Fálkinn - 20.10.1928, Side 7
F A L K I N N
7
fíflarnir á Hornströndum.
Eftir Jóhannes úr Kötlum.
Hann var ákaflega lítill; það
Var alveg satt. Og það var svei
Mijer fyndið af forlögunum að
láta hann eignast þessa stóru
konu. En það vildi til, að hann
yar maður til að leika á forlög-
m aftur á móti. Og einm'itt um
það er þessi saga.
Hann hjet Jóakim og var
skólapiltur i Reykjavík, þegar
sagan hefst. Litli Kimi var hann
altaf kallaður, og þótti honum
hað hin argasta háðung. Hann
reyndi að hafa þykka sóla undir
skónum sínum og háan hatt á
höfðinu. En ekkert dugði. Hvern-
sem hann reyndi, gat hann
aídrei orðið meðalmaður að hæð.
Hann var fremur duglegur
við að læra lexíurnar sínar, og
hegar einhver hafði orð á því
við hann, að eldci myndi heila-
hú hans vera minna en í öðrum
áiönnum, ljet hann vcl yfir
þeirri uppgötvun.
Fremur var litla Kima gjarnt
til kvenna, en var þó frámuna-
legur klaui'i í þeim sökum, og
hendi hann smæð sinni um það
eins og annað. Ungu stúlkurnar
hæddu hann og stríddu honum á
^msar Jundir og fjelagar hans
sögðu, að svo kvenlegar tilfinn-
ingar myndu aldrei glæpast á
svo kvenlegu útliti. Þetta þótti
Kiina horngrýti hart, og lrugs-
nði sjer að sanna liið gagnstæða
með tímanum.
Þá vildi það til, að fröken
Margrjet varð þjónustustúllca
hjá matselju hans. Hún var liá
°g iturvaxin, eins og stærðar
karlmaður, vaxin upp úr mesta
meyjaí'J) 1 ómanum, en þó vel að
sjer um ýmsa liluti. Þar að auki
vnr hún vel efnuð, sem oft
1-eyndist kostur í augum fátækra
skólapilta.
Þessi stúlka var sú eina, sem
nldrei henti gaman að smæð Jóa-
kims. Niðurstaðan varð loks sú,
nð þau fóru að skiflast á hýr-
II m augum í laumi og mæla sjer
mót suður við Skcrjafjörð á
sunnudagsnóttum. Og daginn
Sem litli Kimi slapp úr skólan-
um setlu þau upp hringana.
Það mátti segja að Reykjavík
^etlaði að missa vitiö i fyrsta
sinni, sem þau Jóakim og Mar-
gi'jet sáust saman á götunni.
Það var álilía lirífandi atburður
°g þegar Oddur gainli af Skagan-
llm sást fyrst í litklæðunum sín-
llm. .— Menn tóku fyrst eftir
þeim niður í Aðalslræti. Og fólk-
Jð safnaðist utan um þau, með
uPpglent augu og eyru, eins og
gráðugir gammar utan um hræ-
III á amerísku sljettunum.
Litli Kimi þoldi ekki mátið.
hann ætlaði að reyna að forða
sjer frá þessu heljarstóra konu-
efni sínu, smeygja sjer inn á
milli stóru mannanna og reyna
nð fela sig í þrönginni. En Mar-
gejet tólc þjettingsfast í liandlegg
hans og teymdi hann með sjer
lnn Austurstræli og upp Lauga-
Veg- Altaf óx mannfjöldinn, æp-
andi og bendandi, og lögreglan
vjeði ekki neitt við neitt. Mar-
grjet var hinn rólegasta og
hvarf inn í eittlivert liúsið með
unnusta sínum, áður en nokk-
urn varði.
„Þetta er ljóta eldraunin“,
tautaði litli Kimi, þegar þau
voru sloppin inn. „Jeg þoli þetta
ekki til lengdar, bætti hann við
og þurkaði af sjer svitann.
„Er það þá satt, Jóakim, sem
strákarnir hafa verið að segja.
Er það virltilega satt, að þú sjert
ekki karlmaður"?
Margrjet var nokkuð hastar-
leg í rómnum.
„Ó, þú mátt ekki vera reið,
elsku Margrjet inín“, svaraði
Kimi. „Jeg get ekki gert að því,
hvað jeg er lítill“.
Eftir þetta sáust þau aldrei
saman á götu í Reykjavík.
