Fálkinn - 29.09.1934, Síða 5
F Á L K I N N
o
Stúlka ein í Portugal dó nýlega,
50 ára gömul. Síðustu 44 ár æfi
sinnar hafði hún ekki nærst á
neinum föstum mat. Þegar hún var
tólf ára fjekk hún malaria og nærð-
ist í næstu tvö ár ekki á öðru en
sykurvatni. Hjelt hún þessu svo á-
fram eftir að hún var orðin heil-
brigð og hefir ekki nærst á öðru
en sykurvatni, hafraseyði og þvi-
liku til dauðadags.
-----x----
Pametta að nafni. Hann og
annar maður til, sem talinn var
lionum jafnsekur, voru drepn-
ir skömmu á eftir, en allir hin-
ir uppreisnarmennirnir liand-
teknir.-------
Morðið vakti ákafa gremjn
þjóða þeirra, sem andvigar eru
Þjóðverjum og enda fleiri. Sök-
inni var sem sje skelt á Þjóð-
verja og mun það vera með full-
um rökum. Síðustu þrjú missir-
in hefir eigi lint undirróðri og
æsingum frá miðstöð nazisla í
Múnchen og áskorunum til
austurríksra skoðanahræðra, að
hrinda Dollfuss af höndum
sjer. Og svo gerðist annað
verra. Sendiherra Þjððverja í
Wien, dr. Rietli að nafni,
l'lónskaðist til þess að gefa
austurrískum nazistum vega-
hrjef til landamæra Þýskalands
svo að þeir gæti forðað sjer úr
landi. Þótti það sanna sök Þjóð-
verja. En vitanlega setti llitler
þetta sendiherraflón af undir
eins og kvaddi hann heim. I
lians stað skipaði hann von
Papen varakanslara sendiherra
i Wien og sló þar tvær flugur
i einu höggi: að losna við vara-
kanslarann og sýna Austurrík-
ismönnum sóma með því að
senda þeim svo háttsettan
mann. Þó var talsverður urgur
í Austurríki útaf skipuninni.
Annað var það, að landrækir
austurrískir nazistar í Þýska-
landi gripu til vopna og ætluðu
að ráðast inn í Austurriki og
halda byltingunni áfram. Voru
þeir famir að draga l:ð að landa-
mærunum í samráði við nazista-
miðstjórnina í Múnchen og þetta
varð til þess, að Mussolini sendi
her að landamærunum. Austur-
ríkismenn báðust aðstoðar þjóð-
bandalagsins og ýmsra þjóða til
þess að afstýra innrás i landið
og leit nú svo út, sem all mundi
Þessi mynd er tekin fyrir utatn útvarpsstöðina í Wien, eftir að stjórnarjiðið hafði náð byggingunni á sitl
vald aftur. Sjest lögregla og hermenn á verði við dyrnar, sem uppreisnarmenn liöfðu látið rigna i’ir vjel-
byssunum út um, meðan þeir voru að senda tilkynninguna frægu.
Indverskur sheik, Hanif að
nafni var nýlega dæmdur til dauða
fyrir að hafa drepið fjögra ára
gamlan son sinn. Fyrir rjettinum
hjelt sheikinn þvi fram, aS hann
væri saklaus og meira en það.
Hann hefði heyrt innri rödd skipa
sjer að fórna syni sínum og þá
mundi hann verða helgur maður.
Þessvegna fór hann með son sinn
inn í musterið og sagði honum að
leggjast þar á hnje og hiðjast fyrir.
Og meðan barnið var að biðjast
fyrir tók faðir þess upp sveðju og
skar það á háls.
Nýja stjórnin í Austurríki: Efri röð frá v.: Fritz Stockinger verslunar- og samgöngumálaráðherra, Fey
major innanríkisráðherra, Odo v. Neustádter-Stiirmer (fjelagsmálaráðherra) og Starhemberg fursti’, vará-
kanslari og öryggisráðherra. Neðri röð frá v.: Dr. Karl Buresch fjármálaráðherra, dr. Kurt Schuschnigg
kanslari, hermála-, kenslumáia- og dómsmálaráðherra, og Egon v. lierger-Waldenegg, utanríkisráðherra.
komast í bál og brand. En Hit-
ler stöðvaði með valdboði lið-
safnað nazista og jafnaðist þá
málið.
Uppreisnarmennirnir böfðu
lýst yfir því í útvarpinu, að dr.
Anton Rintelen sendiberra mynd
aði nýju stjórnina. Hann var
handtekinn undir edns og vakti
illan grun á sjer með þvi að
reyna að fremja sjálfsmorð i
fangelsinu. En ekkert hefir á
liann sannast um það, að liann
hafi verið i vitorði með sam-
særismönnum. Sumar fregnir
hendluðu Starhemberg fursta
við uppreiánina, en það mun bafa
verið út í bláinn, því að nann
kom þegar i stað til mála, sem
kanslaraefni nýju stjórnarinnar.
Lika var Fey hershöfðingi
nefndur til starfans.
Það varð þó hvorugur þeirra.
Schuscbnigg, hinn setti kansl-
ari, var skipaðaur kanslari á-
fram. Er bann ungur maður,
aðeins 36 ára og lítið kunnur.
Það sem, einkum mun hafa ráð-
ið því, að hann var tekinn fram
yfir bina er það, að hinir eru
báðir hermenn, en Miklas for-
seta og þjóðinni yfirleitt mun
finnast, að þjóðin liafi orðið of
mikið af hernum að segja og
að liann sje farinn að vaxa
benni yfir höfuð.
Kyrt hefir verið að kalla i
Austurríki síðan um byltinguna
og úti um landið varð ekki
róstusamt svo heitað gæti bylt-
ingardagana nema helst í Steyer-
mark. — En Austurríki hefir
ekki bitið úr nálinni enn. Naz-
staflokkurinn þar er að vísu fá-
mennur, en hann á Þýskaland á
bak við sig og þar mun eldur-
inn halda áfram að brenna. En
einvaldsstjórnin austuríska á
annan andstöðuflokk hættulegri
þ'ar sem er hinn fjölmenni soci-
alistaflokkur. Hann gleymir
ekki viðburðunum í fyrravetur
og hvenær sem vera skal getur
logað upp úr þeim glæðum.
í bænum Slovenski Brod í Búlg-
aríu er sterkur maður sem heitir
Iontcha Leskar. Hafði hann ákaf-
lega gaman af að sýna krafta sína.
Nýiega gaf hann kunningja sinum
högg á brjóstið, svo liart að sá sem
fyrir varð hnje niður meðvitundar-
laus. Var farið með hann á spítala
og þar dó hann skömmu síðar. Nú
hefir sterki maðurinn verið kærðnr
i'yrir morð.
----x----