Fálkinn


Fálkinn - 12.03.1932, Síða 11

Fálkinn - 12.03.1932, Síða 11
F Á L K 1 N N 11 Yngstu lesendurnir. Leikföng sem ekkert kosta. Þiö smíðið þau sjálf. J (la^ ætla jeg a«'i keana ykkur aö búa til nokkur skemtileg leikföiig, sem hafa þann góöa kost, a'ð efniö í þau kostar ekkert eSa sama sem ekkert, og þaS kemur sjer vel i kreppunni. Karlinn sem hneifiir sig. ViÖ byrjiun á skrítnum karli. 1'iÖ búiö til hólk úr pappa og límið nt- an um hann hvítan pappír. Þegar límið er orðið þurt málið þið föt á hólkinn með hleki eða fleiri litum ef þið eigið þá; fæturna búið þið ti! með þvi að ge'ra stýfingu upp í hólkinn að neðan, og svo búið þið til handleggi á kárlinn og límið þá á. f hólkinn að ofan gerið þið tvö hök til þess að festa hausinn i. Karlinn er límdur niður á stórt pappaspjald, svo að hann geti staðið. Þið skuluð athuga mynílina vel, ykkur til hlið- sjónar meðan þið eruð að búa búk- inn ti). Mausiun á kariinum er gerður úr korktappa. Neðan i tappann stingið þið eldspítu eða tálgið til þess svo litla spítu og í neðri endann á henni festið þið eitthvað þungt, t.d. lakk eða hnapp. Nú rekið þið járnvír þvert i gegnum tappann að neðan og endana, sem standa eiga útúr, látið þið liggja i hökunum á pappa- búknum. Ef þið hreifið svolítið við karlinum, hneigir hann sig ofur vin- gjarnlega. Eitt vopnið enn. lil þess að reyna skotfimi sína á: boga og örvar. Fáið ykkur hárnál og beýgið hana eins og sýnt er á myndinni og þenj- ið síðan teygjuband út eins og boga Fyrir örvar notið þið eldspítur. Þið yddið annaii endann á þeim og stingið svolítilli glerperlu upp á, en i hinn endann gerið þið svolítið hak, svo að hægra sje að l'esta boga- slrenginn á örina. Og svo er boginn tilbúinn. Brúða. Sprengjuvarpari. Þið stingið endanum á öryggis- nælu inn í endan á korklappa. Lausi endinn á nálinni er notaður eins og l'jöður, til þess að skjóta af skotinu, en sem sprengjúr notið þið annað hvort notaðar eldspitur eða þá baun- ir. Til þess að geta miðað vel gerið þið rifu eftir endilöúgum tappan- um og látið sprengjuna renna eftir henni. Meiri skýringu þurfið þið vist ekki. Þið getið með hægu móti búið ykkur til annað vopn, sem er ágætt Teikningin sýnir betur en orð, hvernig þið getið búið ykkur lil allra fallegustu brúðu úr vasaklút. En vit- anlega reynir það á smekk ykkar og nákvæmni, hvað hún verður falleg. Þegar þið hafið vafið brúðuna úr klútnum festið þið klúthornin með tituprjónum og teygið siðan fætur og hnndleggi út úr. Það er gaman að því að búa sjer til svona hljóðfæri. Þið fáið ykkur ferhyrnt stykki af sterkum pappír, sem þó ekki má vera of þykkur. Það er brotið saman eftir deplalínunum 1 og 2. Svo eru oddariiir skornir af eftir deplalínunni 3, eiti hornin, sem eftir eru, eru brotin aftur á bak. Mynd 4 sýnir hvernig hornið á að vera eftir að það hefur verið brot- Ið. Nú er smellan tilbúin. Þegar mað- ur tekur um hornið og smellir papp- írnum áfram og niður á við þjóta inn-beygðu hornin út og kemur hár hvellur eins og af skoli. ,S' egnlstáls luítn rinn. Það er auðvell að nota segulstál til þess að stýra skipum með. Svona skip er auðvelt að búa til úr nokkr- um korktöppum, svolitlu al' pappír nokkrum nálum og svo tvinna. Mynd- in sýnir nokkur skip af þessari teg- und og er mjög hægt að búa þau til. Skrokkurinn er úr nokkrum klofn- um töppum, sem eru tálgaðir til og festir saman, siglutrjen eru vir nál- um, seglin úr pappír o. s. frv. Kjölurinn er gerður úr járni eða stáli, svo að skipinu hvolfi ekki. Svo er nagli notaður í bugspjótið og þá stefnir skipið altaf í þá átt, sem maður hefir segulstálið sitt. En betra er að það sje ekki mjög iangt i búrtu. Varakennarinn. (Leikurinn gerist i kenslustund í landafræði, í efsta bekk i stórum barnaskóla. Skólastjórinn hefir ver- ið inni í bekknum til þess að kynna nemendum nýjan kennara, sem tek- nr við í forföllum hins; er skóla- stjórinn nýfarinn út þegar leiknrinn hefst og hefir skorað á duglegu nem- endurna i bejcknum að haga sjer nú vel, og óskað góðrar samvinnu við