Fálkinn


Fálkinn - 13.06.1936, Síða 2

Fálkinn - 13.06.1936, Síða 2
2 F Á L K 1 N N ------ GAMLA BÍÓ ----------- Jeg ein. Bráðskemtilegur gamanleikur tekinn af Metro-Goldwyn May- er undir stjórn Edw. H. Griffith. Hljómleikarnir eftir Edward Ward. Aðalhlutverkin leika: JOAN CRAWFORD, ROBERT MONTGOMERY, FRANCHOT TONE og CHARLIE RUGGLES. Sýnd bráðlega. Mynd þessi er gamanleikur, tekin af Metro-Goldwyn Mayer og er samin af Donald Odgen Steward og Horace Jackson eftir kunnu leikriti. Leik- sljóri myndarinnar er Edward Griffith en lögin við hana eru sam- in af Edward Ward. Aðal persónan í leiknum er ung stúlka, sem elst upp hjá ríkri frœnku sinni, sem vill í öllu hafa háttu fínna fólksins i New York, þ. e. að njóta lífsins í ríkum mæli, fara i samkvæmi, viðra sig upp við þá, sem þykja enn þá fínni o. s. frv. Eu unga stúlkan er öðruvísi gerð en flest það fólk, sem elst upp undir hennar kringumstæðum. Hún fer sín- ar eigin götur og hefir miklu þrosk- aðri hugsanir um mannlífið en flest fólk sem elst upp við sömu kjör og lnin. Þessi stúlka, Marcia Townsend er snildarlega leikin af Joan Craw- ford. Hún er ástfangin af Sherry Warren, ungum og ríkum manni, sem í fullum mæli vill njóta lífsins og er ekki beinlínis grandvar í líferni sinu, (Robert Montgomery). Frænku hennar er ekkert um þann ráðahag og vill gjarnan láta stúlkuna giftast öðrum manni, Oliver Allen (Regin- ald Denny) og eitt sinn er Sherry hefir svikist um að koma í lieim- sókn til þeirra frænknanna, ætlar hún að nota sjer tækifærið, til að koma þeim saman Marciu og Oliver. En þetta fer þó á aðra leið. Jafnvel þó að Marciu renni í skap við Sherry út af kæruleysi hans og lausagopa- skap sigrast hún þó altaf þegar á reynir á viðmóti hans, því að hann er einn þeirra manna, sem kven- fólkið kallar „ómótstæðilegt". Þegar kemur fram i myndina koma þar ýmsar aðrar persónur til sög- unnar. Má þar fyrst og fremst nefna Edgar, frænda Sherry’s (Charlie Iíuggles), sem verður ógleymanlegur fyrir snildarlegan kýmnileik sinn. Og næst kemur til sögunnar dans- mær, sem leikur á banjó og heitir Theresia (Gail Patrick), sem að lukk- ast að komast upp á milli þeirra Marciu og Sherry — eftir að þau eru gift. Myndinni lýkur svo með skemti- legum samfundum, þar sem mætast ýmsir „fyrverandi aðstandendur1- Sherry’s úr ástamálum hans. En þrátt fyrir alt það óvænta, sem að steðjar í myndinni verður ást Sherry og Marciu yfirsterkari. Myndin er bráðskemtileg frá upphafi til enda og verður sýnd á næstunni í GAMLA Bíó. Prag-kvartettinn Um síðustu helgi fór Páll ísólfs- son skólastjóri Tónlistaskólans með tjekknesku listamennina austur i sveitir i skemtiferð, að Gullfossi, Geysi, Grýlu, Brúarhlöðum, Ljósa- fossi og víðar. Veðrið var hið ákjós- anlegasta og Fálkinn hefir heyrt, að þeir hafi verið engu síður hrifnir af landinu en landsmenn af þeim. Yf- irleitt láta þeir listamennirnir ágæt- lega af komu sinni liingað og leika á alls oddi. Þeir eru mestu æringjar, auk þess að vera listamenn og kvað það ekki síst eiga við prófessor Cerny. Myndirnar sem hjer sjást geta ef til vill gefið nokkra hugmynd um þetta. Þessi mynd er t. d. af Cerny pró- fessor — „lífinu og sálinni“ í kvart- ettinum. Hjer er hann að setjast á bak gamla Brún, i austurförinni. Hann er húin að skoða Gullfoss eins og hann getur verið fegurstur í ljóma hádegissólarinnar og ætlar nú að fara að iðka hina göfugu riddara- list. Andlitið á honum lýgur þvi ekki að lionum líki lifið. Og ekki spilli það til, að Geysir fór af stað 5 mín- útum eftir að þeir fjelagar komu að honum. Á þessari mynd sjást fjórmenn- ingarnir hjá Gullfossi. Frá vinstri: Cerny, Berger, Schweyda og Vec- tomov. í skemtiför. Og hjer eru listamennirnir staddir við Grýlu. Loks