Fálkinn - 18.07.1931, Blaðsíða 4
4
F A L K I N N
Karlakór K. F. U. M. fór í lok maímánaðar til Danmerkur, til þess að taka þatt í söngmóti þar, sem hið kunna söngfjelag Bel Canlo
hafði efnt til. Þátttakendurnir í þessu móti voru auk fjelagsins sem efndi til mótsins og stúdentaf jelagsins í Kaupmannahöfn, er einn-
ig tók þátt í mótinu: Karlakór K. F. U. M„ Guldbergs Akademiske Kor frá Oslo og hin heimsfrægu kór Finna og Svía, Orphei
Dránger og Muntra Musikanter. Þrátt fgrir þetta lítur svo út, eftir dönskum blaðaummælum, að íslendingarnir hafi kept við þessi
góðu kór þannig, að þjóðinni væri sómi að. Tvisvar sinum var sungið, fgrra skiftið 29. maí og hafði þá hver flokkur sinn hluta söng-
skrárinnar að annast, en í seinna skiftið 31. maí og sungu þá allir flokkarnir saman. Mgndin er tekin af öllum flokkunum í einum
hóp og eru þar um 210, með því að hverju fjelagi var sett að skilgrði, að liafa ekki stærri flokk en 35 menn, og flestir höfðu þá tölu
rjetta.
Pjetur Jónsson óperusöngvari
er ngkominn til Regkjavíkur og
hjelt fgrstu hljómleika sína í
gærkvöldi í Gamla Bió, með af-
ar vandaðri söngskrá. Pjetur
söngvari hefir dvalið í Berlín
og sungið þar í vetur. Nú eru
liðin 25 ár síðan Pjetur lagði
fgrir alvöru út á söngvara-
brautina og jafnframt á hann
25 ára stúdentsafmæli í sumar,
því að það var 1906 sem hann
sigldi til Kaupmannahafnar sem
stúdent og tók að leggja stund
á söng, þá tvítugur að aldri. Og
síðan 191h hefir hann sungið ó-
slitið á lwerjum vetri, sem fast-
ur starfsmaður við óperurnar í
Kiel, Darmstadt, Bremen og
Berlín, en auk þess sem gestur
við fjölda söngleikhúsa í Þgska-
landi, Sviss, Austurríki og víð-
ar. Liggur mikið slarf eftir Pjet-
ur á þessum umliðna aldar-
fjórðungi. Nær hundrað hlut-
verk mun han hafa sungið í ó-
perum alls, og flest þeirra að-
alhlutverk, en eigi skal giskað á
hve mörg kvöld hann hafi sung-
ið alls, en þeirra tala er legio.
— Pjetur mun lialda nokkra
hljómleika lijer í Regkjavík og
ef til vill víðar um land í þess-
um og næsta mánuði og munu
söngvinir fagna því að lieilsa
svo góðum gesli aftur, fgrst og
fremst vegna þess að hann er
mestur allra íslenslcra söngvara
en líka fgrir það, að hann liefir
jafnan regnst þjóð sinni góður
sonur og sannað hundruðum
þúsunda, að Islendingar geta
sungið og eru hvítir menn.
Aðalsteinn Pálsson, skipstjóri,
varð fertugur 3. þ. m.
Kristján Andrjesson skipstjóri og
óðalsbóndi á Meðaldal við Dýra-
fjörð, varð áttræður 16. j). m. Er
hann einn af brautryðjendum þil-
skipaútvegsins hjer á landi. Hann
lœrði fgrst sjómannafræði hjá Magn-
úsi Össurarsyni á Flateyri og varð
25 ára gamall skipstjóri á J)i!skip-
inu „Neptánus“ frá ísafirði. Vetur-
inn 1883—8't gekk hann á sjómanna-
skólann í Bogö, og sá jafnframt um
smíði á skonnortunni „Fortuna",
sem nokkrir Dýrfirðingar áttu í
smíðum þar, og sigldiþví skipi heim
sumarið eftir. Árið 1880 keypti hann
„Haffrána" ásamt þremur öðrum og
var skipstjóri á henni í 12 ár. Jafn-
framt sjómenskunni bjó Kristján
stórbúi í Meðaidal í Dýrafirði og
býr þar enn. Hefir hann bætt jörð-
ina mjög mikið og húsað hana
prýðilega.
Guðmundur Kristjánsson skipa-
miðlari varð 60 ára í fgrradag.
Um víða veröld.
----x----
ENGLENDINGAR England liefir oft
OG ALFONS. — reynst griðland
---------------- manna, sem vegna
róttækra stjórnmálaskoðana liafa
orðið að flýja ættjörð sína. Þannig
var það altítt á dögum keisarastjórn-
arinnar rússnesku, að ýmsir stjórnar-
andstæðingar flýðu til Englands til
þess að komast hjá Siberíuútlegð. En
Englendingar liafa lika oft tekið við
þjóðhöfðingjiun, sem mist hafá kórón-
una í sorpræsið. Þangað flýði Lúð-
vik Filipus i febrúar 1848 og þar
hefir Manúel Portugalskongur átt
heima síðustu 21 ár, í Fullwell Park, t
miðja vegu milli Riclimond og Wind-
sor. Og nú er London að búa sig und-
ir að taka á móti síðasta konginum
af Bourbon-ætlinni, Alfons 13. Spán-
arkonungi.
Lundúnabúar ræða af kappi hvort
Alfons muni nú seljast að i Englandi
eða ekki. Þeir vilja gjarnan hafa
liann í einliverja höllina i nágrenni
Lundúna þvi áð þeim finst það setja
svip á bæinn. Alfons kom til London
skömmu eftir að hann flýði og segir
sagan, að liann muni hafa verið að
leita sjer að húsnæði eða jafnvel fest
kaup á annaðhvort Craigwell House
i Bognor eða Londonderry House i
Park lane, eða jafnvel báðum.
Alfons vantar ekki peninga. Bretar
meta eignir hans á 3% miljón ster-
lingspunda og mest af þessari fúlgu
er geymt í enskum bönkuin. Er sagt
að hann hafi gert þetta í yarúðar-
skyni, ef illa kynni að fara, eins og I
nú er fram komið.
ÚTSÝNIS - OG
STJÖRNU-
KIKERAR.
feröakíkirar,
prismakíkirar.
sjókíkerar,
Stærst úrval. Lægst verð.
Gleraugnabúðin Laugaveg 2.