Fálkinn


Fálkinn - 20.01.1934, Page 2

Fálkinn - 20.01.1934, Page 2
2 F A L K I N N GAMLA BÍÓ Stalisysturnar. Gullfalleg og áhrifamikil tal- Aðalhlutverkin leika: mynd í 10 þáttum. MARION DAYIES ROBERT MONTGOMERY BILLIE DOVE. Myndin sýnd bráðlega. IBI : O O ■J u £ EfilLS PILSNER BJÓR MALTÖL HVÍTÖL. SIBIUS SÓDAVATN GOSDRYKKIR, 9 tegundir. SAFT LÍKÖRAR, 5 teg. : Nöí'nin ,EGILL‘ og ,SIRIUS‘ í tryggja gæðin. Ii.f. Ölprðin { Egill Skallagrimsson Sími 1C90. Reykjavík. NÍ,Sens RflFMMNS BAKVJEL Straumgjafinn venjulegt vasaljóss element, má því nota hana hvar og hvenær sem er. Venjuleg rakblöð. Sársaukalaus rakstur því vjelin sker en heggur ekki hárin. Verð kr. 26.00. W Æ L Samkvæiisskór í MEIR EN ^ 30 LITDM @ 1 1 Fba LÁRUSI 1 ----- NÝJABÍO ------------- F. P. 1 svarar ekki. Stórfengleg og fróðleg kvik- mynd um flug og ástir, tekin af Karl Harlt. Myndin gerist sumpart á floteyju í Atlants- hafi og sýnir þessi merkilegu mannvirki framtíðarinnar. Aðalhlutverkin leika: IIANS ALBERS, SYBILLE SCHMITZ og PAUL HARTMANN. Hljómleikarnir eftir ALLAN GRAY. Sýnd um helgina. SVAM-VITAMIN smjorlíki Ier eina íslenska smjörlíkið, sem jafngildir sumar- smjöri að A-fjör- efnamagni. Fálkinn er besta heimilisblaðið. Hljóm- og talmyndir. F. P. 1 SVARAR EKKI. Þessi þýska talmynd hefir vakið mikla athygli og umtal um heiminn, ekki síst vegna þess, að í sambandi við hana var bygð ein af hinum svonefndu floteyjum, sem ráðgert er að koma fyrir á úthöfunum og nota sem lendingarstaði fyrir flugvjelar milli lieimshafanna. Er þess skamt að híða að þessi áform komist í framkvæmd, þvi að nú er verið að smíða hina fyrstu af þessum fljót- andi eyjum. Eru þær alt að 500 metrar á lengd, með viðgerðar- skállum, gistihúsum og eldsneytis- sölu fyrir flugvjelarnar. Myndin er gerð eflir framtíðar skáldsögu Kurts Siodmaks og búin lil leiks af Karl Hartl. Segir sagan frá því, að stúlka ein, Claire Len- nartz heyrir flugmanninn Ellissen, frægan garp, segja blaðaljósmynd- ara að koma út að Lennartz-skipa- smíðastöðvunum þá um kvöldið, því að þar muni gerast óvænlir við burðir. En Claire og bræður lienn- ar eiga skipasmiðastöðina og leik- ur stúlkunni þvi hugur á að vita, hvað eigi að gerast. Það sem ger- ist er þetta: slökkviliðið er gabbað að að stöðinni en í uppnáminu sem verður þar, hverfa skjöl og teikn- ingar að fljótandi eyju, sein Droste nokkur verkfræðingur hefir senl stöðinni til álita fyrir nokkrum ár- um en stöðin ekki tekið afstöðu til. Droste þessi er æskuvinur flug- mannsins, sem hefir tekist á hend- ur að ná aftur teikningunum á þennan hátt. Þau Claire og flugmaðurinn fella hugi saman. En nú fær hann tilboð um, að fljúga kringum linöttinn á nýrri 7000 hestafla vjel, og tekur ]iví. Hann leggur upp og hverfur og allir telja hann af. En smíða- stöðin hefir fyrir milligöngu Claire tekið að sjer að smíða floteyjuna og eftir nær þrjú ár er hún kömin á sinn stað og Dorste símar þaðan, að hann sje viðbúinn að taka a móti fyrstu flugvjelunum. Claire sem hefir orðið afhuga því að sjá EIlis- sen flugmann nokkurntíman aftur, hefir felt hug til Droste. En einmitt þegar floteyjan er fullgerð slitnar loftskeytasambandið við hana alt i einu. Eitthvað hlýtur að vera að, og Claire sem óttast örlög Droste vill ólm gera út flugleiðangur til þess að komast að því sanna í málinu og bjarga Droste. Þá er Ellissen flugmaður kominn fram — hefir lent í óbygðum Ástralíu og hrakist þar lengi. Hann tekur að sjer að fljúga með Claire til floteyj'arinnar ogf veit ekki annað en hugur Claire I i 1 sín sje samur og hann var forð- uin. En þögn flotaeyjarinnar stafar af því, að þar hefir maður verið sett- ur til höfuðs Droste af keppinaut- unum. Þegar Ellissen kenmr þangað er eyjan að sökkva, flugmaðurinn hefir eyðilagt öll tæki og fleygl öllu eldsneyti fyrir borð og komisl sjálfur undan á báti. Sögulokin er ekki vert að segja hjer, en eins og ráða má af aðdragandanum, ]iá eru ]>au spennandi. Aðalhlutverkin í myndinni leika Hans Albers, Sybille Schinitz og Paul Hartmann, en hin frækilegu flug i myndinni, sém eflaust vekja athygli eru gerð af mönnum frá samgönguflugskólanum þýska. Þessi stórbrotna mynd verður sýnd mjög bráðlega í NÝJA BIÓ. STALLSYSTUItNAR. Mynd þessi er gerð eftir hand- riti Frances Marion, sem fengið hef- ir verðlaun fyrir besta kvikmynda- handrit fram komið á heilu ári, en leikstjórnina annaðist Edmund Goulding, sá sami sem bjó „Grand Hotel“ til leiks. Myndin fjallar utn Ivær fátækar slúlkur i New York, sem afgreiða í sama verslunarhús- inu og heita Blondie og Lottie (Marion Davies og Billie Dove) Lottie þráir skemtilegra Jíf og kemst að sem dansmær á leilchúsi og verð- ur vinkona miljónamæringsins Larry Belmont (Roberl Montgo- mery), en þegar hún kemst að því, að Larry líst öllu betur á Blondie er úti um vináttuna milli stallsystr- anna. Larry býður Blondie út með sjer og kemur lienni að sem dans- mey á sama leikhúsinu og Lottie, en afbrýðissemi hinnar síðarnefndu ágerist sí og æ, og loks verður hún þess valdandi að Blondie stórslas- ast, svo að horfur eru á, að ln'in liafi örkuml alla sína æfi. Og Blondie hefir aldrei felt sig fylli- lega við leikaralífið; einkum liefir eitt atvik orðið til þess, að hún finnur til tómleiks við það, eftir að hún hefir mist föður sinn. Hún l'lyst aftur heim í gamla leigubú- staðinn sinn í fátækrahverfinu, en ást Larry yfirgefur hana ekki fyrir það þó liún sje orðin fátæk og ör- kumla. Eru sögulolcin hin geðfeld- ustu. Framli. á bls. 15.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.