Fálkinn


Fálkinn - 25.08.1928, Qupperneq 14

Fálkinn - 25.08.1928, Qupperneq 14
14 F A L K I N N Mlmm i OisEn ÍÉ --- REVKJAVÍK ------ ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði. Biðjið um BENSDORPS SÚ KKULAÐI Odýrast eftir gæðunum. Ávalt fjölbreyttar birgðir af HÖNSKUM fyrirliggjandi. HANSKABÚÐIN. SRáR-éæjni nr. 2. Eftir Giiðm. Bergsson. Hvítt byrjar og mátar í 2. leik. Lausn á krossgátu nr. 2. L á r j e 11. 1. I>rusk, 5. gnegg, 9. já, 10, árbrú, 12. ár, 13. íri, 14. rá, 16. lilána, 18. eg, 19. krani, 21. dregg, 23. ala, 24. mig, 25. hnaus, 27. fanir, 29. ás, 30. Kapcr, 32. nú, 33. már, 34. er, 36. garró, 38. rá, 39. nárán, 40. óspar. LóSrjett. 1. Þjark, 2. rá, 3. sá, 4. krili, 5. grind, 6. nú, 7. já, 8. grugg, 11. brú, 15. árans, 16. hnauk, 17. armar, 18. eggin, 20. ala, 22. ein, 25. iiásin, 26. saman, 27. Ferró, 28. rúmar, 31. pár, 35. rá, 36. gá, 37. ós, 38. rá. Meiri liluLi lausnanna sem hárust voru rjettar. Við útdrátt úr rjettu lausnunum var dregið nafn Sesseiju Sigurðardóttur, Skólavörðustíg 9. Vitji hún verðlaunanna á skrifstofu Fálk- ans, Austurstræti 6. □*p---------------------- F Þvottabalar . . . Kr. 3,95 Þvottabretti... — 2,95 Þvottaklemmur — 0,02 Galv. fötur ... — 2,00 Kaffikönnur . . — 2,65 Katlar........... — 4,55 Pottar........... — 1,85 l Sigurður Kjartansson. I Laugaveg 20 B. Sími 830. Jj □^_______________________ Weber & Feustel, Greiz, Þýskalandi. Mjög fjölbreitt sýnishornasafn af sjer- staklega góðum og fallegum ullarkjólaefn- um frá ofangreidu firma hjá TAGE MÖLLER. Sími 2300 (heimasími 350). Seljið ekki tófuyrðlinga án þess að tala við íslenska refaræktarfjelagið. Sími 1221. Símnefni: Fux. en tók þó ekki eftir nakta fætinum, sem Itússinn hafði sjeð, og ekki gat hann held- ur greint andlit mannanna, því þau voru hulin uppbrettum krögum og niðurbrett- um höttum. En eitthvað fanst honum skrít- ið að sjá þá leggja svona stóran böggul, vaf- inn í bláa álneiðu, inn í ltifreiðina. Ungi maðurinn leit í kring um sig ó- ákveðinn. Engin lifandi sála var á götunni, að undanteknum mönnunum, sem hann hafði þegar sjeð. Hann gekk út úr skugg- anum undir sóltjaldinu, og þá tóku menn- irnir við bifreiðina að flýta sjer grunsam- lega mikið, og áður en margar sekúndur voru liðnar, var bifreiðin koinin af stað á l’leygiferð. f sama vetfangi stökk hálfklæddur mað- ur út úr húsdyrunum. Hann var einna lík- astur einhverskonar illvætti, með strítt, ó- greitt hárið. Hann öskraði af reiði þegar hann sá Minerva-vagninn hverfa fyrir götu- hornið, og sneri sjer að unga manninum, sem þar stóð. Suzzi hefir verið numin burt —, æpli hann og reif í hár sjer. Flýtum okkur á eftir þeim* Og án þess að litast um eftir eiganda bif- hjólsins, þaut hann að því og setti það af stað, því svo var hann heppinn, að það var ólæst. Hann setti fljótt á fulla ferð á eftir bifreiðinni. Hvorugur mælti orð. Alexis sat við stýrið, en Philip sat á aftursætinu. Bifhjálið þaut áfram eins og byssuskot, með nieiri hraða en áður hafði þekst í ann- álum Amsterdamborgar. Lögreglumenn ætl- uðu að reyna að stöðva það, en hættu fljótlega öllum tilraunum í þá átt, lil þess að hætta ekki lífi sínu um of. Alexis kunni að stýra og hepnin var með honum. Á horninu hjá Vondelpark þar, sem ríkisbubbar borgarinnar búa i strjálum hús- um, kom hann auga á bifreiðina, sem dró heldur ekki af ferðinni. En hvað getur góð bifreið, sem öll Belgía er hreykin af, móti góðum Henderson? .... þar sem hann, á annað borð hefir svigrúm lil að aka eins hratt og honum líst? linni í bifreiðinni sátu Charles Rigault og barón van Pjes og studdu stóra böggulinn í bláu ábreiðunni. — Þetta gekk fljótt, sagði Rigault, jeg tók hana í baðinu —t- allsnakta. Herra minn trúr, hvílík sjón .... Hollendingurinn urraði. Augu hans voru