Fálkinn - 06.07.1929, Page 7
F A L K I N N
7
SKEIÐIN.
Nú var komið á annan sólar-
hringinn og enn var síra Mar-
sali í sama vandræðaskapinu.
Ráðskonan, blessunin hún jóm-
i’rú Nelja, sem annars var vön
að láta til sín taka á heimilihu,
var alveg eins og mús undir
fjalaketti. Hún ráfaði eirðarlaus
fram og aftur um hiisið — hafði
endaskifti á öllu og leitaði og
leitaði, — já, meira að segja tár-
feldi hún, og því var hún þó ekki
vön. Síra Marsali var dimmur og
ógnandi eins og skýjafar í úr-
synningi.
H'onum hafði horfið teskeið á
mjög dulanfullan hátt. Sannleik-
ans vegna verður að geta þess,
að síra Marsali, var engin aura-
sál (flestir af stjettarbræðrum
hans voru miklu samhaldssam-
ari en hann) — en það gildir
ckki einu hver skeiðin er — og
síra Marsali gat alls ekki náð
sjer eftir missi þessarar skeiðar.
íþróttamenn og safnarar geta
skilið tilfinningar hans — hann
hafði mist mjög verðmæta skeið
úr safni sínu, sem var dýrasta
og .fullkomnasta teskeiðasafnið í
öilum þeim landsfjórðungi.
Fyrir skömmu hafði hann rek-
ist á þessa teskcið hjá forngripa-
sala — og hann var sannfærður
um, að öniiur eins teskeið væri
ekki til í allri veröldinni.
Gyðingurinn sem seidi honum
hana hefði með glöðu geði tekið
Jahve til vitnis um, að Napoleon
hefði sjálfur notað þessa teskeið
þegar hann dvaldi í Moskva forð-
um daga.
Og svo kom þetta eins og
þruma úr heiðskíru lofti.
Gestur síra Marsali, Karl Do-
manzefski æskuvinur hans, hafði
farið í gærmorgun, og klukku-
tima síðar hafði hann uppgötv-
að, að skeiðin sjaldgæfa var
horfin.
Nelja ráðskona, sem dags dag-
lega var rjóð og blómieg i kinn-
um, var ennþá rjóðari en hún
átti að sjer í dag; það var ekki
svo lítið sem það reyndi á hana
að skríða undir rúmin og gægj-
ast undir kommóðurnar til að
Jeita.
Þarna kom þá hinn langþráði
hringur með ametyst-steinunum,
sem jómfrú Nelja týndi fyrir
heilu ári — tveir koparhlúnkar
■— hálfrúblupeningur — — —
en skeiðin? Það var eins og hún
væri sokkin í jörð.
Þegar síra Marsali hafði þótst
leita til þrautar, alt til ónýtis,
cg ausið skömmum yfir heimilis-
fólkið, líka til ónýtis, settist hann
fyrir og fór að hugsa málið vis-
indalega. Hún hafði verið vís í
gærmorgun. — Gesturinn hafði
fengið hana á undirskálina sína
-— honum leist svo vel á hana
-— en síðan hafði hún ekki sjest.
Osjálfrátt fór mjög ósennileg-
iir grunur um hug síra Marsali,
eins og gola yfir gras, hvernig
sein hann reyndi að verjast hugs-
uninni: Hann, að gera þetta —
óinögulegt, sýslumaður — heið-
nrlegur maður — nei, nei, nei.
».Alt er mögulegt“, hvíslaðí
einhver ári í eyrað á honum —
°g svo fór síra Marsali að rifja
EFTIR
I. PETRUSJEFSKI.
upp fyrir sjer framkomu gests-
ins 1 öllum atriðum.
Hann hafið ekki sjeð Karl
Domanzefski æskuvin sinn i sex
ár. Karl var kátur og unggæðis-
legur, enda þótt þeir væri jafn-
aldrar. Hann kom alveg óvænt,
—• átti leið þarna hjá. Og síra
Marsali þótti vænt um að sjá
hann, tók honum eins og alda-
vini og sýndi honum húsið sitt
hátt og lágt.
„Sjáðu, hjerna er borðstofan
—- þú skalt nú komast betur i
kynni við hana síðar, þegar við
snæðum miðdegisverð. Hjerna er
lesstofan min og — gestastofan.
Setustofu hefi eg eiginlega ekki
neina, íbúðin er ekki stór, en
gestaherbergi hefi jeg þrátt fvr-
ir það, handa aufúsugestum eins
og þjer. Hjerna í þessari kytru
sef jeg“, sagði síra Marsali og
cpnaði smákompu; þar var
mjótt trjerúm inni, með þunnri
hálmdýnu, laki og tveimum á-
klæðuin, en engri sæng.
„Sefurðu hjerna?" spurði
gesturinn. „Úr svona rekkju er
víst hægt að komast snemma á
fætur“.
„Já, hvað skal segja. Maður
verður að pynta holdið og gefa
sóknarbörnunum gott eftirdæmi.
Þegar maður er kominn á inín
ár, verður maður að hugsa
ineira um þarfir sálarinnar en
líkamans. Árvökur sál í kúguð-
um Iíkama“.------
„En hvaða herbergi er svo
þetta?“
„Hjerna býr frændstúlka mín,
sem stjórnar búinu fyrir mig“,
svaraði hinn og opnaði hurðina
í hálfa gátt.
Bústýran virtist alls ekki
breyta eftir kenningunni „árvök-
ur sál í kúguðum líkama", því
herbergið hennar var snyrtilega
og skemtilega búið og á miðju
gólfi var breitt rúm með hrúg-
aldi af mjúkum dúnsængum.
