Fálkinn


Fálkinn - 25.08.1928, Side 10

Fálkinn - 25.08.1928, Side 10
10 F Á L K I N N m= 11 KONUR! | j LítiS til karlmannanna, : : : | hve mjög þeir líftryggja ! ! 1.111 iiniii — Eruö þjer eigi jafn : ! 2 I verðmætar þeim? ! ! „Andvaka“ — Sími 1250. ! : m-— Heiðruðu húsmæður! Notið eingöngu langbesta skóáburðinn. Fæst í skóbúðum og verslunum. *......... =---------- Austurstræti 1. ReykjaYík. Vefnaðarvörur úr ull og baðmull. Allskonar fatnaðir ytri sem innri ávalt fyrirliggjandi. - -----Z Fyrir kvenfólkið. Konungleg barnakerra. Þessi mynd cr af Ástriði krón- prinsessu í Belgíu. Það þykir tíðindum sæta að hún sjálf ek- ur barni sínu um yöiur Bryssel- arborgar, og hefir þessi mynd af lienni birtst í mý-mörgum er- lendum blöðum. KVENNALIÐ MUSSOLINI. Mussolini hefir meSal margs aunars lcomið bví til leiðar, að kvenfólkið í ítaliu iðkar íþróttir miklu meira en áður gerðist. Og í fascistafjelögunum ítölsku liafa hvarvetna myndast leik- fimis- og íþróttaflokkar, skipaðir kvenfólki eingöngu. Páfanum var þetta ekki að skapi, og liann andmælti því harðlega. En það virðist ekki hafa borið tilætlaðan árangur, því kven- fólkið hamast ineira en nokkru sinni fyr, og er nú farið að æfa sig í vopnaburði og skylmingum. Eru það kvenskátar, sem gengið liafa á undan í ]>essu. í ræðu, sem aðalritari fascistafjc- laganna lijelt nýlega í Rómaborg mintist liann á kvenfólkið, sem væri farið að læra að fara með byssu. „Það er ekki til þess að geta notað byssuna í ófriði, ekki til þess að drepa. En það er til þess, að herða kvenfólkið, til þess að nýja kynslóð- in verði ekki eins og sú fyrri. Nú er kvenfólkið svo viðkvæmt, að það líð- ur yfir það ef það sjer byssu“. En tilefnið til mótmæla páfans var kven-iþróttamót eitt mikið, sem ný- lega var lialdið í Róm. Tóku þátt í mótinu 3000 leikfimisstúlkur og alls- konar íþróttir voru uin Iiönd hafðar, einnig aflraunir. En páfanum sárnaði mest, að stúlkurnar skyldu iðka spjót- kast og kunna að fara með byssu. — IJað hafði verið einkennileg sjón, að ganga um götur Rómaborgar þá daga sein mótið var. Alstaðar gaf að líta ungar, stuttkliptar stúlkur, í fascista- húningi, og þessar stúlkur eru jafn ólíkar hefðarmeyjunum i Róm eins og dagur er nótt. Þvi hefðarmeyj- arnar í Róm eru af „gamla skólan- um“ og kæra sig kollótta um kven- rjettindi. „Kvenbúningur fascista er eflir nýj- ustu tísku og tilkomumikill", sagði Mussolini í ræðu er hann útbýtti verð- laununum eftir mótið. En búningur þessi er: hvítur „jurnper" og felt pils, svart, svartir skór og sokkar og svart- ur höfuðbúnaður er líkist mest vefj- arhatti og eftirlíking „Berettu" Rafa- els og keimlikur tyrkneskum fez. En þegar fascistastúlkur eru á gangi á götum úti verða þær þó að liafa yfir- liöfn (,,slá“) — vitanlega svarta —- yfir búningnum. Allar fascistastúlkur úr norðurhjeruðum Ítalíu eru incð drengjakoll, en hinsvegar ganga stúlk- urnar frá Sikiley, Calabríu og öllum hjeruðum