Fálkinn - 10.01.1931, Síða 11
F A L K I N N
11
Yngstu lesendurnir.
Fjær og nær.
hug að þetta væri hægt. En svona
er það nú samt. — En hvað haldið
þið svo, að þessi kíkir sje stór? Nei,
— það hefir ykkur víst ekki heldur
dottið í hug. Hann er 21 meter á
lengd og vegur 105 smálestir og
stækkunarglerið i honum er 65 senti-
metrar i þvermál. Það þyrfti því
sterkan inann til þess að bera hann
upp að augunum eins og venjulegan
kíki! Þetla risavaxna sjóntæki stend-
ur við stjörnuturninn í Treptow,
skamt fyrir utan Berlín, og er þann-
ig fyrir komið, að hægt er að miða
honum hvar sem er á himinhvolfið.
En það skritnasta er sem sagt, að
maður getur sjer stjörnurnar í hon-
um á daginn. Þið vitið náttúrlega,
að stjörnurnar eru á himninum jafnt
á degi sem nóttu, en það er vegna
dagsbirtunnar, sem þær hverfa ber-
um augum. Þegar sólin kemur til
sögunnar hverfa stjörnurnar því að
ljós hennar er svo miklu sterkara en
þeirra. En í löngum kíki útilokast
sólarljósið og maður fær áð sjá
sjá stjörnur, sem eru miljónir mílna
í hurtu.
Nýtt tungl i ýmsum löndum.
Þegar listmálari ætlar að mála
uýtt tungl getur maður verið viss
um, að hann málar það lóðrjett, jafn-
vel þótt að það sje alls ekki rjett.
En listamennirnir hafa þetta nú
svona.
En nú vitum við að nýja tunglið
lítur mismunandi út eftir því hvar
er á hnettinum. Þetta getur þú sjeð
á myndinni hjer að ofan. Hún sýn-
ir nýtt tungl: 1. á suðurheimskaut-
inu, 2. í syðra tempraða beltinu, 3.
á miðjarðarbaugnum, 4. i nyrðra
tempraða heltinu og 5. á norður-
heimskautinu.
Þegar þið lítið á þessa mynd dett-
ur ykkur liklega i hug, að hún sje
nt' gríðarlega stórri fallbyssu, en það
er best að segja ykkur undir eins, að
þetta er mesti misskilningur. Myndin
er af stórum stjörnukíki, og það
skritnasta við hann er, að maður get-
nr sjeð stjörnur í honum um hábjart-
an daginn.
Ykkur hefir víst aldrei dottið i
Meðal við geðvonsku á morgnana.
Erlendis eru til menn, sem fara i
sjó á hverjum morgni allan vetur-
inn. Hjer á landi er veðráttan svo
óhagstæð, að leitun mun vera á
manni, sem gerir þetta; en fært hefir
verið í frásögur að nokkrir skóla-
piltar hafi laugað sig i Bessastaða-
tjörn allan veturinn og fLestir orðið
langlífir.
Nú eru baðklefar gerðir i flestum
nýjum húsum i kaupstöðum. En þeir
sem hvorki hafa baðklefa nje fara í
í sjó geta laugað sig samt. Og þið
vilið vist, að það er nauðsynlegt
heilsunnar vegna að lauga sig. Það
er ekki nema sjálfsagt. Nú skal jeg
sýna ykkur hvernig þið skuluð fara
að.
Þið takið garðkönnu og fyllið
hana með vatni og hengið hana á
snæri upp í loft, eins og sýnt er á
myndinni. Svo hafið þið band i
könnunni til þess að taka i; sjá
myndina. Og vitanlega þurfið þið að
standa í stórum bala, meðan þið
tukið baðið.
Kðttnrinn og tigrisdýrtð.
— Einu sinni var köttur, sem
mætti tígrisdýri úti i skógi. —
Heyrðu snáði sagði tígrisdýrið ön-
ugt, — við erum vist skyLd, þvi að
við erum töluvert sviplik.
— Ja-á, þetta getur vel verið sagði
kötturinn.
