Fréttablaðið - 22.09.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 22.09.2009, Blaðsíða 20
16 22. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is MICHAEL FARADAY FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Þeir eiginleikar sem nauð- synlegt er að búa yfir til þess að ná árangri eru ein- beiting, skarpskyggni, skipulagning, nýjungagirni og færni í samskiptum.“ Michael Faraday (1791-1867) var enskur efna- og eðlisfræð- ingur. Hann vann að rann- sóknum á rafsegulmagni og rafefnafræði. MERKISATBURÐIR 1631 Svíar leggja Erfurt undir sig í þrjátíu ára stríðinu. 1930 Ferðafélag Íslands tekur fyrsta sæluhús sitt í notk- un. Húsið er í Hvítárnesi upp undir Langjökli. 1957 Árbæjarsafn er opinber- lega opnað almenningi með viðhöfn. 1960 Frakkar viðurkenna sjálf- stæði Malí. 1980 Írak ræðst á Íran og byrjar þar með átta ára stríð. 1992 Fyrstu Ólympíuleikum andlega fatlaðra lýkur í Madrid. Íslendingar eru sigursælir í sundi og fær íslenskt sundfólk alls 21 verðlaun á leikunum, þar af tíu gull. Sigrún Huld Hrafnsdóttir vinnur til fleiri verðlauna á leikunum en nokkur annar keppandi. Menntaskólinn í Kópavogi var settur í fyrsta sinn þennan dag árið 1973 af Ingólfi A. Þorkels- syni skólameistara. Í fyrstu fór starfsemi skólans fram í við- byggingu við Kópavogsskóla og voru nemendur alls 125 talsins í sex bekkjardeildum en kennt var eftir bekkjarkerfi. Árið 1982 var kennslukerf- inu breytt og tekið upp svo- kallað kjarnakerfi sem var millileið milli bekkjakerf- is og áfangakerfis og MK varð því menntaskóli með fjölbrautasniði. Menntaskólinn í Kópavogi var til húsa í Kópavogsskóla fyrstu tíu árin en árið 1983 var starfsemi hans flutt í Víghólaskóla, það hús- næði er enn notað. Á vordögum 1991 hófust byggingaframkvæmd- ir við skólann og var fyrsti hluti tekinn í notk- un haustið 1993 og þrem- ur árum síðar, 1996, var risið glæsilegt verknáms- hús fyrir hótel- og matvæla- greinar. Árið 2002 var tekin sú ákvörðun að rífa N-álmu skólans og byggja í hennar stað nýtt tveggja hæða bók- námshús auk sérbúinnar kennsluaðstöðu fyrir sérdeild skólans. Á 30 ára afmæli skólans 2003 var ný norðurálma tekin í notkun. Haustið 1995 var kennslukerfinu breytt í núver- andi horf eða hreint áfangakerfi og ári seinna hófst kennsla í verknámsdeildum skólans. Ingólfur A. Þorkelsson lét af störfum sem skóla- meistari árið 1993 og við af honum tók núverandi skólameistari, Margrét Friðriksdóttir. Heimild: www.mk.is. ÞETTA GERÐIST: 22. SEPTEMBER 1973 MK settur í fyrsta sinn „Ég ætla að halda afmælisveislu í and- dyri Laugardalshallarinnar í dag frá klukkan 16 til 18. Þar verður opið hús og allir eru velkomnir,“ segir Ragnar Bjarnason, eða Raggi Bjarna eins og langflestir Íslendingar kalla þennan ástsæla tónlistarmann. Ragnar er 75 ára í dag og ber aldur- inn vel enda verið áberandi í tónlistar- heiminum í sumar og heldur auk þess á laugardaginn tvenna stórtónleika í Laugardalshöllinni í tilefni afmælis- ins. „Fyrri tónleikarnir verða klukk- an 16 og þeir seinni klukkan 21 en ég held að það sé orðið uppselt á þá,“ segir Ragnar. Hann fær til sína góða gesti á tónleikunum auk þess sem hann verð- ur dyggilega studdur af fjörutíu manna hljómsveit. „Með mér á sviðinu verða menn og konur á borð við Björgvin Hall- dórsson, Diddú, Guðrúnu Gunnarsdótt- ur, Hemma Gunn, Ómar Ragnarsson, Ladda, Mugison, Megas, Pál Óskar og Stefán Hilmarsson auk hljómsveitanna Sumargleðinnar og Buffs,“ segir Ragn- ar kátur. Á tónleikunum verða rifjaðir upp gamlir slagarar sem Ragnar söng fyrr á árum, meðal annars með KK sex- tettinum og Sumargleðinni. „Svo syngj- um við og tröllum og höfum gaman saman,“ segir hann léttur í lundu. Ragnar segist ekki vanur því að gera mikið úr afmælisdögum sínum. Yfirleitt hafi það hist þannig á í gegnum tíðina að hann hafi verið að skemmta öðrum á afmælinu sínu. Töluvert var þó gert úr sjötugsafmælinu, en þá hélt hann þrenna tónleika á Broadway. „Það var virkilega gaman og líklega eftirminni- legasti afmælisdagurinn,“ telur hann. Ragnar hefur mörg járn í eldinum. Í dag kemur til dæmis út geisladisk- ur með 69 lögum þar sem farið er yfir söngferil Ragga Bjarna í tónum. „Þarna