Fálkinn - 06.07.1929, Side 1
PÁFINN FRJÁLS MAÐUR
Reykjavík, laugardaginn 6. júlí 1929.
27.
Það þóttu mikil tíðindi, er stjórnarfulltrúi páfans og Mussolini einvaldsstjóri Ítalíu undirskrifuðu sáttasamning í vor og
gerðu enda á deilu, sem staðið hafði nær 60 ár milli páfa og ítala. Allan þann tima hafði páfinn talið sig fanga í höll
sinni og ekki stigið fæti út fgrir páfagarðinn. En með samningnum viðurkendi Mussolini páfagarð sem sjerstakt fullvalda
ríki, og þar með var páfinn á ný viðurkendur verslegur höfðingi. En ekki stóð þessi friður lengi, því fyrir nokkru hófst
alvarleg deila milli páfans og Mussolini og var barnafræðslan aðaltilefnið til þeirrar deilu. Mussolini vill láta fræða börnin
í ríkisskólunum og án íhlutunar prestanna, en páfinn heldur því fram, að engir eigi að koma nærri barnafræðslunni aðrir
en prestarnir. Mussolini liefir gert þetta mál að umtalsefni i einni af hinum opinberu ræður sírium og fór hörðum orðum
um þrákelkni páfa og fáfræði kaþólsku prestastjettarinnar í ítaliu. Var hann svo harðorður að páfinn fann sig knúðan til
þess að lýsa ummæli Mussolinis villutrú. — Á myndinni sjest t. v. Píus páfi XI. á gangi í hallargarði Vatikansins, en i
miðju er útsýn yfir Vatíkanið og Pjeturskirkjuna. Til hægri Píus páfi í hásæti sínu.
16 slr 40 ui