Fálkinn - 04.05.1929, Side 1
16 sllir ÍO aoriL
TUTHANKAMENS-GRÖFIN
Mönnum er enn í fersku minni, er Howard Carter og Carnarvon lávarður fundu hirm merku gröf i Luxordalnum í Egypta-
landi fyrir tæpum sex árum. Þótti Tuihankamensgröfin einhver merldlegasti fornmenjafundur, sem gerður hefir verið í
sjálfu Egyptalandi, en þar hefir þó margt merkilegt fundist áður. Fjellu menn í stafi yfir þvi skrauti og óhófi, sem átt hef-
ir sjer stað við útfarir hinna fornu konunga Egypta og það sem í gröfinni fanst ber þess óræk merki, að listiðnaður hafi
staðið á afar háu stigi í Egyptalandi í þá daga. Flest af því sem í gröfinni fanst var flutt til Kairo á Egyptska safnið og
rannsakað þar af sjerfræðingum. Er aðeins bráðabirgðarannsókninni lokið, en ganga má að því vísu, að margt af því sem
fundist hefir í gröfinni verði vísindamönnum rannsóknarefni i mörg ókomin ár. — Hjer á myndinni sjest insta kista
Tuthankamens og líkið sjálft. Hefir það varðveist furðu vel.