Fálkinn


Fálkinn - 04.05.1929, Page 9

Fálkinn - 04.05.1929, Page 9
F Á L Ií I N N 9 Norski skipstjórinn Folgcrö varð frægur fyrir það í hittifyrra að sigla á opnu skipi frá Noregi til Ameríku.. Nú hcfir hann látið smíða annað skip, af sömu gerð og víkingaskipið frá Gaukstöðum og ætlar að sigla því viðsvegar um heim, hlöðnu alls- konar sýnishornum af norskri fram- leiðslu. Verður þetta einskonar far- andsýning og er talið víst að lienni verði veitt cftirtekt, þvi skip eins og þetta vekja afar mikla athygli hvar sem þau koma. Iljcr er mynd af aug- lýsingu þeirri, scm send liefir verið át um Noreg til þess að vekja at- hygli á ferðinni. Hjer er mynd af „forsætisráðherra“ páfaríkisins, Gasparri kardínála, sem annast stjórnarstörf páfa. Pað var hann scm undirskrifaði sættina við Mussolini fyrir páfans hönd. Hjer til hægri birtist mynd af for- stjóia ráðstjórnarlýðvcldisins rúss- neska, Kalinin, þar sem hann situr að miðdegisverði með fjölskyldu sinni. Hann lifir mjög óbreyttu lífi, að hæiti rússneskra bænda. Hjer er mynd af Mahatma Gandi, sjálfstæðishctju Indverja. Gcngur hann jafnan klæðlítill eins og sjá má á myndinni og lik- ist mest meinlætamanni. Nýlega var Gandi bendlaður við uppþot i Indlandi og var tekinn fastur, en látinn laus aftur hið bráðasta og dæmdur í sekt, scm svarar til rúmrar krónu í isl. peningum. Sýnir seldarupphæðin að Bretum er illa við að sakfella Gandi, en munu vilja láta svo, sem lögum sje fullnægt með þessari sekt. Ilarol krónprins Rúmena, sem mest urðu lætin út af hittifyrra og þá afsalaði sjer ríkiserfðum lifir cnn i útlegð i Vestur-Evrópu. En nú cru stjórnarskifti orðin i Rúmeniu og sá flolckur kominn til valda, sem hliðhollastur er krónprinsinum. Spá sumir því, að hann eigi eftir að verða konungur i Rúmeniu. Er það m. a. dreg- ið af þvi, að móðir hans gerði sjer nýlega ferð til hans til þess ao reyna að ná sáttum við hann.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.