Fréttablaðið - 22.09.2009, Page 26

Fréttablaðið - 22.09.2009, Page 26
22 22. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR FÓTBOLTI Það var vel við hæfi að það væri Atli Guðnason sem tryggði FH sinn annan Íslandsmeistaratit- il í röð undir stjórn Heimis Guð- jónssonar með því að skora bæði mörkin í 2-0 sigri á Val á sunnu- daginn. Heimir veðjaði strax á Atla þegar hann tók við FH-liðinu fyrir tveimur árum, Atli átti gott tímabil í fyrra en hefur verið frá- bær í sumar og hefur því launað Heimi traustið. Það var enginn Atli Guðnason í FH-liðinu þegar liðið hafði fyrst tækifæri til að tryggja sér titilinn á heimavelli en tapaði 0-3 fyrir Grindavík. Atli er mikilvægur hlekkur í sóknarleiknum en hann hefur komið að 21 marki FH-liðs- ins í Pepsi-deildinni í sumar. Atli hefur skorað 10 mörk sjálfur, gefið 9 stoðsendingar og fiskað 2 víti sem hafa gefið mörk. Þetta er hans langbesta tímabil en í fyrra kom hann að 11 mörkum FH-liðsins. Atli hafði komið inn af bekkn- um í 25 af 30 leikjum sínum undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. Atli viðurkennir að hann hafi verið orðinn þreyttur á að bíða eftir tækfærinu. „Það var fullt af fólki sem var að ráðleggja mér að fara eitthvað annað og fá að spila. Ég þraukaði í FH og sé ekki eftir því núna,“ segir Atli. „Þegar Heimir tók við þá vissi ég að ég var að fara að spila því hann var búinn að segja mér það. Hann sagði að hann vildi halda mér en auðvitað væri þetta undir mér komið að sýna að ég ætti að vera í liðinu. Ég tel að ég hafi nýtt það tækifæri nokkuð vel,“ segir Atli og bætti við: „Maður þarf að spila til að verða betri og það er þessi gullna regla í boltanum. Maður verður ekki betri á því að horfa á fótbolta. Annars væru Íslendingar miklu betri því þeir horfa svo mikið á enska bolt- ann,“ segir Atli í léttum tón. Atli segir markmið liðsins hafa verið að verða Íslands- og bikar- meistari en hann vill frekar ein- blína á að fagna meistaratitlinum en að velta sér upp úr því sem liðið missti af. „Ég var ekki með nein sérstök markmið yfir fjölda marka eða fjölda stoðsendinga. Mark- miðið sem menn eiga að setja sér þegar þeir eru í svona góðu liði er að verða meistarar. Það er þá bara aukaatriði hvað þú skorar sjálfur,“ segir Atli. Atli Guðnason leikur vanalega á vinstri vængnum þrátt fyrir að vera réttfættur. „Minn leikur snýst um það að koma mér í opin svæði og það hentar mér mjög vel þegar ég spila á öfugum kanti að koma inn á völlinn og finna mér svæði þar,“ segir Atli og hrósar mikið Hirti Loga Valgarðssyni sem leik- ur jafnan í vinstri bakverðinum. „Ég spila með Loga í bakverðin- um og hann er eins og vél sem fer upp og niður kantinn. Það er mjög þægilegt því ég get farið inn og þá kemur hann upp. Það eru ófá mörkin sem við höfum skorað eftir svoleið- is sóknir,“ segir Atli. Atli segir að styrkur FH-liðs- ins liggi í gæði æfinganna. „Það mæta allir á æfingarnar til þess að leggja sig fram og við erum með það marga góða leikmenn. Þegar koma tuttugu góðir leik- menn og leggja sig fram þá verður eitthvað úr æfingunum og við verð- um betri og betri,“ segir Atli og hann segir harða samkeppnina um sæti í FH-liðinu aðeins hvetja sig áfram. „Á bekknum í FH-lið- inu eru alltaf góðir leik- menn og þá skiptir engu máli hver er inná. Maður þarf ekki annað en að horfa á bekkinn til þess að fá innblástur í að gera betur,“ segir Atli. Atli ætlar sér að spila áfram í FH næsta sumar, halda áfram að reyna að bæta sig og reyna að vinna tvennuna langþráðu. „Ég er ekki að fara neitt þó að maður skoði nú allt sem kemur upp. Eins og staðan er í dag þá verð ég bara í FH á næsta ári. Ég er ekki að fara út til þess að fara út. Það verður að vera gott tilboð frá góðu liði þar sem ég get fengið að spila. Fyrsti punkturinn er að fá að spila og peningar og eitthvað a n n a ð e r bara aukaatriði,“ segir Atli sem er í kennaranámi. „Ég ætla að verða stærðfræði- kennari. Ég er að klára það núna í vor og svo veit ég ekki hvað gerist eftir það,“ segir Atli en hann er án nokkurs vafa einn af mönnum Íslandsmóts- ins 2009. ooj@frettabla- did.is sport@frettabladid.is Óskar Örn Hauksson er leikmaður 21. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði þrennu í ótrúlegum 7-3 sigri KR á Stjörnunni á sunnudaginn er næstsíðasta umferð tímabilsins í Pepsi-deild karla fór fram. Á sama tíma vann FH sigur á Val og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn. KR var eina liðið sem átti enn möguleika á að ná FH að stig- um fyrir umferðina á sunnudaginn. En Óskar sagði að KR-ingar hafi ekki verið að gæla við það að neinu ráði. „Ég get ekki sagt það. Ég átti ekki von á því að FH myndi tapa þessum tveimur leikjum sem liðið átti eftir – þó svo að þeir hafi verið gegn sterkum liðum,“ sagði Óskar en FH mætir Fylki í Árbænum í lokaumferðinni á laugardag. „Enda töpuðum við titlinum á sunnudaginn,“ bætti hann við. Leikurinn gegn Stjörnunni var skrautlegur sem fyrr segir. Staðan var 3-0 í hálfleik, KR í vil, en leikmenn skoruðu fimm mörk á aðeins níu mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks. „Þetta var mjög sérkennilegt. Liðin máttu varla komast í sókn án þess að skora. Ég man ekki eftir því að hafa lent í öðru eins enda ekki á hverjum degi sem það eru skoruð tíu mörk í einum leik.“ Ef KR vinnur Val í lokaumferðinni á laugardaginn fær liðið 48 stig – einu meira en FH fékk í fyrra þegar liðið varð fyrsti Íslandsmeistarinn eftir tólf liða deild. „Sjálfsagt hefði þetta dugað í efsta sætið einhvern tímann,“ sagði Óskar. „En við verðum að una sáttir við okkar úr því sem komið er. “ FH varð um helgina Íslandsmeistari í fimmta sinn á sex árum en þrátt fyrir þessa yfirburði segir Óskar vel mögulegt að velta FH af stallinum. „FH verður án efa sigurstranglegt á næsta ári alveg eins og á undanförnum árum. Það er okkar hinna liðanna að velta þeim úr sessi og er það vel hægt. Mér fannst stundum að önnur lið hafi talið FH betra en það í raun og veru er. FH er vissulega með afar sterkt lið en það er vel hægt að vinna það eins og við sýndum í Kaplakrika í sumar. FH-ingar eiga alla þá virðingu skilið sem þeim hefur verið sýnd enda árangur liðsins það góður. En það er svo okkar að gera betur en þeir.“ ÓSKAR ÖRN HAUKSSON: LEIKMAÐUR 21. UMFERÐAR PEPSI-DEILDAR KARLA Vel hægt að velta FH-ingum af stallinum > Lið 21. umferðarinnar Fréttablaðið hefur valið lið 21. umferðar í Pepsi-deild karla. Það er skipað eftirtöldum leikmönnum: Mark- vörður: Gunnar Sigurðsson ( FH). Vörn: Árni Kristinn Gunnarsson (Breiðabliki), Dennis Siim (FH), Tommy Nielsen (FH) og Jón Guðni Fjóluson (Fram, á mynd). Miðja: Hólmar Örn Rúnarsson (Keflavík), Bjarni Guð- jónsson (KR), Ólafur Ingi Stígsson (Fylki) og Óskar Örn Hauksson (KR). Sókn: Atli Guðnason (FH) og Guðmundur Pétursson (Breiðabliki). Taekwondo Fullorðnir byrjendur: 12.500 kr. önnin Mánud., þriðjud., fi mmtud. kl 19:00 og laugard. kl. 10:30 Börn (8-12 ára): 8.500 kr. önnin Þriðjud. kl 18:10 og fi mmtud. kl 18:00 Æfi ngar fara fram í ÍR-heimilinu Skógarseli 12 Nánari uppl. í síma 823-4074 og 825-7267 eða á www.irtaekwondo.net Láttu sjá þig, frír prufutími. FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Evr- ópu staðfesti í gær að Ísland væri eina landið af átta sem fær úthlut- að tveimur sætum í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Er