Fálkinn - 18.07.1931, Side 1
Reykjavík, laugardaginn 18. júli 1931
BRIAND TALAR UM FRIÐ.
Það mun álit flestra þeirra þjóða, sem ekki tóku þátt i heimsstyrjöldinni, að Frakkar muni að jafnaði vera vantrúaðastir
allra þjóða á varanlegan frið meðal þjóðanna og ijmsir vilja halda því fram; að ýmsar umleitanir, sem gerðar hafa verið til
sátta meðal Evrópuþjóðanna síðustu tiu árin, hafi strandað á þeim. Iívað sem því líður, þá er það eitt víst, að þeir eiga
um sárast að binda eftir styrjöldina og að þeir eru nágrannar þeirrar þjóðar, sem voldugust var miðveldanna i síðustu styrj-
öld. En þeir, sem vilja telja Frakka vilja ala á ófriði og hatri milli þjóðanna, fara villur vegar. Því að frá Frakklandi hef-
ir komið sá rödd, sem máttugust lxefir verið fyrir friði á síðari árum, og sú rödd er þess manns, sem setið hefir í utan-
ríkisráðherrasæti þjóðarinnar í mörg ár, Aristide Briands. Að vísu mun lmnn ekki altaf hafa ált sjö dagana sæla, að eiga að
samræma liinar sundurleitu stefnur þjóðarinnar í skaðabótamálinu, en um friðarvilja hans sjálfs efast enginn maður framar.
Hjer á myndinni sjest Briand vera að tala um friðarmálin á samkomu fyrverandi hermanna í franska smábænum Gourdon.
Briand er einhver mesti mælskumaður sem nú er uppi og hefir það oft lcomið fyrir, bæði i franska þinginu og eins á fund-
um alþjóðasambandsins í Genf, að honum hefir telcist með einni ræðu, að gjörbreyta afstöðu áheyrenda sinna til máls þess,
er liann talaði um. Þykir það unun að heyra hann tala þegar honum tekst upp.