birtist hjer mynd af próf. Cerny, sem sýnir nýja hlið á mann- inum. Kennari hans i matargerð. Otas Nejedly prófessor í málaralist við listskólann í Prag, sendi honum þessa mynd áður en hann fór í ís- landsförina og sagði honum að mynd- in ætti að gilda sem fullnaðarpróf- skírteini í matargerðarlist. — Laxinn i „Þrastarlundi" er „poesi“ segir Cerny og trúum við ekki öðru, en að lax- inn hafi orðið upp með sjer af slík- um ummælum. Jóhannes Hjartarson fyrv. af- greiðslum., verður 70 ára 19. þ. m. Vellauðug amerísk kona giftist brezkum manni um daginn. Þau fóru brúðkaupsferðina með neðansjávar- bát til írlands. ------ NÝJA BÍO ------------- „Dantes Inferno”. Stórkostlega vel gerð mynd um líf og ástir fólks, sem á alt undir því, að vekja á sjer at- hygli sem leiktrúðar, tekin af Fox Film, undir stjórn Harry Lachman. Aðalhlutverkin leika: SPENCER TRACY og CLAIRE TRF.VOR. Ennfremur Henry B. Walthall og dansendurnir Rita Cansino og Gary Leon. Sýnd bráðlega. Rit Dantes um Inferno hefir náð ])eim sessi i heimi bókmentanna, að verða eitt hið frægasta rit af öllum bókmentum miðalda. Frásögn Dantes af því, þegar hann kemur til Vitis, og lýsir öllu því, sem fyrir hann bar þar, hefir orðið eitt þeirra listaverka bókmentanna, sem hæst ber á í heiminum. lín það er best að segja frá þvi strax, að kvikmyndin, sem lijer verð- ur sagt frá og ber þetta nafn, er ekki beint kvikmynd af þessu mikla listaverki. Hún er frásögn af lífi trúðleikara, sem starfa saman á skemtistofnun, sem tekið hefir sjer þetta fræga nafn — „Dantes Inferno“. Og vitanlega reynir stofnunin að bera nafn með rentu og sýna eitthvað í líkingu við það, sem þeir gestir hafa hugsað sjer, er þar koma inn og liafa lesið liið fræga verk Dantes um Víti. Aðalhlutverkið í myndinni, Jim Carter, er leikið af Spencer Tracy. Hann er maður, sem vill leggja alt í sölurnar fyrir peninga og völd en neytir ekki altaf heiðarlegra aðferða lil þess að ná tilgangi sínum. Hann er altaf óheiðarlegur. Og þegar hann gerist kyndari á stóru gufuskipi hugs- ar hann mest um það, að svíkjast um vinnuna, sem hann á að inna af hendi fyrir kaupi sinu. Hann kemst í „framandi höfn“ og vinnur fyrir sjer þar með því að láta kasta bolt- um í hausinn á sjer. Þar fær hann gióðarauga og verður að hætta at- vinnunni. Og þá kemst hann í kynni við „galdramann" sem heitir Pop McWade og kallar sig prófessor. Hann rekur alþýðlega skemtistofnun, sem heitir „Dantes Inferno“ — „HelvíU Dantes“. Hefir hann tekið þetta nafn i virðingarskyni við skáldið Dante, sem hann hefir orðið hugfanginn af, við að lesa hið fræga rit „Inferno“ eftir hann. „Prófessorinn" á frænku, sem heitir Betty (Claire Trevor) og verður Jim óstfanginn af henni. Hann leggur sig allan í það, að vinna hús- bónda sínum sem mest gagn — vegna ástarinnar til hennar, og bráðlega rís upp nýtt „Inferno“, sem dregur fólk að sjer — og peningarnir streyma að fyrirtækinu. Jim hefir þarna fengið hlutverk, sem honum lætur vel, — að raka saman pening- um — en gamli „prófessorinn“ er ekki eins glaður yfir velgengninni. Kann er hugsjónamaður en enginn mammonsþjónn. Nú rekur myndin sögu þeirra Jim og Betty. Þau giftast og eignast dreng en Jim fær að reyna, að peningarnir eru ekki einhlýtir til þess að öðlasl gæfu í veröldinni. Seinni hluti mynd- arinnar er sönnun þessa. Verður liann ekki rakin lijer. En leikurinn í myndinni er þannig, að þeir sem sjó hana munu geyma í liuga sjer ríkari álirif, en þó þeir hafi lesið margar hugvekjur um það, hvar gæfu lífsins sje að finna. Það er frábær meðferð á hlutverkum, sem Spencer Tracy, Claire Trevor og Henry B. Walthall sýna í þessari mynd, sem sýnd verður nú bráðlega á NÝJA BÍÓ.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.