eru til dæmis lög sem ég söng í byrj- un sjötta áratugarins með pabba. Síðan er komið víða við, hjá KK sextettinum, hljómsveit Svavars Gests, og Sumar- gleðinni og einnig hin og þessi lög sem ég söng inn á 45 snúninga plötur á sínum tíma,“ segir Ragnar en í mörgum laganna syngja með honum þjóðþekktir skemmtikraftar. Auk plötuútgáfu og tónleikahalds er nú unnið að heimildarmynd um söngv- arann. „Já, þeir hafa verið að fylgja okkur eftir með myndavélar síðasta árið og tekið upp þær skemmtanir sem ég hef verið á,“ útskýrir Ragnar en kann þó ekki nánari skil á hvar ætlunin er að sýna myndina þegar hún er fullbú- in. „En það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út,“ segir hann glaðlega. En er eitthvað sem hann óskar sér í afmælisgjöf? „Ég óska bara landinu og þjóðinni velfarnaðar og að við komumst út úr þessari kreppu sem ég veit að við munum gera.“ solveig@frettabladid.is RAGNAR BJARNASON: HELDUR UPP Á 75 ÁRA AFMÆLI Býður þjóðinni til veislu í dag 75 ÁRA TÖFFARI Ragnar Bjarnason fékk lánaðan forláta kagga sem mun spila hlutverk í heimildarmynd sem verið er að gera um söngvarann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Staða, hlutverk og sóknarfæri í kreppunni verða til umfjöllunar á ráðstefnu sem Sagnfræðifélag Ís- lands stendur fyrir í Þjóðminjasafni Íslands í dag klukkan 12.05. Ráðstefnan nefnist Hugvísindi á krepputímum og þar verður hugvís- indafólki boðið til beinnar samræðu við Katrínu Jakobsdóttur mennta- málaráðherra. Ráðstefnan er auk þess haldin með þátttöku Viðars Hreins- sonar, framkvæmdastjóra Reykja- víkurAkademíunnar, og Írisar Ellen- berger, formanns Sagnfræðingafé- lagsins. Ætlunin er meðal annars að velta fram ýmsum spurningum varðandi hugvísindi og kreppuna; til dæmis hvort yfirvofandi niðurskurður muni bita jafn harkalega á þeim og öðrum fræðigreinum. Hvort hugvísindi geti lagt lið í uppbyggingu í íslensku sam- félagi og ástæða sé þar af leiðandi til að efla þau frekar. Að loknum stuttum erindum frá frummælendunum þremur verður orðið gefið laust. Aðgangur er ókeyp- is og öllum opinn. Ráðstefnan mun opna hina árlegu hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðinga- félagsins en yfirskrift haustmisseris er að þessu sinni Hvað er kreppa? Hlutverk hugvísinda í kreppunni SITUR FYRIR SVÖRUM Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra flytur erindi á ráðstefn- unni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ástkær eiginmaður minn, faðir og stjúp- faðir okkar, tengdafaðir og afi, Davíð Kr. Guðmundsson Grænumýri 12, Seltjarnarnesi, andaðist í Kaupmannahöfn sunnudaginn 20. sept - ember sl. Útför auglýst síðar. Geirlaug Helga Hansen Guðmundur Pétur Davíðsson Kristjana Ólafsdóttir Guðjón Ómar Davíðsson Sigurlín Baldursdóttir Kristín Davíðsdóttir Ólafur Jón Kristjánsson Úlfar Þór Davíðsson Einar Björgvin Davíðsson Sverrir Davíðsson Guðrún Helga Guðbjörnsdóttir Selma Guðbjörnsdóttir Sveinn Anton Sveinsson Regína Hansen Guðbjörnsdóttir Svanur Kristinsson Hildur Guðbjörnsdóttir Kristján Örn Jónsson Björk Þráinsdóttir Hlynur Sigurjónsson og barnabörn. Alúðarþakkir fyrir samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Rannveigar Eddu Hálfdánardóttur Holtsflöt 6, Akranesi. Sérstakar þakkir til Oddfellow-systra á Akranesi. Einnig hjartans þakkir til félaga í félagsskapnum Dásemd og annars starfsfólks Sjúkrahúss Akraness. Guð blessi ykkur öll. Kristján Emil Friðriksson Dórothea Kristjánsdóttir Madsen Jørgen Elsted Madsen Hálfdán Kristjánsson Ragnhildur Jónsdóttir Rannveig Kristjánsdóttir Kristján Emil Jónasson og ömmubörn. Yndislegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Kristinn Gestur Finnbogason, fyrrv. lögregluvarðstjóri, Hrafnistu Reykjavík, áður Háaleitisbraut 151, andaðist sunnudaginn 30. ágúst. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 10. september kl. 15. Hallfríður Ásmundsdóttir Finnbogi Grétar Kristinsson Ásmundur Kristinsson Svava Loftsdóttir Kristinn Finnbogason Snædís Kjartansdóttir Friðrik Heiðar Ásmundsson Hildur Helga Sævarsdóttir Loftur Ásmundsson Bergdís Heiða Eiríksdóttir Eva Katrín Friðriksdóttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.