Fálkinn


Fálkinn - 13.06.1936, Side 3

Fálkinn - 13.06.1936, Side 3
F Á L K 1 N N 3 Sextugnr og kaupmaður í 35 ár. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvœmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—6. Skrifstofa i Osto: A n t o n Schjöth.sg a d e 1 4. Blaðið kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.50 á mánuði; lcr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 lcr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. Augtijsingaverð: 20 aura millimeter. Herbertsprent prentaði. Skraddaraliaikar. Það sannast ekki nema stundum á íslendingum, að öll byrjun sje erf- iðust. Hitt liefir miklu fremur viljað brenna við, eigi síst á siðustu ára- tugum, að hæði einstaklingar og hið opinbera sje full fljótt til að ráðast í ýms nýmæli og stórræði, án þess að fyrir þvi sje sjeð, að þau verði framkvæmd. Hjer skal minst á þrjú merkileg stórliýsi í Reykjavík, sem sætt hafa þessum örlögum. Hið fyrsta er myndasafn Einars Jónssonar. Þar var eigi fyrir því sjeð í uppliafi, að nægilegt fje yrði fyrir liendi til þess að koma byggingunni upp. Á hverju þingi urðu meðhalds- menn fyrirtækisins að eiga í baráttu um það, hvort framhaldandi styrkur fengist til þess að fullgera húsið. Mörg óþörf orð voru ])á töluð um málefni, sem i rauninni átti að af- gera áður en verkið var hafið. Og enn er svo, að i kringum lnisið er allur frágangur allsendis óviðunandi og í rauninni til minkunar. En það mun vera bæjarins hlutverk fremur en ríkisins að ráða bót á þessu. Annað er þjóðleikhúsið. Þar þótti fyrir þvi sjeð, að nægilegt fje yrði fyrir hendi til þess að fullgera bygg- inguna á sæmilegum tíma. Lög liöfðu verið sett um það, að allur ágóði af skemtanaskatti rynni í Þjóðleikhús- sjóðinn og í trausti til þeirra laga var ráðist í bygginguna. En þá leyf- ir þingið sjer að svifta sjóðinn þess- um tekjum og nota þær sem eyðslu- eyri handa ríkissjóði. Slik aðferð er svo óafsakanleg, að ekki þarf að leiða rök að. Það skilja allir. Nú stendur liúsið fullgert að utanverðu, en liið innra er það eins og lcölkuð gröf. Og 700 þúsund krónur, eða hvað það nú er, sem varið hefir verið til liússins, standa rentulausar ár eftir ár. í stað þess að sýna leiklist sýnir Þjóðleikhúsið sjálft sig — að utan og þó að liúsið sje fallegt, þá fullnægir það ekki tilganginum meðan svo er. Þriðja er sundhöllin. Hún hefir frá öndverðu verið þrætuepli rilcis og bæjar, en samt var byrjað á bygg- ingunni áður en gengið væri úr slcugga um hvernig ætti að haga henni. Svo mikið lá á að byrja. Síð- an liefir 'hún staðið ár eftir ár, til gamans þorparalýð og götustrákum, sem hafa haft stundargaman af að mölva i henni rúðurnar, uns nú loks að hún mun vera að lcoma að gagni. Hefði ekki verið betra að byrja ofur- litið seinna og láta svo sannast, að ,,háífnað er verk þá hafið er“. Garðar Gíslason stórkaupmaður á sextugsafmæli á morgun. Og jafn- framt eru á þessu ári liðin 35 ár síðan hann byrjaði kaupmensku upp á eigin spítur. Garðar Gislason er svo þjóðkunnur maður og hefir jafn- an staðið svo framarlega í hópi verslunarstjettarinnar, að „Fálkinn“ vill nota þetta tækifæri til að minn- ast hans nokkrum orðum, þó að þau liinsvegar verði svo fá, að ekki verð- ur rakinn nema lauslega ferill þessa forgöngumanns í íslenskri verslun. Æskuár sín dvaldist Garðar hjá foreldrum sínum að Þverá í Fnjóska- dal. Hann stjórnaði búi foreldra sinna á sumrum en á vetrum stund- aði hann barnakenslu, eftir að hafa lokið námi á Möðruvallaskóla. Einn- ig varð hann deildarstjóri Kaupfje- lags Þingeyinga í sinni sveit en rjeð- ist síðan til Magnúsar á Grund, sem þá rak allmikla verslun. Og mun það hafa verið fyrir áeggjan Magn- úsar, að hann rjeðst í það 23 ára gamall að sigla til útlanda i því skyni að gerast yerslunarmaður. Haustið 1899 sigldi hann til Englands og mun hafa haft í hyggju að fá sjer stöðu þar, en úr þvi varð þó eigi. Hann hjelt áfram til Kaupmanna- liafnar og vann þar hjá Jakob Gunn- laugssyni stórkaupmanni um vetur- inn en gekk jafnframt á kvöldskóla fvrir verslunarmenn. En þaðan rjeðst hann til Copland & Berrie í Leith og var þar eitt ár, sem sérfróður maður um íslensk viðskifti, en firma þetta rak þá sem síðar mikla verslun við ísland. En árið 1901 stofnaði hann sjálf- ur verslun i Leitli, keypti islenskar afurðir og keypti erlendar og seldi til íslands. Þessa verslun rak hann einn fyrstu tvö árin, en stofnaði þá firmað G. Gíslason og Hay, sem starf- aði í Leith fram yfir stríðslok og rak jafnan mikil viðskifti við ísland. Arið 1909 fluttist Garðar Gíslason til Reykjavíkur og stofnaði þá versl- unina Dagsbrún við Hverfisgötu og var það verslun sem var langt á und- an sínum tíma. Jafnframt rak Garð- ar beildsölu, einkum útflutningsversl- un með landbúnaðarafurðir. Hafa þær jafnan verið sjergrein Garðars og með sanni má segja að honum hafi jafnan verið • annast um að ryðja íslenskum landbúnaðarvörum braut erlendis og finna fyrir þær nýja markaði. Hann byrjaði fyrstur manna á garnahreinsun hjer á landi og síðar gærurotun. Hann gerði til- raunir með útflutning á nýju kjöti til Englands, þrátt fyrir þó að engin kæliskip væri þá í förum milli ís- lands og Englands. Árið 1919 keypti hann hús það við Hverfisgötu, sem siðan hefir verið verslunarhús hans; eru þar einna stærstu heildsöluskrif- stofur landsins og starfa þar nú 22 manns þrátt fyrir viðskiftakreppuna. Síðustu árin hefir hann einnig rekið sveitaverslun i Grimsnesi; Og siðan 1922 hefir hann rekið verslunarskrif- stofu í Hull. Garðar Gislason er einn af stofn- endum Verslunarráðs íslands og var að jafnaði formaður þess fram að 1933, eða alls í 15 ár. Hann átti einnig sæti í fyrstu stjórn Eimskipafjelags fslands og var einn af frumkvöðlum þess að það var stofnað. Ræðismað- ur Brasilíu hefir hann verið siðustu árin. Af þessu stutta yfirliti má ráða, hver atliafnamaður Garðar Gíslason hefir verið um æfina. Og enn er hann í fullu fjöri og sístarfandi. Jón Kristjáiisson læknir, verðnv 55 ára lb. þ. m. Jóhann Þ. Jósefsson alþm., verður 50 ára 17. þ. m. Arni Arnason fiskimatsmaður, Laiiganesvey 58, verðnr 60 át*a í dag. Ekkjan Valintýna Hallgrímsd. Grettisg. 1., varð 65 ára 11. þ. m.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.