Fálkinn


Fálkinn - 18.10.1930, Side 8

Fálkinn - 18.10.1930, Side 8
8 F A; L K I N N Nautaat er þjóðskemtunSpánverja, bæði á Spáni og sumum spönsku- mælancli löndum í Suður-Ameríku. Og þráit fyrir allar áskoranir er- lendra og innlendra dýraverndun- arfjelaga taka Spánverjar ekki í mál að leggja þessa blóðugu skemtun niður. Nautabanarnir eru enn sem fyr sannkallaðar þjóðarhetjur, sem fá offjár í laun fyrir að leggja naut að velli og þjóðin ber þá á höndum sjer, hvar sem þeir koma. 1 smábæn- um Pamploma helst enn sá siður, að áður en nautaötin byrja eru naut- in öll rekin í hóp um stræti bæjarins, en ungir „toreadorar“ fylgja þeim eftir og reyna á alla lund til að egna þau, með því að veifa dulum fram- an í þau og stinga þau með örfum. Horfa bæjarbúar með aðdáun á þessa götusýningu úr gluggum sín- um og af svölum húsanna, og gleyma vitanlega elcki að koma á nautaatið á eftir. Góðir tamningamenn hafa jafnan þótt prýði sveitar sinnar. En þó að stundum sje erfitt að ráða við óþæga fola íslenska þá er það barnaleikur einn í samanburði við það, að eiga að temja hina viltu hesta á sljettun- um'í Amerílcu. Eru þessar skepnur stórar og sterkar og alveg ótrúlega ólmar, enda hefir kynið gengið vilt öldum saman. Til þess að fást við þessa hesta þarf afar leikna og djarfa tamningamenn og stundum ráða allra æfðustu menn elcki við ótemjurnar, sem fleygja þeim af baki og meira að segja reyna svo að drepa þá, með því að sparka í þá. Hjer er sýnd viðureign hests og tamningamanns og sjest maðurinn liggja flatur undir hestfótunum. Hjer sjest ítalski hnefáleikarinn Carnera vera að leika sjer við Chaplin í Hollywood. Carnera hefir unnið 20 hnefaleiki síðan hann kom vestWr og grætt um miljón dollara á ferðinni. Hjer sjást tvær ungar blómarósir íslenskar og hafa myndirnar af þeimfarið um flest blöð Norðurlanda núna eftir Alþingishá- tíðina i sumar. Önnur er á skautbúningi en hin á upphlut.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.