Fálkinn - 13.06.1936, Page 10
10
F Á L K I N N
Copyrighl P. I. B. Box 6 Copenhagc.
Nr. 388. Adamson'skilar böggli á pósthúsið.
S k r í 11 u r.
-i
Mikil guðsblessun, uð kýrnar
skuli ekki kunna að fijúga.
— Heyriff iþjer ekki, aff jeg er aff
æfa mig, Maria?
— Jú, það gerir mjer ekkert til.
Haldiff þjer bara áfram.
Prófessorinn hefir gróðursett
perutrje.
— Rekiff þjer fingurinn ofan í
kok. Það er vant að duga.
— Ekki mjer. Jeg er sverða-
gleypir.
Einn af frægustu trúðum Banda-
rikjanna, Mark Angel að nafni, sem
hefir haft það að aðalstarfi að láta
kjaftshöggva sig, hefir nýlega gefið
út endurminningar sínar. Telst hon-
um svo til, að hann hafi fengið
150.000 löðrunga á leiksviðinu, eða að
meðaltali 20 á hverri sýningu, sem
hann liefir komið fram á. Líka hefir
honum reiknast, að hann hafi fengið
að meðaltali 2 kr. og fimtíu aura
fyrir hvern löðrung.
Skipbrotsmaðurinn: Mikil
gæfa aff jeg skuli ekki leika á, fifflu.
hús.
— Mikiö er þaö einkennilegt
hvernig þessi trje vaxa, prófessor.
Þaff er til aff minna á aö maffnr
eigi aff vökva þau.
Bakarinn er ástfanginn.
M ræður
hvort M trúir hví...
Á SEM RENNUR BÆÐI FRAM OG
AFTUR.
í Suður-Ameríku er á, sem rennur
hæði frain og aftur, eftir þvi sem á
stendur. Þessi á heitir Cassiquiare
Canal og er mynduð af náttúrunnar
völdum, en rennur stundum í Orini-
cofljótið, en stundum í Amazon. Þeg-
ar flóð er í Amazon rennur hún í
Orinico, en þegar flóð er í Orinico
rennur hún i Ainazon.
Önnur merkileg á er Nahr-al-Arus,
i Líbanonhjeraðinu í Sýrlandi. Hún
rennur sex daga vikunnar, en sjö-
unda daginn stöðvast alt vatnsrensli
í henni. Þýski visindamaðurinn dr.
Vogelstádter, sem skoðað hefir ána
og skrifað uin hana í þýska alfræði-
orðabók, hyggur að til þessarar ár
muni mega rekja sagnirnar um „sab-
batsána", sem kun er af helgisögum
austurlandaþjóðanna.
----o---
HÆNAN HAUSLAUSA LIFÐI.
Það virðist liggja utan takmarka
möguleikans, að dýr geti lifað eftir
að búið er að höggva af þeim liaus-
inn. En þó eru nokkur dæmi til um
þetta. Skal hjer sagt frá einu af þeim:
Eigandi Belvidere Hotel i Sault Ste.
Marie, Herbert V. Hughes að nafni
ætlaði að liafa kjúklingasteik i sunnu-
dagsverð fyrir gesti sína. Hjó hann
allmarga kjúklinga daginn fyrir og
fjekk einni vinnukonunni þá til að
reita. Þetta var 12. nóvember 1904.
All í einu kemur lnin háhljóðandi út
úr einu herberginu, og segist vera
orðin vitlaus, því að henni liafi sýns!
einn liöfuðlausi liænuunginn lir kös-
inni væri farinn að vappa um gólf-
ið liöfuðlaus. Þegar að þessu var
gætt reyndist það vera rjett. Hænu-
unginn tritlaði þarna fram og afl-
ur. Það var svartur ungi af Minorka-
kyni, sem ljek þetta hlutverk.
Blöðin í Sault Ste. Marie gerðu
mikið veður út af þessum atburði og
næstu tvær vikur var látlaus straum-
ur ferðafólks úr nágrenninu til bæj-
arins til þess að skoða hauslausu
hænuna, sein hafði neitað að deyja,
þó högginn væri af henni hausinn.
Mr. Hughes nærði hænuna með því
að sprauta fæðu inn um vælindað,
og hún virtist hafa bestu lyst á matn-
um og njóta hans vel. Hún labbaði
um, baðaði vængjunum og stundum
sveigði hún hálsinn til baka, eins og
hún vissi ekki annað en hausinn væri
enn á henni og liún ætlaði að fara
að iaga á sjer fjaðrirnar með nefinu,
eins og fuglar gera. Stunduin vipp-
aði liún sjer upp á hæsnaprikið og
stundum var hún að reyna að gagga
og setti sig í stellingar til þess, þó
að lítið yrði um árangurinn.
Hinn 25. nóvember fór mr. Hughes
með hænuungan hauslausa til ljós-
myndara og ljet taka af honum
myndir í ýmsum stellingum. Þvi
miður var þá ekki neinn kvikmynda-
tökumaður tii staðar, því að víst er
um það, að kvikmynd af liænunni,
sem þá var búin að vera dauð í liretl-
án daga, mundi hafa orðið eftirsótt
um alla veröldina. Hænu-unginn lifði
til 30. nóvbr. eða 17 daga eftir að
hausinn var liöggvinn af henni, og
hefði getað lifað lengur, ef maðurinn
sem gætti hans liefði ekki af athug-
unarleysi látið strjúpana gróa yfir
barkann og kæfa hana. — — — —
Annað dæmi er það, sem mr. Wm.
Hinkleman, sem á heima í Californía,
segir frá: „Fyrir mörgum árum lijó
jeg haus af kjúklingi. Átti jeg þá
heima á sveitabýli nálægt Modesto.
Kjúklingurinn lifði rúmt ár eftir. Jeg
nærði hann gegnum gúmmislöngu,
sem jeg stakk ofan í vælindað á hon-
um. Hann var á sýningu í San Fran-
cisco nokkrar vikur“.