Fálkinn - 18.10.1930, Síða 2
2
FÁLKINN
------ QAMLA BIO —-----------
EiBlnmaður drottning-
arinnar.
(Prinsgemalen)
Stórfengleg hljóm- og talmynd
lekin af Paramount undir stjórn
snillingsins Ernst Lubitsch.
ASalhlutverkin leika:
Jeanette McDonald og
Maurice Chevalier,
hinn heimsfrægi gamanleikari
og vísnasöngvari.
Myndin er talin besta tal-
myndin, sem Amerikumenn hafa
tekið.
Kóllrinn er víðlesnasta blaðið.
rdlHlIUI er besta heimitisblaðið.
Verðskrá
frá
K. Einarsson & Björnsson.
Bankastræti 11.
Kaffistell 12 manna frá 22,00
6 — — 12,50
Þvottastell, falleg — 12,50
Matarstell, 25 stk. 25,00
Bollapör, postulín 0,50
Barnakönnur — 0,40
Barnadiskarm. myndum 0,50
Matardiskar,dj.oggr. 0,50
Mjólkurkönnur — 0,75
Sykursett, 4 teg. — 1,50
Kökubátar — 1,25
Vatnsglös, m. teg. —- 0,35
— — stöfum á 1,00
Blómsturvasar frá 0,75
Bollapör, áletruð — 1,25
Matskeiðar, 2ja turna á 1,50
Matgafflar, 2ja turna 1,50
Teskeiðar, 2ja turna — 0,45
Kökuspaðar, 2ja tunar 2,50
Köku og áleggsgafflar 1,50
Ávaxtaskeiðar, 2ja turna 2,75
og margt fleira 2ja
turna af 5 gerðum.
Borðhnífar, ryðfríir frá 0,85
Hnífapör, parið — 0,75
Eldliúslmífar á 1,00
Skólpfötur, emaill - 2,25
Slcaftpottar, emaill frá 0,65
Skurðarbretti á 0,45
Sleifasett, 7 stk. - 3,00
Gafflar, alum. frá 0,10
Teskeiðar, alum. —- 0,05
Bestu fáanlegu niðursuðu-
glösin „Adler“. — Tækifæris-
gjafir, mikið úrval. Barna-
leikföng o. m. fleira með
landsins lægsta verði.
mmmm Músík
Nótur Plötur
Zwei Hertzen. Auch du.
Ástarsöngur heiðingjans. Stein Song. Dream Lover.
Libesvalzer. Singing in the Rain. Love Parade. Orange
blossom time. Singing in the bathtub. Sig det i Toner.
Meet me in my dreams to-nigt.
Sími 656 Símnefni Hljóðfærahús.
Sent gegn eftirkröfu um land alt.
Hljóðfærahúsið.
• #
NÝJA BÍO
ðrkin hans Nóa.
Saga styrjaldarinnar niilclu og
samnnburður hennar við Nóa-
I'lóðið, tekin af Warner BroS.
Orkin hans Nóa þykir að frá-
gangi og efnismeðferð ekki
standa að baki bestu myndum
með efni úr ritningunni, sem
teknar hafa verið.
Látið ekki hjá líða að sjá þessa
mynd.
! SOFFIUBUÐ !
■ ■
S. Jóhannesdóttir.
■ ■
■ Aausturstræti 14. Reykjavik. ;
8
j er ólitin ein af bestu vefnaðar- s
! vöru og fataverslunum landsins. j
: j
Alnavara:
: Sængurveraefni frá 4 kr. í verið. 3
Lakaefni frá 2.90 i Lakið.
j Sængurdúkur einbr. og tvíbr. j
Ljereft dún- og fiðurhelt.
■ Tvistar. — Flónel. — Morgun- j
j kjólatau. — Drengjafatatau. — j
: Kjólatau. Alklæði frá 9 kr. til :
18.50mtr.
Tilbúin fatnaður.
j Peysufatakápur. Sjöl tvilit. Vetr- ■
: arkápur og kjólar. Kasmirsjöl. j
Svuntusilki.
