Stúdentablaðið - 24.11.1980, Síða 24
^TUDENTA
BLADID
7. tbl. 56. árg. 24. nóv. 1980
Einar Páll Svavarsson:
Með byltingu í
farangrinum
Þvi veröur vart á móti
mælt að alþýða manna í
Chile sé undirokuð. Eftir
sjö ára ógnarstjórn herfor-
ingjanna, virðist engu hafa
vaxið fiskur um hrygg
nema kúgunarmeðulum og
manndrápstækni. Þetta
vita allir og herforingj-
arnir lika. Þess vegna
fengu þeir Strauss gamla,
nasistatrúðinn í lýðræðis-
gerfinu, til að koma í
heimsókn til Chile. Þá er
Strauss kom heim til
Þýskalands lét hann hafa
eftir sér, að hann sæi ekki
annað en að i Chile rikti
lýðræði. Þá urðu margir
hvumsa, eru menn þó
ýmsu vanir úr þeim tranti.
Þessar staöreyndir og margar
aðrar komu fram á alþjóölegri
ráöstefnu, sem undirritaöur sótti
fyrir hönd stúdentaráös, I Ham-
borg seinni hluta októbermán-
aöar. Ráöstefnan fjallaöi um
ástandiö i Chile og haföi þaö
markmiö, aö lýsa yfir samstööu
meö baráttunni gegn þarlendum
fasistum. Þaö markveröasta,
sem fram kom á ráöstefnu þess-
ari, voru ræöur fulltrúa náms-
manna i Chile. Þær innihéldu
eftirtektarveröar upplýsingar,
bæöi hvaö varöar stööu náms-
mannahreyfingarinnar I Chile
sem og hiö pólitiska ástand i land-
inu almennt.
Yfirdrepsskapur herfor-
ingjanna
í einni slikri ræöu kom m.a.
fram aö stúdentahreyfingin i
Chile hefur tekiö virkan þátt i
baráttunni gegn hvers kona ger-
ræöisöflum i áratugi. 1 þeirri bar-
áttu hefur hún ávallt átt samstarf
og samleiö meö alþýöunni. Saga
þessarar baráttu er saga af hand-
tökum, pyntingum, mannshvörf-
um og manndrápum. Svo er enn i
dag. Viöbrögö fasista eru einatt
hin sömu. Hvers konar andóf eru
kæft meö öllum tiltækum þving-
unarmeöulum. Nú hafa fasistar
meir aö segja sett upp sparisvip-
inn, þykjast hafa dregiö vopnin úr
sárum andófsmanna og eru farnir
aö setja löggjöf og halda kosn-
ingar. Á þessum yfirdrepskap
tekur enginn mark, þvi slíkar
formlegar breytingar breyta ekki
fasisku eöli herforingjastjórnar-
innar. Valdastaöa hennar grund-
vallast á valdniöslu og misbeit-
ingu þess afls sem hún ræöur yfir.
Slikt á ekkert skilt viö lýöræöi og
mun aldrei tengjast þvi oröi,
sama hversu margar kosningar
veröa haldnar i Chile.
Vinstri menn skilgreina
gjarnan ástandiö i Chile út frá
þeim hagsmunum sem herfor-
ingjarnir standa vörö um. Nefni-
lega hagsmunum kapitalismans.
Þannig þurfa Chilebúar ekki
aöeins aö þola beina valdniöslu af
hálfu hersins og lögrcglunnar,
heldur einnig þær margbreyti-
legu félagslegu og efnahagslegu
takmarkanir sem fylgja kapital-
ismanum. Ekki hvaö sist þar sem
hann birtist i sinni herfilegustu
mynd.
Yfirgengileg fátækt
Ein af ræöum Chilebúanna
sýndi nánast i hnotskurn á hvern
hátt allar þessar takmarkanir
birtast i veruleikanum. Sem full-
trúar þeirra stúdenta sem opin-
berlega eru andsnúnir fasistum,
vorunokkrir þeirra sendir i ,,ein-
angrun” i litiö þorp á afskekktum
staö. f þorpinu buggu aöeins
fimmhundruö manns, en auövitaö
var þar lögreglustöö. Var þeim
gert aö tilkynna sig þangaö á
klukkutima fresti. Ástandiö i
þorpinu var fremur napurt og
fátæktin yfirgengileg. Fólk hrein-
lega ráfaöi um £ nokkurs viöur-
væris. Sem dæmi um eymd þessa
þorps bentu þeir á aö sérhvern
dag heföi liöiö yfir aö minnsta
kosti tvö börn, eingöngu af
hungri. Bentu þeir á aö hér væri
ekki um neitt einsdæmi aö ræöa,
þannig væru kjör alþýöufólks i
Chile.