„Hún er ágæt ráðskona, hæglát
og hreinleg, rostalaus, vinnu-
forkur sjálf, — en hún vill
gjarnan láta nostra svolítið við
sig. Hatar alla karlmenn — þeir
hafa verið að biðja hennar hvað
eftir annað, og jeg hefi ráðið
henni til að taka þeim, en hún
segist ekki vilja giflast frá mjer
og skilja við heimilið forstöðu-
laust -— já, það er mikil guðs
gjöf að hafa svona fólk —“;
þannig lýsli síra Marsali ráðs-
konunni sinni um leið og hann
lokaði herberginu.
Svo var miðdegisverðurinn
framreiddur — drukkinn heima-
bruggaður bitter og Hkör -— og
fimtugt ungverskt vín.
Að því búnu fór húsbóndinn
að sýna gestinum forngripi sína.
Gesturinn var ánægður, hann
var í besta skapi, át eins og hám-
ur, tók af öllu því sem boðið var,
drakk drjúgum af gamla vininu,
gaf ráðskonunni hýrt auga, og
grannskoðaði teskeiðasafnið, sem
honum leist afar vel á. Sjerstak-
lega var hann hrifinn af síðustu
teskeiðinni, og mæltist meira að
segja eftir kaupum á henni.
Síra Marsali var upp með sjer,
en tók því fálega. Hann var ekki
alveg á því að selja svo fásjeðán
grip, en hitt þótti honum líka
leiðinlegt að þurfa að neita gesti
sínum; þessvegna tók hann það
til hragðs að gefa vini sínum
tvær aðrar teskeiðar.
En gesturinn kærði sig ekkert
um þær; það var aðeins „Napo-
leons-skeiðin“ sem hann kærði
sig um lir öllu safninu. En þegar
hann sá, að húsbóndinn vildi
nauðugur missa þessa skeið, bað
hann um, að mega nota hana til
þess að hræra í kaffibollanum
sínum. Honum fanst upphefð í
því, að megá hræra í kaffiboll-
anum sínum með sömu skeið-
inni og Napoleon hafði notað.
Síra Marsali tók vel í það.
Gesturinn dvaldi í tvo daga,
borðaði altaf með jafn góðri
matarlyst, drakk með jafn mik-
iili kostgæfni, gaf ráðskonunni
jafn hýrt auga og dáðist jafn
mikið að teskeiðinni. — —
— —• — Svo hafði hann farið
í gær, eftir að hafa drukkið lcaff-
ið í svefnherberginu sinu. Hann
hafði þakkað svo innilega fyrir
sig og beðið um að gleyma sjer
ekki.
Klukkutíma seinna var te-
skeiðarinnar saknað.
Nú liðu. enn fimm dagar. Sira
Marsali gat ómögulega látið sjer
detta í hug, hvað orðið hefði af
skeiðinni. Fólkið á heimilinu
hafði alt verið hjá honum i
mörg ár, og var áreiðanlega
frómt. Engu af því hefði gctað
komið til hugar að — — —-
Nei, það var ekki um aðra að
gera en hann. Síra Marsali var
orðinn sannfærður um þnð. Og
þegar liðinn var einn dagur enn
tók hann sig til og skrifaði vini
sínum brjef.
„Hugsaðu þjer, góði vinur“,
skrifaði liann meðal annars,
skömmu eftir að þú fórst hvarf
ein skeiðin úr safninu mínu,
það var einmitt Napoleonsskeið-
in, sem þjer leitst svo vel á.
Jeg get ekki imyndað mjer að
henni hafi verið stolið. Líklegast
þykir mjer að einhver hafi tek-
ið hana í spaugi. En, skilurðn,
þegar maður gerir slíkt er vani
að halda ekki hlutnum lengur
en í einn eða tvo daga. Eri að
láta heila viku líða án þess að
skila gripnum — já, þá fer mað-
ur að verða á báðum áttum“.
Þrem dögum síðar kom svarið
og í þvi stóð meðal annars:
• „Hvað mjer leiðist að heyra
um tjónið, sem þú hefir orðið
fyrir. Mjer finst að það hefði
nærri því verið betra, að þú
hefðir látið mig hafa skeiðina,
en að svona skyldi fara. — Jæja.
En það er best að gjalda liku
líkt. Þú gerðir að gamni þínu,
þegar þú varst að reyna að teljá
mjer trú um, að þii svæfir þarna
i kompunni i mjórri brík. Jeg
geiði líka að gamni mínu. Og
látum nú vera þó að þú sofir
ekki á bríkinni þinni eina nótt
eða tvær — það getur staðist;
en að koma ekki í bólið sitt í
heila viku, — ja, þá fer maður
nú ^ð verða á báðum áttum“.
Þá rann Ijós upp fyrir síra
Marsali — og skeiðin fanst und-
ir eins.
H---------------------"H
r
Matar
Kaffi
Te
Ávaxta
Þvotta
Reyk
Úrvalið mest.
Verðið lægst.
Verslun
Jóns Þórðarsonar.
m*.___________________-e
a.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
■
Vandlátar húsmæður
nota eingöngu
Van Houtens
heimsins besta
suðusúkkulaði.
Fæst í öllum verslunum.
n
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
n
VARÐ SKÖLLÓTTUR AF
HRÆÐSLU
l'cssi drcngur, sem aðeins er fimm
ára gamall, var um daginn að leika
sjer fyrir utan heiinili foreldranna í
Washington. Þá rjeðist skyndilega ó’ð-
ur hundur á hann og beit hann í fót-
legginn. Ilrengurinn varð svo lirædd-
ur, að liann mist alt hárið nokkrum
klukkustundum siðar. Læknar hafa
ekki getað fundið neina sliýring á
Jiessu en Jjá, að taugakerfi drengsins
hafi truflast svo mjög af hrneðslunni
við hundinn. Þetta kvað vera alveg
einstætt.