Fréttablaðið - 22.09.2009, Blaðsíða 10
22. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR
ÚTIVIST Skálar Ferðafélags Íslands
í Hrafntinnuskeri, við Álftavatn, í
Hvanngili og Emstrum verða lok-
aðir í vetur rétt eins og í fyrra og
er verið að loka þeim um þessar
mundir að því er fram kemur á vef
Ferðafélags Íslands.
Opið verður áfram í Langadal í
Þórsmörk og Landmannalaugum.
Þar verða skálaverðir fram eftir
október. Ferðalangar geta fengið
lykla að skálum Ferðafélagsins ef
þeir vilja nota þá að vetrarlagi og
geta sótt þá á skrifstofu félagsins.
Skálarnir eru allir við göngu-
leiðina vinsælu, Laugaveginn, sem
liggur frá Landmannalaugum yfir
í Þórsmörk og hafa því verið vel
sóttir í sumar. - sbt
Vetrarlokun hjá Ferðafélagi Íslands:
Skálum á hálendinu lokað
VIÐ ÁLFTAVATN Skálinn er vinsæll næt-
urstaður ferðalanga.
KENNARI NÁMSKEIÐSINS, SIGURÐUR JÓNSSON, LÆRÐI
LJÓSMYNDUN Í SCHOOL OF VISUAL ARTS Í NEW YORK
OG ÖÐLAÐIST MEISTARARÉTTINDI Í LJÓSMYNDUN ÁRIÐ
1989. HANN HEFUR HALDIÐ NÁMSKEIÐ Í STAFRÆNNI
MYNDVINNSLU FYRIR LJÓSMYNDARAFÉLAG ÍSLANDS,
LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS, MARGMIÐLUNARSKÓLANN,
IÐNSKÓLANN Í REYKJAVÍK OG NÚ Í 5 ÁR HJÁ NTV.
FYRIR HVERJA?
Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við
grafík og stafræna myndvinnslu og vilja ná
dýpri þekkingu og skilningi á nær óendan-
legum möguleikum þessa flotta verkfæris.
Námið er undirbúningur fyrir alþjóðlegt próf
sem gefur gráðuna: Adobe Certified Expert.
INNTÖKUSKILYRÐI
Þeir sem ætla í þetta nám þurfa að hafa
einhverja reynslu í Photoshop og undir-
stöðuþekkingu á Windows umhverfinu.
Einnig þarf góða enskukunnáttu þar sem
flest námsgögn eru á ensku.KENNSLUTILHÖGUN
Mánudaga og miðvikudaga 18-22.
Byrjar 05. okt. og lýkur 11. nóv.
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI
PHOTOSHOP EXPERT
- ALVÖRU PHOTOSHOP NÁMSKEIÐ -
PHOTOSHOP EXPERT
Við hjá NTV leyfum okkur að fullyrða að
þetta sé eina námskeiðið sem uppfylli
kröfur þeirra sem einhverja reynslu
hafa í Photoshop. Námskeiðið er yfir-
gripsmikið þar sem mikið er lagt upp úr
þeim þætti sem snýr að eftirvinnslu s.s.
litgreiningu, prófílum, upptöku aðgerða,
skipulag, meðferð RAW skráa, og öllum
þeim aðgerðum sem áður fyrr voru fram-
kvæmdar í myrkrakompu.
www.rannis.is/visindavaka
- neytendasálfræði og markaðssetning matvæla
Dr. Valdimar Sigurðsson frá viðskiptadeild HR fjallar um greiningu og
mótun neytenda - hegðunar í verslunum. Er hægt að breyta verslun
í tilraunastofu? Er eitthvað að marka neytendur?
er í kvöld
Annað VÍSINDAKAFFIÐ
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Menntamálaráðuneytið
Iðnaðarráðuneytið
Veistu hvað þú vilt?
22.september kl. 20:00 - 21:30
Súfi stinn Iðuhúsinu
Allir velkomnir. Láttu sjá þig!
AFGANISTAN „Ástandið er alvarlegt
og hvorki hægt að ganga að sigri
né ósigri vísum,“ segir Stanley
A. McChrystal, æðsti yfirmaður
herliðs Bandaríkjanna og NATO í
Afganistan.
Bandaríska dagblaðið Washing-
ton Post birti í gær þriggja vikna
gamla skýrslu McChrystals um
ástand og horfur í Afganistan.
Þessi skýrsla átti að fara leynt,
þó nokkur efnisatriði hennar hafi
verið gerð opinber þegar hann
afhenti Robert Gates varnarmála-
ráðherra hana í lok ágúst.
McChrystal telur óhjákvæmilegt
að fjölga allhressilega í erlenda
herliðinu í Afganistan, eigi árang-
ur að nást í langvinnri baráttu
aðkomuhersins við uppreisnar-
menn.
Mikilvægara telur McChrystal
þó að bæði erlenda herliðið og rík-
isstjórn landsins ávinni sér traust
heimamanna. Spilling ráðamanna
er að mati hans jafnmikil ógn og
uppreisnin, sem herliðið þarf að
takast á við.
„Veikleikar ríkisstofnana, ill-
ræðisverk valdamanna, útbreidd
spilling og misbeiting valds af
hálfu ýmissa embættismanna,
ásamt mistökum fjölþjóðaherliðs-
ins sjálfs, hafa ekki gefið Afgön-
um ríka ástæðu til að styðja rík-
isstjórn sína,“ segir í skýrslu
McChrystals.
Til þess að breyta þessu verði
fjölþjóðaherlið Bandaríkjanna og
NATO að breyta verulega áhersl-
um í starfi sínu.
„Hernaðaraðferðir okkar mega
ekki beinast eingöngu að því að
ná landsvæðum á okkar vald eða
brjóta uppreisnarsveitir á bak
aftur, heldur verða athafnir okkar
að beinast að þjóðinni.“
Hann segir fyrst og fremst nauð-
synlegt að aðkomuherliðið og yfir-
menn þess afli sér betri þekkingar
á íbúum Afganistans og umgang-
ist jafnframt heimamenn meira en
hingað til, í staðinn fyrir að ein-
angra sig bak við víggirðingar og
í brynvörðum bifreiðum.
Árangur náist ekki nema erlenda
herliðið sé reiðubúið til þess að
deila áhættunni með heimamönn-
um.
Í skýrslunni segir McChrystal
einnig að þrír uppreisnarhópar séu
stórtækastir í baráttu sinni gegn
erlenda herliðinu og ríkisstjórn
landsins: Einn hópurinn er skip-
aður talibönum sem nú er stjórn-
að frá borginni Quetta í Pakistan,
annar hópur er tengdur hryðju-
verkasamtökunum Al Kaída, en
sá þriðji lýtur stjórn gamalreynda
stríðsherrans Gulbuddins Hekmat-
yars.
Barack Obama Bandaríkja-
forseti hefur verið að kynna sér
skýrsluna ásamt helstu hernaðar-
ráðgjöfum sínum.
gudsteinn@frettabladid.is
Engan veginn
nóg að fjölga
í herliðinu
Herforinginn Stanley A. McChrystal vill 40 þúsund
hermenn til Afganistans í viðbót við þá 90 þúsund
sem eru þar fyrir. Segir brýnt að ávinna traust.
STANLEY A. MCCHRYSTAL Yfirmaður herliðs Bandaríkjanna og NATO í Afganistan segir
nauðsynlegt að breyta áherslum. NORDICPHOTOS/AFP