þetta í fyrsta sinn sem Ísland kemst í hóp þessara þjóða og skýt- ur til að mynda Noregi ref fyrir rass. „Við vissum að við vorum mjög nálægt þessu en héldum að við værum fyrst og fremst í keppni við Ítalíu,“ sagði Sig- urður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari. Þegar árangur félagsliða í Evrópukeppnum undanfarin fimm tímabil er reiknað- ur kemur í ljós að íslensk félagslið eru í áttunda sæti. Ítölsk lið eru hins vegar í sjöunda sæt- inu. Noregur hefur verið stórveldi í kvennaknattspyrnu undanfarin ár en verður að sætta sig við níunda sætið á list- anum. „Tölfræðin lýgur ekki,“ sagði Sig- urður Ragnar. „Og það er bara hún sem ræður.“ Valur hefur þegar tryggt sér Íslandsmeistara- titilinn og þar með þátttökurétt í Meist- aradeildinni. En þrjú lið – Breiðablik, Þór/KA og Stjarnan – eru jöfn í 2.-4. sæti deildarinnar með 36 stig. Ekk- ert þeirra mætist innbyrðis í lokaumferðinni. Breiðablik stend- ur best að vígi hvað markahlutfall varð- ar en Þór/KA er ekki langt undan. Aðeins munar einu marki og hefur Þór/KA skorað fleiri mörk en Breiða- blik. Stjarnan á minnstan möguleika, enda tíu mörk- um á eftir Blikum. „Það er mikið í húfi fyrir þessi lið og þetta setur skemmtilegan svip á loka- hluta mótsins,“ bætti Sigurð- ur Ragnar við. Valur mætir ítalska liðinu Torres Calcio í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í næstu og þarnæstu viku. - esá Ísland fær tvö sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð: Íslensk lið náðu betri árangri en norsk SPENNANDI LOKAUMFERÐ Fanndís Friðriksdóttir og félagar í Breiðabliki mæta GRV á heimavelli í lokaumferðinni en Rakel Hönnudóttir og stöllur hennar í Þór/KA liði KR á útivelli. Þraukaði í FH og sé ekki eftir því Atli Guðnason hefur átt frábært tímabil með Íslandsmeisturum FH. Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, veðj- aði á Atla þegar hann tók við liðinu og hann hefur heldur betur launað honum traustið. FRÁBÆR Atli Guðnason er einn af bestu mönnum Pepsi-deildar karla í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ATLI GUÐNASON HJÁ FH Undir stjórn Ólafs Jóhannessonar Tímabil 2* Leikir 30 (5 í byrjunarliði) Mörk +stoðsendingar 4+4 Þáttur í mörkum 9 Undir stjórn Heimis Guðjónssonar Tímabil 2 Leikir 41 (36 í byrjunarliði) Mörk +stoðsendingar 14+15 Þáttur í mörkum 32 * Lék einn leik 2004 en var annars í b-deild- inni 2004 (með HK) og 2005 (með Fjölni). KÖRFUBOLTI Tímabilið í körfunni hefst í kvöld þegar Powerade- bikar karla fer af stað. Njarðvík og Fjölnir mætast þá í Ljóna- gryfjunni og bikarmeistarar Stjörnunnar taka á móti Hamar. Leikirnir hefjast klukkan 19.15. Sigurvegari úr leik Njarðvík- inga og Fjölnis mætir Keflavík en sigurvegari úr hinum leiknum mætir Snæfelli. - óój Powerade-bikar karla í kvöld: Karfan af stað FÓTBOLTI Guðmundur Benedikts- son fær skráð á sig fyrsta mark KR í 7-3 leik á móti Stjörnunni í Pepsi-deildinni á sunnudaginn en það mun líklega aldrei verða full- sannað hvort hann eigi markið. „Ég ætla bara að vera alveg hreinskilinn. Ég er ekki viss hvort boltinn hafi farið í mig eða ekki og hef bara ekki hugmynd um það,“ sagði KR-ingurinn Guð- mundur Benediktsson spurður hvort hann hafi skorað markið en það var ekki hægt að sjá það fyrir víst á sjónvarpsupptökum. Magnús Þórisson, dómari leiks- ins, var í bestu aðstöðunni og hann segir að Guðmundur hafi skorað markið. „Hann ræður víst. Ég kvarta ekkert yfir því að fá þetta mark því þau eru ekki það mörg eftir í manni,“ sagði Guðmundur. - óój Guðmundur Benediktsson: Veit ekki hvort ég skoraði FIMM MÖRK Guðmundur Benediktsson fagnar marki í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.