— En hvernig stendur á, að þú
ert svona litill?
—O, minstu ekki á það, frændi;
það er af því að jeg hefi lent í
klónum á hræðilegri ófreskju.
— Ilvaða ófreskja er það?
— Hún er kölluð manneskja, og
er bæði vond og grimm.
— Komdu og sýndu mjer hana,
lasm, sagði tigrisdýrið, — mig lang-
ar að sjá hana. Þetta hlýtur að vera
feikna voldugt dýr, úr því að það
getur breytt okkur, sem erum svo
stór og sterk, i svona lítinn aum-
ingja eins og þú ertl
— Heyrðu frændi, það er viss-
ast fyrir þig, að koma ekki nálægt
þeim, annars geta þeir farið með
þig eins og þeir fóru með mig og
hnoðað úr þjer umskifting.
— Heldurðu að jeg sje hræddur
við þá? Enginn er eins hraustur og
sterkur eins og jeg! Sýndu mjer nú
Leiðina, gepillinn þinn!
Kettinum var nauðugur éinn kost-
ur að gera það. Þeir gengu spö!-
korn inn i skóginn, þangað til kött-
urinn hrökk við og sagði: — Sjáðu!
þarna er það!
Tigrisdýrið leit upp og kom auga
á mann, sem var að höggva skóg.
— Ha, þetta tvifætta þarna? Nú
skulum við sjá, — og í sama bili
tók hann undir sig stökk og stefndi
beint á manninn.
Maðurinn varð agndofa af
hræðslu.
— Heyrðu manni, þú þykist vera
sterkari en allir aðrir, en geturðu
ráðið við mig?
— Jeg er nú ósköp ónýtur maður,
I M á I n i n g a-!
vörur
: I
Veggfóður
i r.
: Landsins stœrsta órval. ;
»
MÁLARINN
<«
Keykjavík.
■■■■■!
| Þessi RAKBLÖÐ bita best — eru j
■ endingargóð og ódýr. — Fást í
; mörgum sölubúðum og i
■
■
i Heildverslun
I Garðars Glslasonar.
svaraði hann, — hjálpaðu mjer held-
ur til þess að kljúfa þetta trje —
mjer kæmi vel. að fá hjá.p. Jeg skal
gefa þjer lamb fyrir, — stingtu
bara framlöppunum í rifuna þarna
og glentu hana eins og þú getur.
Tigrisdýrið gerði það, en það var
fleygur í rifunni og maðurinn tók
hann úr i flýti. Og tigrisdýrið festi
báðar framlappirnar í trjenu.
En maðurinn hló og ságði: —
Bíddu bara hægur, bráðum kem jeg
með Iambið.
Og svo fór hann.
Tigrisdýrið beit í trjeð og reyndi
á allar lundir að sleppa, en það kom
fyrir ekki. Trjeð var of þungt og
hann logsveið í lappirnar. Loksins
hristi tigrisdýrið hausinn og sagði
raunálega við köttinn: — Heyrðu,
elsku frændi; hvað heldurðu að það
verði langt þangað til að jeg verð
orðinn eins lílill eins og þú?
■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■
Pósthússt. 2 ■
:
Reykjavik \
■
\
Stmar 542, 254 j
og :
I
30t(tramkv.stj.) j
Alíslenskt fyrirtæki.
Allsk. bruna- og sjó-vátryggingar.
Hvergi betri nje áreiðaniegri viðskifti.
Leitiö uvplýsinpra hjá nœsta umboðsmanni.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■• .•■■■■■■■
! Versl. Goðaíoss
• Laugav. 5.
■
■
:
Simi 436.
Elsta verslun I borginni i
hreinlætisvörum.
Hefir ávalt fyrirliggjandi:
ILMVÖTN
Houbigant
Mouson
Coty
Burstasett
Naglaáhöld
Ilmsprautur
Hálsfestar
Eyrnarhringi
og allskonar hreinlætisvörur.
Crem
og
Púður
Best er að augtfsa i Fálkanum