Fálkinn - 10.01.1931, Side 1
IV.
2
Reykjavik, laugardaginn 10. jan. 1931
ENSKU HERMANNANNA.
HEIÐURSQR0F
Myridin, sem hjer birtist er af minn-
ismerki því, sem Bretar reistu tit
minningar um heimsstyrjöldina. Er
það kallað „Cenotaph“, en það þýð-
ir tóma gröfin. Er þetta í rauninni
heiðursgröf ensku hermannanna,
sem fjellu í styrjöldinni miklu, Í91k
—1918, en grafnir voru í kirkju-
görðunum við vígstöðvarnar. Hafa
slíkar grafir stundum verið gerðar
áður, til minningar um menn, sem
hafa druknað en líkin ekki fundist.
Tóma gröfin til minningar um
ensku hermennina er í Whitehall i
London og stendur í miðri götu, en
þar í nágrenninu eru stjórnarráðsr
byggingarnar ensku. Var hún gerð
árið 1920 en áður hafði verið gerð
samskonar gröf til bráðabirgða, sem
oígð var daginn áður en friðarsamn-
ingarnir voru undirskrifaðir i Ver-
sölum, 19. júlí 1919. Er þetta 33 feta
hár steinstöpull rjetthyrndur, úr
gulum sandsteini, en myndirnar á
honum eru úr grænum hörðum
steinL sem lítur út eins og bronse.
Við þetta minnismerki eru árlega
haldnar samkomurnar til minning-
ar um vopnahljeð, 11. nóvember. Er
þar viðstatt alt helsta fólk þjóðar-
innar, með konunginn i broddi fylk-
ingar, ræður eru haldnar og blóm-
sveigar lagðir við varðann, en það-
an er svo haldið til grafar ókunna
hermannsins i Westminsterkirkj-
uruii. Myndin sem hjer er sýnd var
tekin 11. nóvember siðastliðinn og
sjest þar konungur vera að leggja
krans á minnisvarðann. Að baki
honum sjást ráðherrarnir og aðrir
stjórnmálamenn, auk þass Indverj-
ar þeir, sem taka þátt i Indlands-
ráðstefnunni rriiklu i London. Yfir
miljón manna voru viðstaddir þessa
athöfn, sem jafnan er haldin kl. 11
að morgni. Er þá öll umferð um göt-
ur borgarinnar stöðvuð i tvær
mínútur.