fyrir sunnan Napoli ennþá allar með langt hár.. VENUS NÚTÍMANS. Hjerna á árunum varð einhver til þess að mæla vaxtarlag Venusar- lílcneskisins fræga nákvæmar en nokk- ur skraddari mælir mann sem liann á að sauma föt á. Og málin voru send um allan heim, og kvenfólkinu sagt, að ef likainsvöxtur þeirra væri fallegur ætti liann að svara sem best til þessara mála. En nú er þetta vaxtarlag horfið úr tísku. Og hafa nú verið gefin út ný mál, sem eiga að vera samkvæmt kröfum nútímans um fagurt vaxtar- lag. Eru þau meðaltal af málum, sem tekin hafa verið af söngmeyjunum í „Ziegfield Follies“ New York, en þær þykja bera af öllu kvenfólki að lík amsfegurð, og sjerfræðingar eru ávalt á ferð frá þessari stofnun til þess að ráða þangað kvenfólk, sem skarar fram úr að vaxtarlagi. En málin á Zieg- field-stúlkunuin eru svona: Hálsinn 34 cm, hrjóstið 88 cm, mittið 72 cm, mjaðmirnar 05 cm., lærið 50 cm, kálfinn 36 cra, öklinn 18 cm., framliandleggur 22 cm, úlí- liður 15 cm. og upphandleggur 26 cm. Hæðin á að vera 160 centimetrar og þyngdin 57 kílógröm. Fyrir löngu liafa menn samið skrár um, hvernig hlutfallið eigi að vera milli líkamshæðar og þyngdar. Var gamla reglan þannig, að fólk ætti að vega jafn mörg kilógröm eins og hæð ]>ess væri margir centimetrar fram yf- ir hundrað. T. d. ætti stúlka, sem væri 56 kg. á þyngd að vera 156 cm. á hæð. En nú gera menn aðrar kröf- ur, og hlutfallið milli liæðar og ])yngdar er svona, samkvæmt liinuin nýjustu kröfum: Hæð 146 cm. = l>yngd 43.5 kg. — 148 — = — 45.5 — — 150 — = — 46.25 — — 152 — = — 47.5 . — — 154 — = — 49.5 -— — 156 — = — 50.75 — — 158 —= — 52.5 — — 160 — = — 55.25 — — 162 — = — 57.25 — — 164 — = — 59.75 — — 166 — = — 62.75 — — 168 — = — 63.75 — — 170 — = — 66.75 — — 172 — = — 70.5 — Taflan nær ekki lcngra en að 172 centimetra hæð, livort sem það á að skiljást sem svo, að konur megi ekki vcra hærri. 172 cm. er vitanlega al- veg nóg. Greta Garho, liin fræga sænska kvik- myndaleikkona, liefir skrifað æfi- minningar sínar í lilaðið „Photoploy". Kemst hún ]iar m a. inn á, livers- vegna hún liafi ekki gifst og svo skrifar liún: Mjer hefir altaf fallið vel að vera ein, en ekki altaf vera „ein“ með sömu persónu. hyggin husmoðir lítur í pyngju sína áður en hún lætur tvo peninga fyrir einn. Af bestu dósamjólkinni jafngildir 1 mjólkurdós 1 lítra nýmjólkur. — Hvaða vit er þá í því að kaupa mjólkurdósina mikið hærra verði heldur en nýmjólkur- líterinn. Ekki er það af því að hún sje betri. Verið hagsýn, kastið ekki peningunum frá yður og það að mestu út úr landinu. Hugsið um velferð barnanna. Qefið þeim mikla nýmjólk. Notið mjólkurmat í hverja máltíð, það verða áreiðanlega ódýrustu matarkaupin. En kaupið hana hjá: MJÓLKURFJELAGI REYKJAVÍKUR Keillier’s County Caramels eru mest eftirspurðu og bestu karamellurnar. í beildsölu hjá Tóbaksverslun íslands h.f. Einkasalar á íslandi.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.