Fálkinn - 26.07.1930, Blaðsíða 10
10
F A L K I N N
Sjálfstæðir krakkar.
SOLINPILLUR
eru framleiddar úr lireinum
jurtaefnum, þær hafa engin
skaðleg áhrif á líkamann, en
góð og styrkjandi áhrif á
meltingarfærin. — Sólinpillur
hreinsa skaðleg efni úr blóð-
inu. Sólinpillur lækna van-
liðan er stafar af óregluleg-
um hægðum og hægðaleysi.
Notkunarfyrirsögn fylgir
hverri dós.
Verð aðeins kr. 1.25. -— Fæst
hjá hjeraðslæknum og
öllum lyfjabúðum.
VAN HOUTENS
konfejtt og átsúkkulaði
er annálað um allan heim
fyrir gæði.
Tækifærísgjafir j
Fagurt úrval.
Nýjar vörur. — Vandaðar 5
vörur. — Lágt verð.
Verslun
Jóns Þórðarsonar.
Eitt af því, sem mæður mega vera
ánægðar yfir, er ef þær finna sjálf-
stæðisþörf hjá börnum sínum.
— Jeg er hræddur um að dreng-
urinn minn verði ákaflega ráðrikur
sagði ung kona um daginn. Hann er
svo þrár og mótþróafullur, og öskrar
eins og ljón ef hann fær ekki að
gera alt eins og hann vill. Eins og
t. d. í morgun. Jeg varð að berjast
við hann, af þvi hann vildi endilega
halda á mjólkurbollanum sínum og
það endaði náttúrlega með þvi að
hann sullaði öllu ofan á hreinu treyj-
una sína. Og seinna þegar jeg ætlaði í
flýti að skifta um sokka á honum af
því þeir voru orðnir blautir, fór
hann að gráta og gerði sig alveg stíf-
ann i skrokknum af því jeg vildi ekki
lofa honum að fara í solckana sjálf-
um. Það er hlægilegt að krakkar, sem
varla eru ársgamlir, skuli vilja gera
alt mögulegt sjálfir.
Okkur finst hlægilegra, eða heldur
að segja sorglegra að ung móðir skuli
skilja barn sitt svona illa. Það er al-
gjörlega rangt að halda að drengur-
inn sje slæmur og ráðríkur. Þeir, sem
árum saman hafa sjeð börn vaxa upp
í kringum sig og hafa veitt þeim ná-
kvæma eftirtekt, vita að það eru ein-
mitt þau börnin, sem mæðurnar
kvörtuðu sárast yfir að væru þeim
erfið og einráð, sem verða með aldr-
inum sterkustu og sjálfstæðustu
mennirnir.
Barni, eins og því, sem hjer hefir
verið talað um verður að sýna mjög
mikla nákvæmni í uppeldinu. Móðir-
in verður að finna milliveg á milli
þess að láta alt eftir barninu og þess
að liindra frjálsa þróun þess með því
að banna því altof mikið.
Fyrsta eimskipið sem Svíar eign-
uðust, er meðal margra annara gripa
á svningunni i Stokkhólmi núna í
sumar. Það heitir „The Witch of
Stockholin“ og er smíðað í Englandi
árið 1826.
----x-----
Enskur maður, 37 ára gamall dó
nýlega með einkennilegum hætti.
Hann hafði krabbainein í nefinu og
var verið að lækna það með radíum,
á þann hátt að nál með þessu undra-
efni hafði verið látin inn i nefið á
honum og látin liggja þar. En svo
hafði nálin komist niður í barka-
kýlið á manninum og legið þar í tvo
daga en komist þaðan ofan í annað
lungað. Var reynt að bjarga mann-
inum með uppskurði, en það tókst
ekki og dó hann eftir látlausar kval-
ir i sjö vikur. Ættingjar mannsins
Uppeldið kostar fyrst og fremst
þolinmæði. Reiðist ekki þó litla barn-
ið sulli úr bollanum þegar það er
að reyna að handleika hann eða ati
sig alt út. Leiknin kemur smátt og
smátt og það er mikilsvert að barnið
reyni sjálft að stuðla að henni.
Seinna meir sparar það móðurinni
mörg óþægindi. Það er ráðlegt að
kenna barninu þegar frá byrjun að
vera hreykið vfir að geta gert liitt
og þetta.