Nú sér hver og einn I hendi sér
aö háskólarnir i Chile sækja ekki
stúdenta sina til þessara þorpa.
Þannig hefur efnahagskerfiö
vinsaöúr stóran hluta ungmenna.
1 þéttari byggöum Chile er
ástandiö engu betra. Efnahags-
legrar og félagslegar takmark-
anir meina mönnum aögang aö
hvers konar réttindum og áhuga-
sviöum sem þeir æskja.
Steriliserað menntakerfi
I ræðunni kom einnig fram aö
sá hópur sem siðan kæmist inn I
skólana ætti margs konar ógnir
yfir höföi sér, ef hann sýndi snefil
af mótþróa. Herforingjarnir hafa
smiðaö menntastefnu sem er I
fullu samræmi viö „hagsmuni
þeirra og hagsmuni alþjóölegra
auöhringa”. Til aö knýja á um
framkvæmd þessarar stefnu hafa
margir fræöimenn veriö reknir og
rannsóknir hafa veriö bannaöar
eöa takmarkaöar. Markmiö þess-
arar stefnu er aö framleiöa ódýrt
vinnuafl meö lágmarksþekkingu.
Menntakerfiö er þannig mjög
steriliseraö og framkallar fremur
vandamál en menntun, þó aö þaö
séfyrst og fremst þjóöfélagsgerö-
in sem framkállar vandamálin.
Sem dæmi nefndu þeir aö i grunn-
skólum Chile væri vændi og alkó-
hólismi kringum 20%. Astandiö er
þannig ömurlegt i aila staöi og
örbirgö almennings vex stööugt.
Andspyrna
Þrátt fyrir allar þessar tak-
markanir og ógnir er samt starf-
andi andspyrna i Chile. Skiptist
hún einkum i þrennt. 1 fyrsta lagi
er neðanjarðarstarfsemi. Hópar
sem eru ólöglegir og starfa skipu-
lagt og markvisst aö afnámi
fasismans. t ööru lagi eru hálflög-
legir hópar. Skipulagöir kringum
ákveöin mál. I þriöja lagi löglegir
hópar, t.d. stúdentahreyfingin.
Töldu Chilebúarnir aö næsta
verkefni i andstööunni væri aö
samhæfa þessi þrjú sviö. Bentu
þeir einnig á aö námsmenn og
flóttamenn erlendis undirbyggju
heimkomu meö byltingu I far-
angrinum.
Þetta fólk setti einmitt tölu-
veröan svip á ráöstefnuna. 1
Evrópu er fjöldi pólitiskra flótta-
manna frá Chile. Kringum þetta
landlausa fólk þrifst tiltekin
menning, sem eflaust er einn sá
þáttur sem grundvallar samstööu
þeirra. Fengu ráöstefnugestir
smjörþefinn af þessum menn-
ingarheimi er þeim var boðiö á
tónleika meö hljómsveitinni Inti
Illimani. Voru tónleikarnir ákaf-
lega ánægjuleg upplifun og staö-
festu svo ekki veröur um villst, aö
Chilemenn gleyma seint falli All-
ende.
Einar Páll Svavarsson
f .... .. ■
Stoðirhrynja
Hrynja þar stoðir fjallsins það niður fellur
finn ég þar tímans í eldi hrunsins vá.
Svo fer með það allt, það að endingu niður
skellur
sem uppheima stærstum krafti ætlaði að ná.
Þrýstingsins fallhraði í feiknarinnar ómi
fer þar i skriðunum niður brattans hnjúk
Sem Niflheima gervallir herskarar þar hljómi
haldi þar vörð um hinn eilifa lífsins kúk.
G.J. Benediktsson.
Jólafundir SÍNE "
Jólafundir SINE, verða haldnir 22. desember og
3. janúar, klukkan 15.00.