Um þessar mundir kom sá
framfarakippur í Hornstrend-
jnga, að þeir stofnuðu með sjer
kaupfjelag, En svo vantaði þá
náttúrlega lærðan og duglegan
framkvæmdastjóra að sunnan.
Samvinnuskólapiltana langaði
ekkert norður á Hornstrandir,
svo þetta ætlaði að lenda í
mestu vandræðum.
Margrjet, unnusta litla Kima,
hafði eitt sinn lokið prófi i
Verslunarskólanum með ágæt-
um vitnisburði. Nú eggjaði hún
Jóakim sinn á, að sækja um
þelta ágæta embætti. Hann fjelst
loks á það, en þó með vissu
skilyrði, sem síðar mun koma
í ljós. Kimi fjekk orðalaust
framkvæmdarstjórastöðuna, því
hann var svo heppinn að þelckja
einn slcrifstofuþjóninn hjá S. í.
S. — Þau hjónaleysin giftu sig,
áður en þau hurfu norður og
fengu um leið konungsleyl'i fyr-
ir ættarnafninu Fífill.
„Göðafoss“ lá á höfninni og
fyrsti ílutningsbáturinn var að
lenda. Aðeins tveir farþegar
stigu á land og skálmuðu upp
bryggjuna. Það var herra Fífill
hinn nýji framkvæmdarstjóri,
og frú lians. Kaupfjelagsstjórn-
in, þrír ráðsettir og aívarlegir
öldungar, stóðu i tjörunni og
tóku á móti þeirn ungu hjón-
unum.
Þeim leist vel á hið iturvaxna
karlmenni, sem hér eftir átti að
„afhenda" þeim og „inn-
heimta“. Öllu miður geðjaðist
þeim að þessari smávöxnu konu
hans, sem slcartaði i nærskorn-
uin reiðbúningi — og reigði
snoðinn drengjakollinn. Þeir
voru óvanir þesskonar viðrinum
þar á Hornströndum, því að í
fljótu bragði var það stærðar-
munurinn einn, sem greindi þau
hjónin að.
Það glampaði á nýsmíðað
kaupfjelagshúsið norður á eyr-
inni. Þangað hjeldu nú fjár-
málamennirnir, þvi í því húsi
var einnig hin fyrirhugaða íbúð
framkvæmdastjórans. Þau hjón-
in lýstu því yfir við dyrnar, að
þau æsktu einkis nema hvíldar-
innar og tóku þá gömlu menn-
irnir hæversklega ofan og hypj-
uðu sig.
Alt var tilbúið í nýja húsinu,
eins og um hafði verið samið.
Meira að segja hjónarúmið stóð
þar uppbúið.
„Heldurðu að ráð mitt ætli
ekki að hepnast bærilega“? sagði
frú Fífill, þegar hún var að
hátta og púðarnir hrundu utan
af henni.
„Jú, það er jeg alveg viss
um“, svaraði framkvæmdastjór-
inn og tók ístruna af magan-
um á sjer. Það er víst ekki mik-
ill vandi að leika á þessa hless-
aða Strandaglópa“.
„Já, það eru nú eiginlega for-
lögin, en ekki Hornstrending-
arnir, sem mjer hefir loks tek-
ist að leika á“, svaraði frúin og
vatt sjer upp í.
Tíminn leið á Hornströndum
sem hvarvetna. Ivaupfjelagið
nýja dafnaði eins og fífill, sögðu
karlarnir og þökkuðu það nafn-
inu á blessuðum framkvæmda-
stjóranum. Þau hjónin urðu þvi
fljót vinsæl, enda þótt fólk
þættist verða vart við ýmislegt
nýstárlegt í fari þeirra. Frúin
þótti heldur ómannblendin og
hjákátleg í klæðaburði, því þá
sjaldan hún sást, var hún altaf
í reiðfötum eða „karlmanns-
fötum“ eins og kjaftakerlingarn-
ar orðuðu það.
En svo kom það upp úr kaf-
inu, að þetta var „siður fyrir
sunnan". Og loks voru allar
ráðgáturnar leýstar með þess-
ari sömu staðhæfingu: að þetta
væri siður fyrir sunnan.