: :
j Karlmanna-
• alklæðnaðir bláir og misl. Vetr- :
• arfrakkar. Ryk- og reknfrakkar. :
3 8
■ ■
| Ollum líka viðskiftin vel, sem ■
: versla í SOFFIUBÚÐ í Reykja- S
vík eða á Isafirði.
: 3
er besti teikniblýanturinn
Talm
Eiginmaður drottningarinnar.
Þegar talmyndin kom lil sögunnar
óvænkaðist ráðið fyrir ýmsum þeim
leikendum, sem undanfarið höfðu
verið í metum hafðir um allan heim.
Þeir kunnu að leika í kvikmynd að
visu, en málfæri þeirra var þannig,
að þeir gótu ekki staðist fyrir hinu
stranga prófi, sem talmyndafjelögin
gera til málfæris og raddar þeirra,
sem eiga að koma fram í talandi
mynd.
En nýir menn komu í staðinn. Og
þessir nýju menn voru einkum sóttir
til leikhúsanna, ekki síst óperuleik-
húsanna, því að enn sem komið er
er sú talmynd færust i samkepninni,
sem getur boðið bæði mál og söng.
Sá maður, sem talmyndin liefir
sótt færastan til leiks í myndum er
tvímælalaust Maurice Chevalier.
Hann hafði um langt skeið verið eft-
irlætisgoð og besti vísnasöngvari
Parísarbúa, —• erfði sess Henri Frag-
son, söngvarans og tónskáldsins, er
hann fjell fró.Chevalier er hvor-
tveggja i senn: ágætur söngvari og
frábær í meðferð gamanvísna. Hann
varð sökum listar sinnar vinsælasti
maður í París, hann var fenginn til
þess að leika á móti hinni heims-
frægu vísnasöngkonu Mistinguette og
honum voru fengin bestu og vinsæl-
ustu viðfangsefni, sem hægt var að
bjóða leikara í hans grein í Paris.
Svo fann Paramountfjelagið upp á
því snjallræði að bjóða lionum of
fjár til þess að leika hjá sjer i nokkr-
yndir.
um tal- og hljómmyndum. Eftir
fyrstu myndina, sem hjet „París —
París“ varð nafn hans á allra vörum
í enskumælandi löndum. Og önnur
myndin spilti ekki. Það var myndin
„The Love Parade“ eða „Eiginmaður
drottningarinnar", sein Gamla Bíó
er nú nýbyrjað að sýna. Um þessa
mynd er það að segja, að naumast
hefir nokkur tahnynd sem gerð hefir
verið vakið aðra eins athygli og hún
eða sætt annari eins aðsókn. í New
York var hún sýnd i röð í meira en
þrjá mánuði og hafði þó leikhúsið
oftast margar sýningar á dag og í
Chicago og fleiri borgum gekk hún
ennþá lengur. Efni myndarinnar er
algengt „operettuefni“, en meðferð
Chevalier á hlutverki sínu er þannig,
að jafnvel ekki allra vandfýsnustu
kvikmyndagestir hafa staðist þenn-
an alsigrandi leikara nje mótleikara
hans, Jeanette MacDonald. Og um
frágang myndarinnar þarf ekki að
segja annað en það, að sjálfur ofjarl
allra kvikmyndastjóra, Ernst Lu-
bitsch hefir stjórnað tökunni.
----x----
ÖRKIN HANS NÓA.
„Kvikmyndin um regnboga kærleik-
ans, sem nær frá Nóaflóðinu fyrir
5000 árum til blóðflóðsins mikla,
heimsstyrjaldarinnar“. Þetta er und-
irheiti á myndinni „Örkin hans Nóa“,
sem kvikmyndafjalagið „Warner
Brothers“ hefir gert, og er einskonar
sambland gamals og nýs, saga þess,
að þrátt fyrir aila vonsku mann-
kynsins þá sje því jafnan viðreisnar
von aftur. Og regnboginn, sem bibl-
ían segir frá, hvernig til hafi orðið,
er gerður að tákni þess, að guð
muni aldrei eyða jörðunni.