Auk fastra liða eins og venjulega, verður lána-
frumvarpið og helstu baráttumál hreyfingar-
innar rædd.
Félagar fjölmennum i F.S. Stjórn SINE.
Kvenfrelsi og
sósíalismi
Um þessar mundir er um ára-
tugur liöinn siöan konur hér
á landi endurvöktu baráttu slna
gegn þvi að vera þrælar endur-
framleiöslu vinnuaflsins: gegn
þvi aö vera i verstu, lægst
launuðu og óöruggustu störf-
unum: gegn þvi aö vera dæmdar
til aö lifa viö einangrun, einhæfni
og efnahagslegt ósjálfstæöi á
heimilunum: og gegn þvi aö
persónuleiki og lif þeirra sé
ákvaröaö út frá kyni þeirra. A
ýmsu hefur gengiö þennan ára-
tug, en þvi veröur ekki neitaö aö
fylgjendum málstaöarins hefur
fariö sifjölgandi.
A sama tima hefur fariö fram
stööug stefnumarkandi umræöa.
Hún hefur þó veriö háö þeim ann-
mörkum hve litib er birt á prenti
á islensku um kvenfrelsispólitik.
Þvi var þaö aö Fylkingin ákvaö
aö leggja sitt af mörkum og gefa
út ofannefnda bók: Kvenfrelsi og
sósialismi. Er hún nú i vinnslu og
kemur út i desember.
t henni er greindur uppruni og
eöli kvennakúgunar frá sögulegu
og efnislegu sjónarmiði. Hún út-
skýrir itarlega hvernig fjöl-
skyldan er helsta tækið sem notaö
er til þess að viðhalda og efla
kúgun kvenna. Fjallar bókin ekki
aðeins um stööu kvenna i þróuðu
auövaldslöndunum, heldur einnig
i nýlendunum, hálfnýlendunum,
A-Evrópu, Sovétrikjunum og
Kina.
Einnig er i bókinni að finna út-
skýringar á þvi hvers vegna
kúgun kvenna er ekki eðlilegt
eða varanlegt einkenni mannlegs
samfélags, heldur bendir á skyld-
leikann milli undirokunar kvenna
og annarra forma misréttis sem
þrifst i þjóöfélaginu. Sérstaklega
bendir bókin á það hlutverk sem
kvenfrelsishreyfingin gegnir
fyrir baráttuna gegn grund-
vallarstoðum stéttaþjóöfélagsins.
En bókin lætur ekki viö þaö sitja
aö lýsa aðeins einkennum
kvennakúgunarinnar. I henr
einnig settar fram stjórnlist og
stefnuskrá sem viö teljum nauö-
synlegar til aö konur geti þróaö
fram frelsisbaráttu sina.
Þessi bók mun eiga erindi bæöi
til þeirra sem hafa áhuga á aö
kynna sér greiningu sósialista á
kvenfrelsismálum og þeirra, sem
hafa áhuga á þvi hvernig konur
geti best skipulagt sig i barátt-
unni gegn undirokuninni. Hún
veröur um 120 blaðsiður aö lengd,
myndskreytt. Verður hún seld hjá
Fylkingunni á kr. 4500, sem er án
smásöluálagningar. Þaö er opið
mánudaga til föstudaga klukkan
17-19. Einnig er hægt að panta
bókina i póstkröfu i sima 17513
eða bréfleiöis á sama staö,
Laugavegi 53a. Aðrir liklegir
sölustaöir eru Bóksaia stúdenta
og Bókabúð Máls og menningar.
• Sérstök athygli skal vakin á þvi
aö Fylkingarfélagar munu verða
tilbúnir til aö kynna og ræöa efni
bókarinnar á fundum hjá
hverjum sem er, bæði stórum
hópum og smáum.
Aður hefur komið út i sömu rit-
röö Skipulagskenning Lenins-
mans og er hún fáanleg á sama
staö.
(Fréttatilkynning frá Fylking-
unni)
Ritst i órastaða
Staða ritstjóra (fyrir SHÍ) við
Stúdentablaðið er laus til umsóknar.
Umsóknir, er greini frá menntun
og starfsreynslu, berist skrifstofu SHÍ
fyrir 1. janúar 1981.