Fálkinn - 25.08.1928, Síða 7
F A L K I N N
7
HE/MKOMA
SAGA EFTIR
JÓNAS LIE.
Enginn gat sjeð nokkurn mun
;’i garminum honum Mitja og
á hinum Rússunum í fangabúð-
uniun í Dúrotz. Augun voru
jafn smá og snör eins og þús-
undir af öðrum rússneskum
augum. Nefið var breitt og dá-
Htið brett upp á við, hörundið
brúnað af sól og sápuleysi. Hann
var allra manna hversdagsleg-
astur, eins og búða-ofurstinn
sagði er hann hat'ði árangurs-
laust verið að leita að þeim
fanganum, sem hann hafði trú-
að fyrir, að skera sjer vindlinga-
munnstykki úr hjarkargrein.
Mitja stóð við hliðina á ofurst-
anum, en gaf sig ekki fram, þvi
að hann skildi ekkert af þýsku
kokhljóðunum ofurstans og var
því löglega afsakaður. En þegar
uiunnstykkið var húið kom hann
brosandi inn á skrifstofu ofurst-
aias með listaverkið. Og þetta
Varð til þess, að Mitja varð vika-
piltur ol'urstans, lærði þýsltu og
varð einskonar milligöngumað-
Ur hans og landa sinná.
Mitja hafði verið handtelcinn
í Masúríumýrunum. Hann hafði
hlýtt í blindni, legið dögum
saman í skotgröfunum, gengið
hergöngu, sofið og barist og
hlýtt alveg jafn mótþróalaust og
venjulega, þegar honum var
skipað að fleygja frá sjcr byss-
unni og ganga með báðar hend-
ur upprjettar inn í fangabúð-
irnar.
Mitja var í Diirotz í fjögur ár.
Hann frjetti eklcert að heiman
allan þennan tíma. Ekkert frá
Maruschu, konunni sinni, Petja,
drenghnokkanum eða Sergej
föður sínum. Og einn góðan veð-
urdag var Mitja sendur til Berlín
og settur til að aka salernavagni,
ásamt þrekinni konu, ljóshærðri,
herðabreiðri og handleggja-
stuttri. Hún var góð við hann
og gaf honum vindlinga, en hún
þreif altaf taumana og jós úr
sjer skömmunum þegar Mitja
harði horaða klárinn. Hann
komst aldrei að því hvað hún
hjet. Nafnið var ekkert annað
eu einskonar óhljóð, sem hann
g'at ekki haft eftir.
Einn daginn hvarf hún. Fólk
þyrptist saman á götuhorni.
Herdeiklir fóru um strætin öðru
hverju. Þegra Mitja ók vagnin-
um heim uin kvöldið var portið
læst. Hann barði á dyr með
stígvjelahælnum og kona dyra-
varðarins kom og sagði honum
að fara norður og niður. Mitja
8erði það. Skildi vagninn eftir,
en seldi hestana hálffullum sjó-
hða, Ijet ekki renna af sjer í
viku, lagði lag sitt við hermenn-
uia, sem gert höfðu uppreisn,
svaf í keisarahöllinni og komst
úieð naumindum undan byssu-
slingjum þjóðernissinna. Mán-
hði síðar var hann handtekinn
USarnt noklcrum hundruðum
nianna og kastað í skip, sem
sighli með hann til Kronstadt.
Mitja kysti ekki hina helgu
,n<)ld ættjarðarinnar er hann
steig í land aftur. Og grjet ekki
ei' hann sá gyltu turnana á
kinaillovskakirkjunni. Hann á-
varpaði inann, sem var að selja
eldspítur á götunni, en hann
skildi ekki mállýskuna sem
hann talaði og þá fór Mitja að
hölva á þýsku.
í þrjú ár fór hann fótgang-
andi um Rússland. Tók sjer fari
á þakinu á járnhrautarvagni frá
Moskva til Odessa og hjelt á-
fram fótgangandi austur á bóg-
inn og snikti mat hjá frönsk-
um ferðamanni, sem hann að
lokum rændi. Svaf á nóttunni
og gekk á daginn, mánuð eftir
mánuð. Og Mitja fór að halda
ræður á sovjetfiindunum. Hann
hafði sjeð heiminn og komið
inn í höll keisarans í Berlín.
Eins og farfuglarnir fljúga í
ákveðna átt, eins hjelt Mitja til
suðausturs. Og eitt kvöld sá
hann hylla undir þorpið sitt
austur á sljettunni. Hann var
ekki einn. Tetchingedawai .. .. !
Hann var ineð háskólaprófessor
cg þeir drukku saman flösku af
heimabrugguðu vodka. Þeir
drukku lítið, ekki mikið, gerð-
ust háværir og staðnæmdust ut-
arlega i þorpinu við húsið henn-
ar Maruschku.
— Vinur minn, sagði prófessor-
inn. Hún tekur á móti þjer eins
og glataða syninum, þrýstir þjer
að brjóstum sjer og slátrar ali-
kálfi. Jeg ætla að hinkra við
l’yrir utan, til þess að trufla
ykkur ekki.