blóðhlaupin. — Svo selli jeg klóróformhettuna yfir andlitið á henni, hjelt Frakkinn áfram. Það skeði á einni svipstundu. Sagði ekk- ert einasta orð, og gaf ekki hljóð frá sjer. Maður hefir nú líka æfingu .... — Nakin, tautaði baróninn, .... nakin ...., og grófu hendurnar ætluðu að fara að taka ábreiðuna frá .... — Hægan, hægan, sagði Rigault .... þjer verðið að hafa þolinmæði. Fyrst verð jeg að rá 50.000 gyllini, því þetta er hættulegt fyrirtæki, eins og þjer getið skilið .... Hann komst ekki lenggra. Stóra bifreiðin ipptist við, hallaðist og staðnæmdist. Hringurinn á öðru afturhjólinu var sprung- inn, og það munaði minstu að bifreiðin ylti út i síkið. Þá kom andlit á rúðuna og baróninn rak upp æðisgengið öskur. — Það er dansarinn, æpti hann, — dreptu hann .... f sama bili sá Rigault annað andlit á hinni rúðunni. —- Dauði og djöf- ull, æpti hann, — nú er um að gera að vera snar. Og Rigaull dró upp skammbyssu sína. 31. Kapítuli. Þvi miður er ekki til nein fullkomin lögregluskýrsla um bardagann við síkið hjá Vondelpark í Amsterdam. Eitia vitnið, sem máske hefði getað gefið slíka skýrslu, er þögult, al' góðum og gildum ástæðum. Þetta er sjerstök saga, og er sögu vorri, að mestu leyli óviðkomandi. Hollensku blöðin fengu heldur eltki tæki- færi til að kynnasl þessari sögu út í æsar, þótt fleiri mannslif en eitt færu þar l'orgörð- um. Ýmsar tilgátur komu auðvitað fram, en lögreglustjórinn, sem sjálfur var ekki nægilegá kunnugur öllum atvikum, vildi ekki láta meira af hendi við forvitna blaða- menn, en nauðsyn krafði. Og alt var það vegna hinna fögru augna Suzzi Lacombe. En vjer höfum seinna hitt mann þann, er kallaði sig ranglega Jakob Harvis, úti á einum útkjálka veraldar — vjer segjum ekki hvar. — Hann var hamingjusamur maður, en slíkir menn vilja fúslega segja æfisögu sína. Jeg hef leyfi hans til þess að hripa niður aðaldrættina af frásögn hans. Því hvað gerir nafn til eða frá á vorum dögum, þegar annarhvor maður gengur undir fleiri nöfnum en einu. Nú vill enginn heita Olsen, Sörensen, Smith eða Duval lengur. Þetta er óskiljanlegt, en þó satt. Það eru óalgeng, hljómfögur nöfri, að viðbætt- um titlum, sem ganga mest í augu manna. Hver óbreytt „Miss Ameríka“ vill vera hertogafrú. Lofinn henni bara að krækja sjer í hertoga. Eftir þenna útúrdúr skundum vjer al’t- ur til bifreiðarinnar við Vondelpark. Menn geta tæpast hugsað sjer hentugri stað til að gera upp reikningana við óvini sína, en þann, þar sem Minervabifreiðin stóð og hallaðist út að síkinu — mitt í löngum trjá- göngum. Þetta var á þeim tíma dagsins, þegar umferð var sama sem engin — sem sje í hádegisverðartímanum. Næsta íbúðar- húsi var í hjer um bil 100 metra fjarlægð. Þar voru fáein börn að leika sjer í garðin- um. Þau heyrðu að vísu nokkur skot, en sáu ekkert. Liðsmunur var milcill. Tveir alvanir menn vopnaðir skammbyssum, annarsvegar, en hinsvegar ungur dansari með lítinn rýting í hægri hendi. Með honum hafði hann stungið gat á afturhljólið á bifreiðinni. Og við hlið hans stóð ungur nautnaseggur með mjóan göngustaf og ljettan að vopni. Apk þessara, sem taldir hafa verið var bif- reiðarstjórinn, sem var þjónn baróns van Fi es. Hann hefði vissulega getað ráðið úr- slitum, húsbónda sínum í hag, á skömmum tima, ef ekki hefði kálfshjarta setið i brjósti hans. Jafnskjótt, sem hann sá bifhjólið greip hann flóttann — til Jiess að kalla á hjálp — el'tir Jivi, sem honuin sagðist síð- ar frá. Bardaginn ýar því á milli fjögurra mánna og var ekki annað fyrirsjáanlegt en úrslitin væru fyrirfram ákveðin — eldri ömnnunum í vil. Tvær nýtísku skammbyss- ur móti rýting og göngustaf .... En hjex‘ kom það í Jjós, sem svo aft áður, að inenn með sauruga samvisku berjast oftast klaufalega.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.