Fálkinn - 23.07.1932, Síða 1
16 siflnr 40 anra
Reykjavík, laugardaginn 23. júlí 1932
„Hvíta liúsið“ er embællisbústaður Bandaríkjaforseta kallað. Er það virðulegur bústaður, eins og nærri má geta og saman-
komið þar afar mikið af lislaverkum. Mörg eru þar lierbergin, og þó að sum sjeu allstór, rúmar þó ekkert þann mannfjölda,
sem stundum er boðið til forseta. Þessvegna eru flestar hinar stærri oþinberu viötökur forsetans undir berum himni, svo-
kölluð „garden party“ eða garðveislur, því að í garði hvíta hússins rúmast margt fóllc. Hefir það smátt og smátt orðið
venja, að lialda garðveislur, jafnvel þó eigi væri fleiri veislugestirnir, en að þeir gæti vel rúmast i liúsum inni. Myndin hjer
að ofan er af einni slíkri veislu, eða móttöku, — því að góðgerðirnar eru að jafnaði ekki svo margbrotnar að veisla geti heit-
ið — og er frá því í vor, að Hoover forseti fjekk í heimsókn fjölda örkumla manna, sem mist höfðu líkamlegt atgjörfi sitt i
heimsstyrjöldinni. Á myndinni sjást til vinstri húsbændurnir, Hoover forseti og frú hans.
GARÐVEISLA í „HVÍTA HÚSINU“.