Mitja fór inn. Kona stóð við
hlóðin og var að elda. Hún var
farin að eldast. — Maruschka,
hugsaði Mitja með aðdáun. And-
litsdrættirnir voru skarpir og
þreytulegir, mynd sults og seyru.
En hún hafði þó varla ástæðu
til að vera óánægð. Hann varð
gramur yfir þessu og sparkaði í
stól.
— Hvað vilt þú hjer inn, var
hrópað með ljótri, gjallandi
rödd, eins og hljóðið kæmi frá
fiðlustreng sem er að slitna. —
Jeg vil ekki hafa fulla menn inn
í mín hús! Út með þig.
Hann hló, tók stólinn og sett-
ist.
— Maruschka, sagði hann
blíðlega og hallaði undir flatt.
Hún hörfaði undan út í hornið
og horfði á hann, eins og hún
vissi ekki sitt rjúkandi ráð.
Hann stóð upp. Endurtók nafn
hennar, urraði það eins og björn
og færði sig nær henni. Þá opn-
aðist hurðin inn í herbergið við
hliðina á stofunni og ungur
maður kom inn, með hrafnsvart
hár og strítt. Hann gerði sig
byrstan og líklegan til alls.
—- Hver er þetta, spurði Mitja,
alveg hissa, en fjekk ekki svar.
Svo sneri hann sjer að mannin-
um sem inn kom. Maruschka
stóð kyr og steinþagði, en
augnaráðið varð flóttalegt.
— Jeg er maðurinn hennar,
sagði sá sem inn kom.
—■ Ha, en jeg þá? Mitja
reyndi sem hann gat að láta
sjer ekki fatast.
— Jeg er Mitja. Hann hnykl-
aði brúnirnar, teygði fram var-
irnar, eins og börn gera og end-
urtók: Mitja. Þá datt honum alt
í einu í hug, að nú væri hann
ineð alskegg og mundi því ekki
vera þekkjanlegur.
En nú kom kvenvonskan fram
í almætti sínu. Hún hugsaði til
skammanna, sem nú mundu
dynja yfir, höggin, sem greidd
mundu verða á háða bóga og
börnin, sem hjúfruðu sig að
henni. — Mitja er dáinn, jeg
þekki þig elcki, sagði hún og
sneri sjer undan. Mitja gat sjeð
það á bakinu á henni, að hún
laug á móti betri vitund. — Hún
vill ekki kannast við mig, sem
hefi sofið í höll keisarans og
kann að tala tvö tungumál,
hugsaði hann með sjer og var
hissa. — Hún lýgur! Og ókunni
maðurinn, sem nú var kvæntur
henni, sá þetta líka, hugsaði það
sama, lagði fingurgóminn á
vörina á sjer og sagði hægt:
— Og þó það væri satt. Þó
þú værir Mitja. Gömlu lögin eru
gengin úr gildi. Við erum gift
samkvæmt nýju lögunum.
— Og Petja?
Hún leit lymskulega á hann.
— Hann dó í fyrra, þegar
minst var um matinn.
— Og Sergej?
Hún svaraði án þess að vikna:
— Úlfarnir hirtu hann í hitti-
fyrra, þrjár verstir hjerna frá,
úti á steppunum.
Hann horfði á börnin þrjú, á
hlóðirnar, á sperrurnar og bit-
ana, á Maruschku, á ókunna
manninn, sem nú var maðurinn
hennar — horfði lengi á þau.
— Þú gætir fengið að liggja
hjerna í nótt. En það er þröngt
hjá okkur. Og hann benti á
börnin þrjú.
Mitja var þakklátur fyrir gest-
risnina og kinkaði kolli, braut
heilann um hverju hann ætti að
svara, en datt ekkert í hug. Og
svo gekk hann þegjandi út.
í skurðinum við veginn fyrir
utan lá prófessorinn steinsof-
andi. Stígvjelin hans með stóru
götunum stóðu upp úr. Mitja
fór þegjandi úr frakkanum
braut hann saman og stakk und-
ir höfuðið á sjer. Eftir að hann
var lagstur flökraði það að hon-
um að kveikja í húsinu hennar
Maruschku. Hann fór að leita
að eldspítum en fann þær ekki
og sofnaði út frá öllu saman.
----------------------;----■»<
Sv. Jónsson & Co.
Kirkjustræti 8b. Sími 420
hafa fyrirliggjandi miklar
birgðir af fallegu og end-
ingargóðu veggfóðri.papp-
ír, og pappa á þil, loft
os gólf, gipsuðum loftlist-
um og loftrósum.
Verslið
ÍÍOiSOOOOOCnatSaííOOOOOaOSíOOCíia
o o
o o
o o
o
o
o
o
o
§ o
o o
§ í §
i 1
j Edinborg. j
I I
ooooooooooooooooooooooooo
OSRAM
PERUR
hvergi ódýrari
en hjá
H. P. Duus.
Best Uaup hjá
J. Þorláksson & Norðmann.