Fálkinn - 13.07.1929, Síða 6
6
F A L K I N N
Útlendu skemtiferðaskipin.
Með lwerju sumrinu fjölgar
skipum þeim, sem hingað koma
með skemtiferðafúlk. — Hefir
regndin orðið sú, að fólk jxið,
sem hjer kemur, lætur vel gfir
því að koma hingað, telur mót-
tökurnar engan veginn lakari
hjer en annarsstaðar nema sið-
ur sje, og núttúrufegurð mikla,
þegar veður er liagstætt. Fgrsta
ferðamannaskijnð á þessu sumri
stóð hjer við fimtudag og
föstudag í síðustu viku, var það
,,Carinthia“, með ameríkanska
ferðamenn frá ferðafjclagi Rag-
mond & Whitcomb í Boston,
sem sent hefir hingað skip í
mörg undanfarin ár og varð
fgrst allra ameríkanskra fjelaga
til þess að taka ísland inn á á-
ætlun sína í norðurhafasigling-
um. Á sunnudaginn var voru
hjer stödd lworki meira nje
minna en þrjú ferðamannaskip
— / dag er væntanlcgt skipið
„Sierra Ventana“, frá Norddeut-
scher Llogd með þgska skemti-
ferðamenn og tekur Knud
Thomsen kaupmaður á móti
þeim. Hafa jmnnig á rúmri viku
verið hjer fimm skip með ná-
lægt 1800 farþegum. — Á efri
mgndinni sjást skipin þrjú sem
voru hjer á sunnudaginn (frá
vinstri til hægri): „Calgaric“,
,,Franconia“ og ,,Reliance“. Læt-
ur nærri að hvert þeirra sje
10—15 sinnum stærra, en á-
ætlunarskipin sem sigla milli ís-
lands og útlanda. — Á neðri
mgndinni sjest einn af bátun-
um frá „Franconia“ við Stein-
brgggjuna, að fhjtja fólk milli
skips og lands. Söngflokkur
Jóns Halldórssonar og glímu-
menn úr Ármann skemtu ferða-
mönnunum í „Carinthia“ og
„Franconia“ meðan þeir stóðu
samtímis, með samtals nær 1100
far]>ega, nær alt Amerikumenn,
enda komu öll skipin frá Amer-
ilcu. Voru skipin þessi: „Calgar-
ic“ frá White Star-fjelaginu,
með ferðamcnn frá Bennetts-
ferðaskrifstofunni, „Reliance“ frá
Hapag-fjelaginu í Hamborg, mcð
ferðamenn frá sama fjclagi og
„Franconia“, með ferðamenn frá
Ragmond & Whitliomb. — Mót-
töku allra þessara skipa annað-
ist ferðafjelagið „Hekla“. ■— Tvö
fgrstncfndu skipin fóru á sunnu-
dagskvöld og mánudagsnótt en
„Franconia“ á mánudagskvöld.
Þriðjudag lcom skipið „Arcad-
ian“ frá Skotlandi, með enslca
skemtiferðamenn. Var það gert
út af fcrðafjelagi Cooks og ann-
aðist Geir H. Zoega, umboðs-
maður fjelagsins, móttökurnar.
við og samskonar skemtun
verður haldin fgrir fólkið í
„Sierra Ventana“.
L jósm. Óslcar.
Jolm Holst datt um daginn í fljótið
skanit fyrir ofan Niagarafossinn, cn
]>að tókst að bjarga honum rjett áður
cn fossinn tók hann. Viku seinna
druknaði hann — í baðkerinu heima
hjá sjer. Hann var svo óheppinn að
]>að leið yíir hann í baðinu og var
liann örendur þegar fólk kom að.
Einhentur maður vann nýlega sig-
ur í hraðritunarsamkepni á ritvjel,
sem haldin var í Ameríku. Hann
misti hendina i stríðinu og lærði fyrst
á ritvjel síðar. En þetta þykir tíðind-
um sæta vegna þess að margir af-
burða ritvjelamenn tóku þátt í sam-
kepninni.
Kielar-förin.
Glímuflokkur stúdenta, sem fór
til Kiel 5. f. m. til þess að sýna
glímu á þýsk-norræna mótinu
þar, kom heim um mánaðar-
mótin siðustu. Varð förin þeim
til liins mesta sóma. Þcgar lieim
kom var þeim haldið samsæti á
Mensa og flutti forseti í. S. í þar
ræðu og þakkaði þeim vasklega
framgöngu. ■— Var glímufjclagi
stúdenta afhentur hinn fagri
verðlaunagripur, sem Sir Thom-
as Hohler sendiherra Breta og
gfirmenn af herskipinu Adven-
ture aflxentu stjórn l. S. í. í
fgrra til ráðstöfunar til glímu-
verðlauna. Birist hjer mgnd af
gripnum; er það standmgnd af
enskum sjóliða, úr skíru silfri.
Á efri mgndinni sjást þátttak-
endurnir i förinni ásamt glimu-
kennara þeirra, og eru nöfnin
þessi: Óskar Þórðarson, Har-
aldur Sigurðsson, Hallgrímur
Björnsson, Jón Þorvarðsson, Jó-
liannes Björnsson, Bjarni Odds-
son, Ilinrik Jónsson, Einar Gutt-
ormsson, en sitjandi Guðm. Iír.
Guðmundsson og fararstjórinn
Guðmundur K. Pjetursson.
Ögmundur Sigurðsson skóla-
stjóri L Iiafnarfirði varð sjö-
tugur 10. þ. m.
Gleraugnabúðin, Laugaveg 2, er ein-
asta gleraugnasjerverslun á íslandi, þar
sem eigandinn er sjerfræðingur. Þar
verða gleraugu mátuð með nýtísku áhöld-
um, nákvæmt og ókeypis. A'eð fullu
♦rausti getið þjer snúið yður til elsta og
þektasta sjerfraeðingsins : LAUGAVEG 2.
Um daginn var tannlæknir í Lon-
don að draga tönn úr manni og hafði
svæft hann í því tilefni. Þegar sjúkl-
ingurinn vaknaði, lá tannlæknirinn
dauður á gólfinu með töngina og
tönnina í. Hann hafði fengið hjarta-
slag um leið og hann dró tönnina.