Það þótti mönnum því und-
arlegast af öllu, hvað fram-
kvæmdastjórinn fitnaði ofsalega,
þegar fram liðu stundir. Að
vísu hafði hann verið ýstrubelg-
ur alla tíð, en þó var ýstran alt-
af að vaxa, jafnt og þjett. Menn
þóttust vita að þetta væri afleið-
ingar af leynilegri víndrykkju,
og ljetu það altsaman gott heita.
En einn góðan veðurdag lagð-
ist framkvæmdastjórinn íarveik-
ur. Langt var læknis að vitja,
svo það ráð var tekið að sækja
yfirsetukonuna til bráðabirgða,
ef ske kynni að hún gæti eitt-
hvað hjálpað.
Og mikil var undrun yfirsetu-
konunnar, sem von var, þegar
hún uppgötvaði að framkvæmda-
stjórinn var orðinn jóðsjúkur
og að því kominn að ala barn.
Og enn meiri varð undrun henn-
ar, þegar frú Fífill kom að rúm-
inu og spurði ósköp sakleysis-
lega: „Jæja, hvað segið þjer um
konuna mína, ljósmóðir góð?“
En það vildi til, að Ingibjörg
gamla yfirsetukona var veraldar-
vön og hvorki hrædd nje hjá-
trúarfull. Hún tók á móti barn-
inu, eins og ekkert væri um að
vera. Alt gekk eins og í sögu.
Þarna fæddist fallegur drengur,
nýr fífill á akri mannlífsins.
Herra Fífill og frú buðu Ingi-
björgu gömlu gildan sjóð, ef hún
þegði og gengi í lið með þeim.
En hún hristi bara höfuðið og
þagði.
Skömmu síðar voru þau hjón-
in kærð fyrir sýslumanninum,
því enginn gat trúað því, að ann-
að eins og þetta væri siður fyr-
ir sunnan. Sýslumaðurinn þar
á Ströndunum hafði í marga
krappa raun komist um dagana,
en þó var þetta ltanske sú krapp-
asta.
Framkvaandastjórinn, eða rétt-
ara sagt Margrjet, játaði að hafa
klipt hár sitt og klæðst buxum,
peysu og frakka. En ef þetta
væri hegningarvert hjá sjer, þá
væri þúsundir kvenna um land
alt sekar um samskonar athæfi.
Frú Fífill eða litli Kimi kvaðst
vera saklausari en nokkurt harn.
Hann hefði aldrei í pils komið
á æfinni, og enga lifandi sál beð-
ið að kalla sig frú. Það væri
stærðarmunurinn einn, sem varp-
að hefði þessu ryki í augun á
fólkinu.
Annars kváðust þau hjónin
bæða hafa konunglega heimild
fyrir karlkynsnafninu Fífill, og
gætu menn, ef þeir vildu, kært
konunginn fyrir þá vitleysu. —
Hitt væri einkamál eitt, hvern-
ig þau skiftu með sjer verkum
í lífsbaráttunni, enda myndi
Kaupfjelaginu standa svo hjart-
anlega á sama um, hvort það
væri karl eða kona, sem hjálpaði
því til að græða.
Þarna stóð þá sýslumaðurinn
ráðalaus á þurru landi. Lögin
voru orðin úreltari en hann var-
aði sig á. Hann tók þá bara það
ráð, að segja Hornstrendingum
að skammast sín. Þeir þektu
ekki nótt frá degi — og ekki
karl frá konu. Svo sló hann í
klárinn sinn og reið hurt í fússi.
Litli Kimi hló og hugsaði, að
þetta þyrfti bannsettur Reykja-
vílcur-skríllinn að frjetta. —
Hornstrendingarnir hlýddu yfir-
valdi sínu og Ijetu alt sitja við
sama.
Margrjet varð framkvæmda-
stjórinn áfram.
Kaupfjelagið dafnaði eins og
fífill.
Litli strákurinn hennar dafn-
aði eins og fífill.
Og það var eins og heldur
farið að togna úr Kima. Hann
liafið leikið eitthvað svo laglega
á forlögin.
■«
Sv. Jónsson & Co.
Kirkjustræti 8b. Sími 420
hafa fyrirliggjandi miklar
birgðir af fallegu og end-
ingargóðu veggfóðri.papp-
ír, og pappa á þil, loft
og gólf, gipsuðum loftlist-
um og loftrósum.
o o
o o
I Verslið
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
«
o
o
o
Edinborg.
ooooooooooooooooooooooool