nýja kennarann). VARAKÉNNARINN .læja, jeg er nú nýi kennarinn ykkar. (Sest við kennara borðið og fer að raða blöð- um). Jcg vona, að ykkur komi vel saman. — Þið eruð vist öll dugieg i þessum bekk? ALLIR: Já, já. — Vitanlega. Hver efast um það! NÓI: -— Okluir hefir ekki verið sett neitt fyrir. VARAK.: - Hvað segirðu hef- ir ykkur ekki verið sett ncitl íyrir? ALLIR (með háreisti); — Nei, ekki einn staf. VARAK. (tortryggnislega): — Það var skritið. Jeg man ekki betur, en að skólastjórinn segði .... ALLir (hæðnislega): Hvað ætli hann viti um það? JON: Við erum vön að setja okk- iir fyrir sjálf. VARAK.: (stuttur i spuna): Þá hafið þið varla lærl mikið .... ALLIR: (hrópandi): Jú víst. Mik- ið ósköp mikið! KÁRI: Þjer skuluð reyna það í mánaðartima og sjá árangurinn. ALLIR (með mikilli háreysti oy lálum): Heyr! Bravó! (fóta- stapp). VARAK. (j)ýtur upp, öskuvondurJ: Verið þið kyr, þarna afturfrá! Látið þið mig ekki heyra þvætting- inn í ykkur. í kenslustundum mín- um verðið þið að starfa, skiljið þið. (Þögn í svip). Kennarinn fer að blaða I nafnaskránni. (Kjaptagang- urinn byrjar aftur). Nói, vilt þú koma hjerna upp að landabrjefinu. (Éói labbar upp lil kennarans). Hvaða land er þetta, sem þú sjerð þarna? NÓI: Uhiflm .... það eru Vest- mannaeyjar .... og svo er það Grimsey .... og ..... VARAK.: Svaraðu almennilega, drengur . . livaða bull er í þjer . . ? NOI: Jeg svara álmennilega. VARAK. (reiður): -—. Hvað seg- irð’u? Snautaðu í sætið 'þitt — og láttu mig atdrei framar heyra svona þvaðlir .... þú heldur kanske, að af því að jeg er nýr ‘kennari, þá getir þú haft frammi strákapör -— en þar skjállast þjer, kunningi. (mýkri):.— Þið getið blaðráð eins og þið viljið i frímínútunum, en ekki hjerna (hljóðskraf). Bíðum nú við — Pjetur Sigurðsson — getur þú sagt mjer hvaða land þetta er? PJETUR: — Ja, það eru nú Vest- mannaeyjar, og svo .... VARAK.: (rekur honum rokna iöðrnng): — Þú skalt fá að finna þetta seinna, bjálfinn þinn —. En þú þarna, hvaða land er þetta? KRISTJÁN (hreytir orðinu id úr sjer): ísland! VARAK. (glaður): - Alveg rjett. Og segðu mjer svo i skyndi, Jón! llvað er ísland stórt? Jón: 300.000 l'erkílómetrar. VARAK. (ergilegur): — Hvað scgirðu nú? Við vorum einmitt að komast á sporið. JÓN: - Það er 100.000 ferkíló- metrar á landi, en hitl á ís. (Hlátur og fliss). VARAK.: Hafðu jjig hægan með svona ósvil’ni. Þú verður að slcrifa 100 linur um landafi’æði í bókina þíiia á morgun og færa mjer. JÖN (einstaklega alvarlegur): llann pabbi minn hefir bannað mjer að taka til láns, svo að jeg vii helsl borga út í hönd (rjettir fram bók). Hjjerna eru 125 línur, og svo ætla jeg að biðja yður um kvittun og fá 25 lirtur lil baka. (Hlátur og ólœti). VARAK.: (öskuvondur, þrifur bókina af honum): Þú skriíar 200 linur fyrir morgundaginn — þú skalt ekki hafa betra af þessu, oflát- ungiir! JÓN (í hálfum hljóðum): — Svona stórar pantanir er jeg annars van- ur að hafa þriggja mánaðar fyrir- vara til að al'greiða. (Kenslustundin liður, sifelt blaður og ókyrð). VARAK.: — Áttuð Jjið að hafa nokkuð um kartðflurækt hjer á landi í dag? KRISTJÁN: Jamm. ALLIR (með hávaða); .— Nei! KÁRI: Hvílik ósvifni — bara af Jjví nð liánn hefir verið yfir- heyrður. VARAK.: Kyrð. —- Byrgir? Fram- leiðir landið nóg af kartöflum hnda Jjjóðin ni? BYRGIR: — Ja, Jjað kemur nú an uppá — jeti menn ekki nema einn kártöflu eins og þjer í staðinn fyrir fjórar, þá endist það. VARAK.: — Hversvegna heldur þú, að jeg borði lítið af kartöflum? BYRGIR: Jeg sje það' á yður (hláturíslciir og hljóðskraf). VARAK. (ógnandi: — Hvað þá hvað varstu að segja? (Kenslustundin heldur áfram ú hægu brokki en að síðnstii á fetinu og loks staðnæmist alt). VARAK.: — Jæja, þið kunnuð nú illa í dag þið eigið að kunna lexí- una ykkar svo vel, að þó að Jjið sjeuð vakin um miðja nótt, getið þið l’arið með hana reiprennandi en standið ekki í vafa. KÁRi: — Þegar jeg er vakin um miðja nótt stend jeg aldrei í vafa. Erh. á bls. 15,

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.