Myndin hefst í járnbrautarlest i
Frakklandi vorið 1914 og er þarr
gerð lýsing á heimsborgurum ýmissa
landa. Járnbrautin verður fyrir slysi:
og það er gert að einskonar tákn-
mynd þess sem á eftir fer. Og þeir
viðburðir, sem gerast í sambandi við
slysið eiga að sýna drættina i því,
sem styrjöldinni hafi valdið: sjer-
girnina og þjóðernisrembinginn.
í stríðsfeiknunum lenda aðalper-
sónurnar i þvi, að sprengikúla gref-
ur þær lifandi. Þar hitta þau fyrir
prest, sem þau höfðu áður hitt — í
járnbrautinni. Og hann fer að tala
til þeirra huggunarorð, og minnir
þau á, að Nóaflóðið hafi orðið til
vegna synda mannkynsins og eins
hafi styrjöldin mikla orðið til vegna
haturs mannkynsins. Og við orð hans
hverfur sagan 5000 ár aftur í tímann,
til syndaflóðisins. Persónurnar breyt-
ast og verða að hlutverkum í hinni
gömlu helgisögu. Og nú er brugðið
upp fyrir nútíðarfólki mynd af því,
sem löngu er liðið og fylgt frásögn
Mósebókanna — til þess, að þeir
sem ekki hafa lesið biblíuna af skiln-
ingi fái sjálfir sjeð, með tilstoð hins
inilda menningarmeðals, sem kvik-
myndin er, hvað Nóaflóðið var og
hve rík og mikil saga það er öllum
þeim sem siðar lifðu. — Hvenær á
fólki að takast það eina, sem horfir
til frambúðar: að læra af reynslunni!
Gamli presturinn: ímynd hans
Nóa gamla, Iýkur máli sínu með þess-
um orðum: „Bölvun heimsstyrjaldar-
innar er Ijós öllu fólki ná, og öllum
þjóðum. Heimurinn má ekki gleyma
þessum árum þjáninganna — þess-
um dauða tíu miljón manna".
Myndin er svo úr garði gerð, að
henni hlýtur í framtíðinni að verða
skipaður hár sess meðal mynda í
þessum flokki. Frágangur hennar er
stórkostlega góður og hefir gildi fyr-
ir alla þá, sem vilja sjá hlutina eins
og þeir hafa verið. Því kvikmynda-
fjelagið hefir varið miklu fje og neytt
aðstoðar mikils mannvits til þess að
gera mynd þessa sem sannasta og
rjetta.
----x----
. Júðasaga.
Blum er vellríkur maður, en ekki
þykir hann vera sjerlega gjöfull. Á
striðsárunum bannaði liann skrif-
stofufólki sínu harðlega að hleypa
nokkrum manni inn til sin, sem væri
með samskotalista. En þó koma einu
sinni tvær Ijómandi fallegar stúlkur
frá Rauða krossinum inn á skrifstof-
una til að leita samskota. — Skrif-
stofustjórinn stenst ekki mátið og
hleypir þeim inn á innri skrifstof-
una til Blums. — En hann verður
nú eins og milli tveggja elda: annars-
vegar eru stúlkurnar svo ljómandi
fallegar og brosa svo yndislega til
hans og hinsvegar mammon. Hann
réttir þeim loks tjekk uppá 5 þús.
franka. Þær þakka fyrir með sínu
sæta brosi og fara svo leið sina.
Nokkru síðar mæta þær Blum á
götu, heilsa honum blíðlega og benda
honum með mestu kurteisi á að hann
hafi alveg gleymt að skrifa nafnið
sitt undir tjekkinn þann um daginn.
„Jeg ætlaði mjer aldrei að skrifa
undir hann“, segir Blum. „Jeg er
ekki einn af þeim sem hrópa upp um
góðverk mín. Þegar jeg gef gjafir
þá gef jeg altaf án þess að láta nafns
míns getið“.