Fálkinn


Fálkinn - 18.10.1930, Blaðsíða 4

Fálkinn - 18.10.1930, Blaðsíða 4
4 F A L K I N N Mjólknrbii Olvesinga er hið yngsta þeirra þriggja mjólkurbúa, sem starfrækt eru sem samlagsbú utan Reijkjavikur.Eldri eru . mjólkurbú það sem Kaupfje- lag Eyfirðinga rekur á Akureyri og Mjólkurbú Flóamanna. öl- vesingabúið er sjerstakt i sinni röð [yrir það, að þar er gufa notuð til hitunar og eins til suðu mysuosta. Keypti búið fyr.ir tueimur. árum 60 he.ktara lóð, og eru þar ýms.ir bestu hverir Hveragerðissvæðisins, og hcfir virkjað einn þeirra. Hefir geymir úr semcnti verið steyptur yfir einn hverinn, en úr honum liggur leiðsla inn í mjólkurbúið. Sjest sú virkjun á efri myndinni til hægri. (Mennirnir, sem sjást á j>essari mynd eru t. v. Sig. Sigurðsson búnaðarmálastjóri og t. li. Pjaaten forstjóri búsins). Á myndinni hjer að ofan sjest búið sjálft, en húsið lengst undan er barnahælið sem Reykvikingar hafa reist. — Auk þess að gerilsneiða mjólk með nýjustu aðferðum framleiðir búið skyr, mjólkurosta og mysuosta. Auk þess er það að byrja á framleiðslu mjólkur- hlaups (,,kultur“-mjólk) sem þykir hið mesta hollmeti. En mjólkurostarnir eru gerðir með sömu aðferð og Edamer-ostar og innihalda frá 10—30% af fitu. — Mysuostagerðin er nýmæli að því leyti að osturinn er soðinn við gufu, en vegna þess að gufan nær ekki suðuhita er flýtt fyrir suðunni með þvi að mynda loftlœmi yfir suðupottinum. Þótti vafasamt lwort hægt mundi að sjóða bragðgóða mysuosta með þessu lagi en reynslan hefir orð- ið hin besta. Neðri myndin t. h. sýnir mysuosta-suðupottinn. — Mjólkurbúi Ölvesinga var i upphafi œtlað að geta annast verknn á alt að 3000 lítrum mjólkur á dag. En þegar í sumar barst búinu miklu meiri mjólk en þetta og hafa þvi verið aulcnar vjelarnar þannig að nú getur búið unnið úr 5—6 þúsund lítrum. Slípivjelar. fyrir rakvjelablöð nýkomnar á Laugaveg 2. Slípa blöðin á öllum 4 hliðum og gerir gömul blöð sem ný. — Nú skaltu bara sjá, sagði karl- inn við eineygða jálkinn sinn. Og svo setti hann i hann glerauga. Hótel Borfl. Lesendur Fálkans mintu oss á það.er myndirnar af gistiher- bergjunum á Hotel Borg voru birlar í síðasta blaði, að enn hefði Fálkinn ekki birt mgnd af sjálfu húsinu. Þetta er rjett. Eina mgndin sem *komið hefir hjer í blaðinu af hásinu að utan er gerð eftir teikningu og var birt áður en húsið var fullgert. En hjer á mgndinni til hægri geta menn sjeð hvernig Borg lítur út, og innan þessara veggja er f)að, sem þeir geta gist í prgði- legum herbergjum fgrir 5, 6, 7 krónur. Hjer er líka birt mgnd af nokkrum hluta starfsfólksins; það náðist ekki lil þess alls, svo að mgndin sijnir ekki nema % af ölliim hópnum,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.