Fálkinn


Fálkinn - 20.01.1934, Side 15

Fálkinn - 20.01.1934, Side 15
F A L K I N N 15 ú : ' , * : , ■ ' 1 V; •$ v '■', -'■'. -, •^V-.. „-.v,, •'. .'.'■';S>: :' ...........;'• v'rVíí.-^-.V.VÍí.^Xj'".: V-••',-- -'"•:• - '-• •y.--,— #íí# ír 'Æ>■<*:<«-rT> Wpl' Ml«' ■ ...fjSwrtfr Framh. af bls. 2. Þetta er prýðilega vei leikin riiynd. Þarna skiftist á gaman og alvara og myndin snertir marga viðkvæma strengi. Einn þátturinn í myndinni er skopleg stæling á Hkum þætti úr Grand Hotel, þar sem Marion Davies hermir eftir Gretu Garho. — í smærri hlutverk- Um eru ýmsir kunnir kvikmynda- leikendur, svo sem Clyde Cook, Jimmy Durante og Rocky Twins. Biliie Dove, sem ieikur Lottie var sjálf upprunalega dansmær á Zieg- field Follies i New York og kann sig því í hlutverkinu. Þessi ágæta liiynd verður sýnd hráðlega a GAMLA BTÓ . JEG ER ALVEG HISSA Nú á páfinn í Róm bráður að fá að sjá hljómmynd i fyrsta skifti 4 æfi sinni. í tilefni af árinu helga var tekin hljómmynd af páfagarði, sem sýnir það helsta í kirkjuríkinu, hæði Vatíkanið sjálft og hina undur fögru garða þess. í myndinni heyr- ast einnig klukkur Peturskirkjunn- ar, drengjakórinn i kirkjunum og orgelsnillingar páfahirðarinnar. Mynd þessi verður ekki sýnd á k vi k my n d ahúsu num. Einkennilegt óhapp kom fyrir í Kaupmannahöfn rjett fyrir jólin. Fuglakaupmaður nokkur hafði kveikt á gasi í verzlun sinni eiít kvöldið áður en hann fór heim til sín, til þess að ekki skyldi verða of kalt í búðinni um nóttina. Þeg- ar hann koni aftur voru allir fugl- arnir, um 1000 talsins, og tveir apar dauðir. Hafði gasslangan lekið og dýrin drepist af eitrinu. —---x—-— Heyrst hefir að um tvö þúsund skólum í Bandaríkjunum hafi verið lokað, vegna þess að peningar eru engir handbærir til skólahalds. Á afskektum stöðum fá börnin enga. kenslu. Barnakennarar eiga sem svarar 40 miljón dollurum inni- standandi af kaupi sínu, hjá bæj- ar og sveitafjelögum. ----x---- Ungur piltur fanst nýlega aðfram kominn á götu i London og var fluttur á sjúkrahús. Kom það á daginn, að hann er sonur eins rik- asta mannsins i Ivanada. Hann hafði orðið ósáttur við föður sinn, sem hafði kallað hann landeyðu og sagt, að liann mundi ekki geta komist ai upp á eigin spítur í eitt ár. Þessu reiddist sonurinn og þeir veðjuðu um málið og pilturinn fór til Eng- jands. Vegnaði honum vel fyrst í stað, en varð svo atvinnulaus og hafði hvergi höfði sínu að að halla. Hann vildi ekki skrifa heim og kaus heldur að örmagnast af sulti. ----------------x---- Æðsti maður Armenakirkjunnar í Ameriku, Leon Tourian erkibiskup var myrtur á aðfangadagskvöld frammi fyrir altari armensk-ka- þólsku kirkjunnar i New York. Með- an á messugerðinni stóð rjeðst flokkur launmorðingja upp að al- tarinu og drápu biskupinn i augsýn alls safnaðarins, sem ekki áttaði sig á því sem var að gerast fyr en eftir á. Aðeins tveir af morðingjunum náðust. DÓMURINN í BRUNAMÁLINU. Nú hefir van der Luhbe verið hálshöggvinn og mælist það heldur illa fyrir. þvi að hvorltveggja var að ekki eru lög til að dæma menn til dauða fyrir íkveikju og svo hitt, að Lubbe hefir að flestra áliti ekki verið sjálfráður gjörða sinna. I'ór aftaka hans fram 9. janúar, rúmum hálfum mánuði eftir að dómurinn fjell. Myndin er úr rjettarsalnum Auiiísið i Fálkauuin. í Leipzig og sjást nokkrir af þeim sem við málið voru riðnir. Efst til vinstri van der Lubbe ásamt hinum holl- enska túlk sínum, lil hægri dr. Bunger dómstjóri. Að neðan dr. Sach verjandi Torglers, sem hjelt áhrifa- mikla varnarræðu fyrir hann og bak við hann er Torgler. Þá sjest opin- beri ákærandinn, dr. Werner (x) neðst á myndinni. JÓLAMAÐURINN í NEW YOlíK. Ameríkuménn eru stórskornir i auglýsingastarfsemi sinni og mynd- in sem hjer fylgir er ein söiinun þess. Fyrir jólin í vetur var byrjun jólamarkaðsins auglýst með þvi, að láta ,jólamanninn‘ sem sjest á mynd- inni gaiiga um heístu göturnar. Er þelta uppblásin gúmmíblaðra, 20 metrar á liæð, en til þess að halda henni í rjettum stillingum eru mörg stög fest i blöðruna og lialda menn í stögin. Auglýsingin hafði áhrif; fólk þyrptist saman á götunum hvar sem ferlíkið fór um. MINNISYARÐI WRIGHT-BR/EÐR- ANNA. Minnismerki það, sem sjest hjer á myndinni hefir nýlega verið af- hjúpað í Bandaríkjunum. Er það yfir bræðurnar Wilbur og Orville Wright, sem fleslir télja aðalfrum- uði fluglistarinnar og nú eru báðir látnir. Fæddist Wilbur 1807 og dó 1912 en Orville var fjórum árum yngri og andaðist fyrir nokkrum ár- um. Bræður þessir tóku sjer fyrir hendur, að vinna að smíði flugvjel- ar á sama grundvelli og Þjóðverj- inn Otto Lillienthal, að smiða eins- konar flugdreka með fastri grind, þannig að loftið gæti borið hann uppi og mann í. Brátt komust þeir að þeirri niðúrstöðu, að nauðsynlegl væri að setja hreyfil i drekann og i mörg ár gerðu þeir tilraunir með orkuknúna flugvjel og tókst loks að fljúga 19 km. samfleytt árið 1904. Þessar tilraunir gerðu þeir allar í kyrþei á afviknum stað, en árið 1908 gáfu þeir almenningi vitneskju um flugvjel sina, sem nú var orðin miklu fullkomnari og urðu heims- i'rægir inenn i einni svipan. Þessi vjel Wright-hræðra var tvíþekju- kassavjel, eins og margar hinar fyrstu flugvjelar og ýms undirstöðuatriði í byggingu hennar eru notuð við flugvjelasmíði enn i dag.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.