Stúdentablaðið - 24.11.1980, Side 4
Stúdentablaðið
4
Útgefandi: SHÍ og SINE
Ritstjórar: Jóhanna V. Þórhalls
dóttir og Tómas Einarsson.
Útgáfustjórn:
SÍNE
Stjórn SHÍ
Ritstjórn og afgreiðsla:
Félagsheimili stúdenta við
Hringbraut/ 101 Reykjavík.
Símar: 15959, 25315 og 28699.
og Verð: Kr. 500 í lausasölu, áskrift-
argjald á ári 5000 kr.
Prentun: Blaðajprent.
Steingeldur minnisvarði
Háskóli íslands átti sér eitt sinn markmið
og hugsjónir. Hann var lifandi eining í þjóð-
félaginu. Nú er nær að líkja honum við
fyrirtæki. Sömu atriði ráða ferðinni í mál-
efnum hans—sem minnstur kostn-
aður, — sem mest afköst.
Háskóli íslands er sem stendur stefnu-
laus stofnun. Stofnun án hugsjóna án mark-
miða. Stofnun, sem byggir á hefðum gær-
dagsins án þess að grilla í hvað bjó að baki
þeirra. Steingeldur minnisvarði um eitt-
hvað sem áður var. Fæstir sem hér starfa
láta sig skólann einhverju varða. Sameigin-
leg hugsjón finnst ekki. Háskólinn getur á
engan hátt staðið undir því naf ni að kallast
menntastofnun. Ráðleysi og handahóf eru
helstu stjórntækin f innri málum.
Það er sama hvert litið er, hvergi grillir í
markmið. Fjárbeiðnir miðast við ákveðna
prósentuhækkun frá fyrra ári. Yfirstjórn
skólans leggst svo lágt að standa í nuddi við
einstakar deildir og skorir um hvort ekki
megi aðeins lækka einhvern lið f járbeiðna.
Umsóknir um nýjar stöður ganga í gegnum
sama lákúrulega karpið og persónumeting-
inn. Kennslan er án markmiða. Hvorki
kennarar né nemendur gera sér grein fyrir
hverju starfið á að skila. Val námsefnis er
handahófskennt, engin heildarmarkmið.
Rannsóknir eru stefnulausar. Stúdentar
villast hér inn fyrir tilviljanir, sumir þó
meðákveðnar hugsjónir varðandi nám sitt.
Oftast bíða þær verulegt skipbrot strax í
fyrsta tíma. Oll umræða er í lámarki.
Þannig er nú umhorfs í „æðstu mennta-
stofnun landsins". Stofnun sem eitt sinn
átti að bakhjarli hugsjónir borgarastéttar í
sjálfstæðisbaráttu. Hugsjónir sem alþýðan
gerði að nokkru leyti að sínum.
Borgarastéttin á nú í ef nahagslegri
kreppu. Kreppuvofan hefur staðið við
þröskuldinn, ýmist innan eða utan, síðan
stríðsgróðinn var uppétinn. Kreppan hefur
einnig náð til menningarlífsins. Einkennin
eru skýr á háskólanum. Hvernig leysir
borgarastéttin sinar kreppur? Leið hennar
er leið valdsins — leið f jármagnsins — leið
fasismans. Hættan á þeirri leið er vissulega
fyrir hendi og má nú þegar greina ýmis
merki hennar. Kröfur eru uppi um lág-
marks afköst við rannsóknir. Kröf ur um að
vinstri sinnuðum skoðunum verði úthýst.
Pólitiskar ofsóknir á hendur kenn-
urum, — enn skortir þó kjark en ekki vilja
til aðfylgja þeim eftir. Auknar kröfur um
námshraða og námsafköst, Tilburðir í átt
að auknum aðgangstakmörkunum o.fl.
Kreppur eru veikleikaeinkenni kapítalísks
þjóðfélags.
Á meðan á þeim stendur reynir oft á
styrkhlutföll stéttanna. Forræði á sviði
mennta og menningarmála er eitt af
kúgunartækjum borgarastéttarinnar.
Háskóli Islands er einn hlekkurinn i þeirri
keðju. Sá hlekkur er að ryðga í sundur. Sú
staðreynd leggur vinstri sinnuðum stúdent-
um og kennurum ákveðnar skyldur á
herðar. Skyldur við vinnandi alþýðu þessa
lands. Við getum ráðið miklu um það hver
úrslitin verða. Við getum nýtt okkur óstjórn
skólans til að ráða meiru um starf hans. Við
getum og verðum að móta okkar eigin
markmið út frá okkar eigin hugsjónum.
