villepin hafa
borið út óhróð-
ur um sig fyrir
forsetakosn-
ingarnar 2007,
en de Villepin
hafði sjálfur lýst áhuga sínum á
framboði fyrir þær kosningar.
„Ég kem út úr þessu frjáls og
með hreinan skjöld,“ sagði de
Villepin, sem hafnar öllum ásök-
unum forsetans. - gb
Réttarhöld í Frakklandi:
De Villepin seg-
ist vera saklaus
DOMINIQUE DE
VILLEPIN
Tillaga að starfsleyfi
Umhverfisstofnun hefur unnið
tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað
Flokkunar Eyjafjarðar ehf. á Glerárdal,
Akureyrarbæ. Samkvæmt tillögunni
verður Flokkun heimilt að urða allt
að 12.000 tonn af almennum og
óvirkum úrgangi á ári en starfsleyfi
verður gefið út til tveggja ára. Tillagan,
ásamt starfsleyfisumsókn, mun liggja
frammi til kynningar í Ráðhúsi Akur-
eyrar til 13. nóvember 2009.
UMHVERFISMÁL
STJÓRNMÁL Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, tekur þátt í
pallborðsumræðum á heimsþingi
Clinton stofnunarinnar í New York
á föstudag. Bill Clinton stofnaði til
þingsins þegar hann lét af emb-
ætti forseta Bandaríkjanna.
Þingið verður sett á morgun en
það sitja þjóðarleiðtogar og aðrir
stjórnmálamenn auk áhrifamanna
á ýmsum sviðum, til dæmis vís-
indum og viðskiptum. Barack
Obama Bandaríkjaforseti ávarp-
ar þingið á morgun en á því verð-
ur rætt um hnattræn efnahags-,
umhverfis- og félagsleg viðfangs-
efni.
Ólafur Ragnar verður málflytj-
andi í pallboðsumræðum þar sem
rætt verður um hvernig fjármála-
markaðir geta þjónað almanna-
heill á heimsvísu.
Ólafur Ragnar sat þing síðasta
árs og tók þá þátt í umræðum um
loftlagsbreytingar og orkumál og
baráttu gegn fátækt í heiminum.
Í Ameríkuferðinni mun Ólaf-
ur Ragnar líka sitja fund með
hópi bandarískra hagfræðinga til
að fjalla um reynslu Íslendinga,
hina alþjóðlegu fjármálakreppu
og hvað gera þurfi til að koma í
veg fyrir að svo alvarleg áföll og
kreppur endurtaki sig í framtíð-
inni. Er fundurinn haldinn í boði
Josephs Stiglitz Nóbelsverðlauna-
hafa sem nýverið var á Íslandi.
Ólafur Ragnar flytur jafnframt
ræðu á leiðtogafundi bandaríska
samkeppnisráðsins um orkumál
og lokaræðu á málþingi Louise
Blouin-stofnunarinnar um „lær-
dómana sem draga má af fjár-
málakreppunni og hvernig hægt
er að byggja upp hagsæld að nýju
á traustan og öruggan hátt“ eins
og segir í tilkynningu forsetaemb-
ættisins.
Dorrit Moussaieff forsetafrú
verður með í för og sækir mál-
þing um einhverfu og umræðu-
kvöldverð um þúsaldarmarkmið
Sameinuðu þjóðanna.
bjorn@frettabladid.is
Forseti Íslands tekur þátt í þremur alþjóðlegum málþingum í Bandaríkjunum í vikunni:
Ræðir um fjármálamarkaði og almannaheill
Á GÓÐRI STUNDU Bill Clinton og Ólafur
Ragnar í Íslandsheimsókn Clintons árið
2004. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?