Það er alls ekki verið að láta eftir
þó því sje leyft, að njóta sin. Það
reynir að vísu á þolinmæði móður-
innar en slíkt borgar sig.
Þörf, sem á að nota.
Munið að það tímabil, þegar það
er heitasta ósk barnsins að „hjálpa
mömmu“ er ekki langvarandi, og
þessvegna verður að nota þessa þörf
á sem bestan hátt meðan hún gerir
vart við sig. Móðirin á, meðan timi
er til að kenna barninu, að það er
yndislegt að hjálpa öðrum. Annars
er venjan sú, að þegar barnið er orð-
ið sex—sjö ára og manni finst það
ætti að fara ‘að geta gert sitt af
hverju, þá neitar það að gera bað.
Litla barnið er svo vant því að sjá
mömmu sína gera alt sjálfa og finst
þessvegna engin ástæða til að breyta
þeirri þægilegu rás viðburðanna.
En þegar þriggja ára snáði einn
góðan veðurdag neitar að láta full-
orðna leiða sig yfir götuna og lætur
óhemjulega af því að hann eða hún
fær ekki að fara einn, ber það þá
ekki vott um altof mikla sjálfstæðis-
þörf? Ja — við það er inargt að
athuga; eiginlega er þessu mjög mis-
munandi varið um hvert barn. Sjeu
það aðeins dutlungar má ef til vill
kalla það óþekt, en komi þörfin af
því að litla barninu finst sjer sýnd
lítilsvirðing með því að ekki er farið
með það á sama hátt og stærri syst-
kyni þess, ef sjálfstæðisþörf barns-
ins kemur til greina þá er ekki rjett
að ávíta barnið fyrir þetta. Það er
hægt að haga sjer á annan hátt gagn-
vart því. T. d. er hægt að slá á þann
strenginn hjá barninu að fá það til
að hjálpa sjer. Viltu hjálpa mjer
yfir götuna, Kútur? Og á augabragði
grípur litli maðurinn í hendi þess
fullorðna.
kærðu sjúkrahúsið fyrir þetta óhapp,
en ákæruvaldið sýknaði það.
----x----
Nýlega var maður tekinn fastur á
járnbrautarstöðinni í Berlín. Hafði
hann fundist hangandi neðan í einum
vöruvagninum í lest, sem kom alla
leið frá Köln. Hann liafði ætlað sjer
að útvega sjer betri samastað undir
eins og lestin færi frá Köln, en komst
hvergi inn í vagn, því að alstaðar var
harðlokað. Hafði hann því orðið að
hýrast þarna alla leið, i 19 klukku-
stundir, hangandi á höndum og fót-
um neðan i vagngrindinni og hefir
hann því varla verið öfundsverður af
ferðalaginu. Hann játaði fyrir lög-
reglunni, að hann hefði einu sinni
áður ferðast á sama hátt milli Varsjá
og Parísar og er það miklu lengri
leið.
Ferrosan
er bragðgott og styrkjandi •
járnmeðal :
og ágætt meðal við blóðleysi •
og taugaveiklun. 5
Fæst í öllum lyf jabúðum. •
Verð 2.50 glasið. J
P „Sirius“ súkkulaði og kakó-
0 duft velja allir smekkmenn.
S 5 Gætið vörumerkisins.
Alíslenskt fyrirtæki.
Allsk. bruna- og sjó-vátryggingar.■
Hvergi betri nje áreiðanlegri viðskifti. J
Leitið uyplýsinga hjá næsta umboðsmanni. ;
Fólki
■
m
B
til hægðarauka afgreiðir og send- j
■
ir Laugavegs Apotek öll meðul, J
hjúkrunargögn, gleraugu, hrein- •
*
■vörur út um alt land gegn ;
póstkröfu.
0
m
Sendið okkur beiðni yðar, og yð- ;
■
ur verður strax sent það sem ;
þjer óskið.
m
Laugavegs Apótek }
■
Laugaveg 16. Reykjavík. ;
■
M á I n i n g a-1
i ■ m
m
vörur
:
m
Veggfóður
Landsins stærsta úrval.
»MÁLARINN«
Reykjavík.
■
:
*
:
Fálkinn fæst eftirleiðis keypt-
ur á Hotel Borg (tóbakssölunni)-