Jón Guðmundsson.
Styrkir til náms
Styrkur til háskólanáms eöa
rannsóknastarfa f Bretlandi
Breska sendiráðiö i Reykja-
vik hefur tjáð islenskum
stjórnvöldum aö The British
Council bjóði fram styrk
handa íslendingi til náms eöa
rannsóknastarfa við háskóla
eða aðra visindastofnun i
Bretlandi háskólaárið
1981—82. Gert er ráö fyrir aö
styrkurinn nægi fyrir far-
gjöldum til og frá Bretlandi,
kennslugjöldum, fæði og hús-
næði, auk styrks til bóka-
kaupa.
Umsækjendur skulu hafa
lokið háskólaprófi og að öðru
jöfnu vera á aldrinum 25—30
ára.
Umsóknir um styrk þennan
skulu hafa borist mennta-
málaráöuneytinu, Hverfisgötu
6, 101 Reykjavik, fyrir 30.
nóvember n.k. — Tilskilin
eyöublöð, ásamt upplýsingum
um nauðsynleg fylgigögn má
fá i ráðuneytinu og einnig i
breska sendiráðinu, Laufás-
vegi 49, 101 Reykjavik.
Menntamálaráðuneytið
1. október 1980.
Styrkir til náms l Sviþjóö
Sænsk stjórnvöld bjóða
fram nokkra styrki handa er-
lendum námsmönnum til aö
stunda nám f Sviþjóð náms-
árið 1981—82. Styrkir þessir
eru boönir fram i mörgum
löndum og eru einkum ætlaöir
námsmönnum sem ekki eiga
kost á fjárhagsaöstoð frá
heimalandi sinu og ekki
hyggjast setjast að i Sviþjóð
að námi loknu. Styrkfjárhæðin
er 2.315.- sænskar krónur á
mánuði námsárið, þ.e. 9
mánuöi. Til greina kemur að
styrkur veröi veittur i allt að
þrjú ár.
Umsóknir um styrki þessa
skulu sendar til Svenska
Institutet, box 7434, S-103 91
Stockholm, Sveríge, fyrir 1.
desember 1980 og lætur sú
stofnun i té tilskilin um-
sóknareyöublöð.
Menntamálaráöuneytið
1. október 1980.
Fjöldatakmarkanir
að
nýju
A fundi deildarráðs lækna-
deildar þ. 19 nóvember sl.
var lögö fram tillaga um
fjöldatakmarkanir i lækna-
deild. Hljóðaði tillagan á þá
lund að fjöldi nemenda upp á
2. ár skyldi takmarkaður við
36, og einnig skyldi hækka
meðaltalseinkunn á milli ára
úr 5.0 i 6.5 Var tillögunni
frestað til fundar lækna-
deildar I desember.
Læknaúemar á 1. ári nú
þurfa ekki að óttast að þessi
tillaga nái til þeirra verði
hún samþykkt, þvi I reglu-
gerð er kveðið svo á um að
tillögur um fjöldatak-
markanir þurfa að hafa bor-
ist háskólaráöi fyrir upphaf
skólaárs og afgreiddar þá.
— s.
Enn
skorið!
A fundi háskólaráðs þ. 20
nóvember s.l. upplýstist aö
skv. fjárlagafrumvarpi
Ragnars Arnalds fyrir áriö
1981 er um aö ræða 8% niður-
skurð á fjárlagatillögum
háskólans. Má sjálfsagt tvö
til þrefalda þessa prósentu-
tölu til að fá út hlutfallslegan
niðurskurð á upphaflegum
beiönum deilda. Ætli það
þurfi ekki aö fækka eins og
um eina eða tvær deildir. Lifi
skurðarmeistarinn!
Próf felld
niður?
A háskólaráðsfundi 20. nóv. kom fram að prófhald skólans
er að verða meiri háttar vandamál. Próf komast ekki fyrir i
þvi húsnæði sem til þeirra er ætlað og rúmast ekki innan
þeirra timamarka sem þeim eru sett. 1 umræöum um málið
var varpað fram þeim möguleika aö fellla prófin niður alfarið
og leysa málið á þann veg. Þessari hugmynd var ekki illa tek-
ið.
Stúdentar eygja nú bjarta framtið f prófmálum og verður
það liklega húsnæðisekla skólans sem sér fyrir þvf. Fátt er
svo með öllu illt að ekki fylgi nokkuð gott. Lifi húsnæöisskort-
urinn.
jg-