Fálkinn - 06.07.1929, Blaðsíða 4
4
F ALKINN
JEG ER ALVEG
Bretar hafa í ár loki'ö að kalla við
smíði tveggja loftskipa, sem heita
R100 og R101. Eru skipin smiðuð i
Cardington og hyggingameistarinn
heitir Richmond. Hefir hann nýlega
lialdið fyrirlestur um smíði skipanna
og eru þau að mörgu frábrugðin
Zeppelinsskipunum. Grindin er öll úr
stáli og lögunin þannig, að loftmót-
staðan verður miklu minni en á
Zeppelinskipum og því auðveldara að
stýra þeim.
Ölbruggari einn i Englandi, sem
Hennesy heitir, segist selja 50.000
flöskur að meðaltali á dag til Banda-
ríkjanna, en þar er aðflutningsbann
á áfengi. Til Canada segist liann
hinsvegar ekki selja nema 1200 flösk-
ur á dag.
Það var rakari, Pierre Lorchant að
nafni, sem bjó til fyrstu hárkolluna,
sem menn vita um í heiminum. Og
drögin til þessa voru þau, að Filippus
góði Burgundahertogi liafði mist hár
sitt eftir veikindi. Þetta kom sjer illa,
því hann var i þann veginn að biðja
ísabellu prinsessu af Portúgal. Til
þess að leyna skallanum liafði hann
látið gera sjer hettu úr svörtu klæði,
en prinsessunni gast illa að þessum
liöfuðbúnaði og hafði orð á þvi. Ráð-
lagði einn hirðmannanna l)á liertog-
anum að hann skyldi heita þeim
manni verðlaunum, sem gæti fundið
ráð til þess að leyna skallanum. Fá-
einum dögum síðar kom maður einn
og hafði meðferðis hárkollu, sem var
svo vel gerð, að ekki var sjáanlegt
annað en hertoginn væri hinn hár-
prúðasti maður, undir eins og liann
hafði sett kolluna á sig. Og nú urðu
viðtökurnar lijá ísabellu prinsessu
hlýlegri en áður. Ekki er þess getið,
hve mikið rakarinn fjekk fyrir hug-
vitssemi sína.
I’yrir skömmu fór Vesúvius skyndi-
lega að gjósa með miklum ákafa og
rann 500 metra breiður hraunflaum-
ur niður hlíðina og á þorpið Terzigno,
en þar lifa 3000 manns. Varð fólkið
alt að flýja og þorpið lagðist í eyði.
HISSAl
Justin Godard, fyrverandi ráðherra í
Frakklandi hefir látið semja skýrslur
um, hve mikið þjórfje sje gefið i
landinu. Hefir liann komist að þeirri
niðurstöðu, að fyrir stríð hafi fransk-
ir þjónar fengið um 500 miljón
franka á ári i þjórfje. í Parisarborg
hafi verið gefnir um 280000 frankar í
þjórfje á dag eða um 100.800.000
frankar á ári. En eftir stríðið full-
yrðir liann að þjórfjárgjafir hafi
margfaldast.
Eldstrókarnir upp úr fjallinu voru
um 600 metra háir meðan mest
gekk á.
Þýskur greifi reyndi nýlega ein-
kennilega aðferð til þess að svikja
sjer út fje. Hann afhenti á póstliús
höggul, sem hann liafði vátrygt fyrir
65.000 mörk og sagði að í honum væri
mjög dýrmæt perlufesti. Þegar bögg-
ullinn kom á ákvörðunarstaðinn var
ekkert í honum nema — lifandi mús.
Greifinn liafði ætlast til að músin
nagaði gat á umbúðirnar og böggull-
inn yrði tómur þegar hann ltæmi til
viðtakanda, en músin hafði ekþi reynt
til þess að komast á burt. Greifinn
fjekk 10.000 marka sekt og mánað-
ar fangelsi fyrir tiltækið.
1‘repin i þinghúsinu, þar sem Bobrikof var drepinn.
Morð eru hryðjuverk, sera ekki
er bót mælandi. En þó er mikill
munur á atferli Schaumanns og
þeirra, sem myrða úr launsát og
reyna að bjarga lífi sjálfra sín.
Athæfi Schaumanns var sekju-
minna að því leyti að augsýni-
legt var, að hann hafði ekki ætl-
að sjer að reyna að komast und-
an, heldur fórnaði lífi sínu í
þeirri von, að verkið mundi verða
til þess að slakað yrði á þeim
kúgunarviðjum, sem þjóð hans
hafði verið hnept í. Og sú fórn
bar árangur. — f brjefi sem
hann ljet eftir sig, lætur hann
þess getið, að enginn hafi verið
í vitorði með sjer. Biður hann
um, að láta keisarann vita, að
hann hafi ekki getað fundið aðra
leið til þess, að opna augu hans
fyrir, hvernig farið væri með
finsku þjóðina. Eugen Schau-
mann var sonur mikilsmetins
þingmanns, F. V. Schaumann.
Rússnesku yfirvöldin hefndu sín
á föðurnum fyrir morðið, enda
var það vitanlegt, að hann var
þjóðlundaður maður og hafði
barist á móti innlimunarstefnu
Bobrikoffs. Var hann fluttur i
hið illræmda Peter-Paulfangelsi
og landráðamál höfðað gegn
honum. En hirðrjetturinn i Ábo
sýknaði hann, enda var ekki
vottur af sakargiftum til gegn
honum.
Eugen Schaumann var í góðu
emhætti í fræðslumálastjórninni
þegar hann frelsaði land sitt úr
járngreipum Bobrikof. Rússa-
stjórn gat ekki hefnt sin á hon-
um á annan hátt en þann, að
jarðsetja hann á afviknum stað,
svo að enginn skyldi vita, hvar
gröf hans væri. En undir eins og
Finnlendingar fengu rjettarbót-
ina í nóvember 1905 varð upp-
vist hvar grafreiturinn var. Var
lík hans þá grafið upp og jarðað
í ættargrafreit Schaumanns í
Borgá, að viðstöddum óteljandi
fjölda fólks. Og 16. júní á ári
hverju eru lagðir fleiri blóm-
sveigar á þessa gröf en nokkra
gröf aðra í Finnlandi.
Þinghúsið i llelsingfors.
(L2-182)
Tvöföld rafkveikja
Hámarks-sam-
þjöppun
7 sveifáslegur
Aluminium-
stimplar
Vökva-þrýsti-
hömlur
á öllum fjöðrum
Fullkominn stýrisútMnaflur
Allur undirvagninn
smurður með einu handtaki
NA S H
Aðalumboðsmaður
fyrir ísland:
SIGUEPÚE JÚNSSOH
Austurstræti — Reykjavík
i
H 1 i d I É É É i i I i I i I i II • T h e r m a Therma rafmagns suðu- og hitatæki hafa verið notuð á íslandi um tvo áratugi samfleytt. Margar gerðir af raftækjum hafa komið á íslenskan markað á þeim tíma, en engin hefir tekið Therma fram. Therma tæki eru ekki ódýrust í innkaupi, en þau verða ódýrust í reyndinni, vegna þess að þau endast best og þurfa minst viðhald. , Leitið nánari upplýsinga um Therma hjá Júlíus Björnsson og Electvo Co. raftækjaverslun Akureyri. Austurstræti 12 — Reykjavík. É É áol i 1 á m I i 1 i rt 1 1 m
i
M